Fréttablaðið - 26.06.2003, Page 28
26. júní 2003 FIMMTUDAGUR28
Fréttiraf fólki
Þegar Á móti sól skaust upp á yf-irborðið var hún ska-sveit, að
hætti Madness, með öllu rudda-
legri texta en hún eru nú þekkt
fyrir, sem oftar en ekki fjölluðu
um uppáfarir. Eftir að Austfirðing-
urinn Magni Ásgeirsson bættist í
hópinn mýktust yfirbragð og
textainnihald sveitarinnar þó
nokkuð. Hvort það hafi verið til-
koma hans eða einfaldlega það að
aldurinn hafi slípað piltana til er
erfitt að segja. Sjálfur vill Magni
nú meina að ruddinn lifi enn góðu
lífi í sálartetri hljómsveitarinnar.
„Þetta er eiginlega allt önnur
hljómsveit,“ segir Magni. „Við
hlustum samt ekki á neitt annað en
ska þessa dagana og endum því ör-
ugglega aftur í því. Plötulega séð
erum við kannski orðnir að hefð-
bundnari poppsveit en þú verður
eiginlega að koma á ball. Þar erum
við alveg jafn ruddalegir og við
vorum. Ég er enginn kórdrengur,
var til dæmis gagnrýndur fyrir
guðlast á Þjóðhátíðardaginn. Var
að blóta regnguðinum og átti þá að
hafa sýnt alheimsmættinum van-
virðingu.“
Magni lýsir nýju plötunni sem
rökréttu framhaldi af metsölu-
plötu þeirra frá jólunum 2001.
„Við erum orðnir aðeins eldri,
þannig að hún er aðeins rólegri.
Það er meira um kántrí og
kassagítara. Þetta er bara eðal-
popp. Hún skiptist í helminga í
Poppsveitin Á móti sól gefur út fjórðu breiðskífu sína
í dag.Platan heitir „Fiðrildi“ og inniheldur 10 ný lög
og eitt eldra lag sem áður var heimilislaust.
JOHNNY ENGLISH kl. 3.45
THE MATRIX R.. 5.30, 8, 10.30 b.i 12
BRINGING DOWN... kl. 3.45, 5.50, 8, 10.15
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10
Sýnd kl. 6, 8 og 10
kl. 8.15NÓI ALBINÓI
kl. 5.45 og 10 b.i. 16THE MATRIX REL...
kl. 3.45 5.50. 8 og 10.15
Lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15
TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. kl. 4
IDENTITY kl. 5.50 og 10.10 b.i 16
Sýnd kl. 5.40, 8, og 10.20 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 16Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd í lúxus kl. 6 og 8.30
kl. 5.45, 8 og 10.15HOW TO LOSE A...
kl. 10.10FILMUNDUR: L´ENFER
kl. 6 og 8 b.i. 16FILMUNDUR: TRYCKY LIFE
XMEN kl. 10.15 bi 12
AGENT CODY B... kl. 3.40, 5.50 og 8
SKÓGARLÍF 2 með ísl. tali kl. 4
KANGAROO JACK kl. 4, 6, 8 og 10
„Er enginn
kórdrengur“
TÓNLIST Langþráð útgáfa fyrstu plötu
Leaves í Bandaríkjunum verður að
veruleika þann 9. september næst-
komandi. Útgáfufyrirtæki þeirra
Dreamworks, sem er eitt það
stærsta þar í landi, byrjar að kynna
plötuna frá og með 15. júlí næstkom-
andi þegar fyrsta smáskífa sveitar-
innar þar verður prufukeyrð í út-
varpi. Einnig mun fyrirtækið eyða
púðri í auglýsingar og kynningar-
starfsemi í blöðum.
Plata Leaves verður með breyttu
sniði en Evrópuútgáfan sem kom út í
lok ágúst á síðasta ári. Nokkur lög
voru endurgerð auk þess sem nýju
lagi, „Sunday Lover“, var bætt við.
Það lag ætti að komast í spilun hér á
landi á næstu dögum.
Leaves mun halda í a.m.k. þrjár
tónleikaferðir til Bandaríkjanna á
komandi vetri. Nokkrar manna-
breytingar hafa orðið á sveitinni á
síðustu mánuðum. Bjarni Gríms
trommuleikari er farinn en í hans
stað var ráðinn Nói Steinn Einars-
son, áður úr Náttfara, Ampop og
Panorama. Einnig hefur hljómborðs-
l e i k a r i
N á t t f a r a ,
Andri Ás-
grímsson,
bæst aftur í
hópinn en
hann var í
upphaflegu
s k i p a n
Leaves.
Til þess
að koma
sér í spila-
form fyrir
væntanlegt
B a n d a -
ríkjaævin-
týri mun
L e a v e s
halda þrenna tónleika hér á landi í
byrjun júlí. Fyrst á Bar 11, þann 1.
júlí, svo á Gauki á Stöng tveimur
dögum síðar en eftir það halda lauf-
in til Akureyrar. ■
LEAVES
Svona er mannaskipan
Leaves í dag. (f.v.) Arnar
Guðjónsson söngur/gítar,
Hallur Hallsson bassi,
Andri Ásgrímsson á hljóm-
borð, Arnar Ólafsson gítar
og Nói Steinn Einarsson á
trommur. (Ljósmynd
Spessi)
Leaves:
Útgáfa í
Bandaríkjunum
Foo Fighters er á leiðinni tillandsins og heldur hér tónleika
í Laugardalshöll 26.
ágúst næstkom-
andi. Aðdáendur
Nirvana eru líkleg-
ast ánægðir með
þær fréttir því
Dave Grohl,
söngvari og gít-
arleikari, lék
með þeirri
merku sveit á
plötunum
„Nevermind“ og „In Utero“. Sam-
kvæmt fréttatilkynningu hefur
lengi staðið til að fá Foo Fighters
til landsins en miðasala hefst 18.
júlí í verslunum Skífunnar, kl.
10:00.
Tónleikar sígaunalúðrasveitar-innar Fanfare Ciocarlia sem
áttu að fara fram á Nasa í gær-
kvöldi verða þess í stað í kvöld.
Sveitin leikur hefðbundna balk-
neska tónlist sem ætti að hreyfa
við flestum þeim sem höfðu
gaman af tónleikum No Smoking
Band eða tónlistinni í myndinni
„Underground“. Húsið opnar
klukkan 20.
Nú þegar Kvikmyndin TheHulk tröllríður öllu og rakar
inn tugum milljóna dollara í
miðasölu er ein spurning um-
fram aðrar sem
brennur á vörum
fólks; af hverju
rifna nærbux-
urnar ekki utan
af Hulk þegar
hann stækkar
eins og öll hin
fötin hans? Dagblað
í Bretlandi spurði Eric Bana, að-
alleikara myndarinnar, að þessu.
Hann svaraði óðar: „Mér þykir
þessi staðreynd alveg jafn
stórfurðuleg og ykkur. Það hefur
þó augljóslega eitthvað með það
að gera að annars myndi gríðar-
stór grænn getnaðarlimur flygs-
ast um skjáinn, sem hefði gert
okkur það erfitt að frumsýna
myndina í tæpum 4.000 sölum.
Það var annars mikið talað um
þetta á tökustað, en ég vildi ekki
taka þátt í framvindu umræðu
um nákvæmnis- og heimspekileg
atriði málsins. Ég vík iðulega frá
mér ábyrgð af öllu tagi.“ Bana er
þekktur sem gamanleikari í
heimalandi sínu Ástralíu.