Fréttablaðið - 26.06.2003, Síða 29
ballslagara og rólegheit. Svo er
eitt rokklag sem ég á. Það er
skilgreint þannig út af því að
það er tvær og fjörutíu og hefur
bjagaðan gítar. Platan er breið
og spannar okkur svolítið enda
erum við ólíkir. Það eru tíu ár á
milli elsta og yngsta meðlims.
Við erum á mismunandi stöðum í
þroskaferlinu.“
Flest lögin eru eftir hljóm-
sveitina sjálfa en einnig er leitað
í lagabanka reyndari lagahöf-
unda. Þeir eru Magnús Þór Sig-
mundsson, sem á lagið „Einver-
an“, Sigurður Fannar Guð-
mundsson og Einar Bárðarson,
sem á þrjú lög, þar á meðal
næsta útvarpslagara sveitarinn-
ar, „Allt“. Á plötunni er einnig að
finna lögin „Drottningar“ sem
hefur fengið töluverða spilun á
FM957 og lagið „Keyrðu mig
heim“.
Aðdáendur sveitarinnar taka
líklegast eftir því að Magni hefur
látið hárið fjúka og ber skallann
stoltur eins og Bubbi. „Ég asnaðist
til þess að fá mér hanakamb og
þetta var eina leiðin til þess að ná
honum af. Nei, þetta er bara út af
því að ég er kominn með svo há
kollvik, þetta er miklu skemmti-
legra,“ segir Magni, heiðarlegur
að lokum.
biggi@frettabladid.is
FIMMTUDAGUR 26. júní 2003 29
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 MATRIX REL. kl. 10.10 b.i. 12
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 (Powersýning)
b.i. 12
Sýnd kl. 5.50 og 8 Sýnd kl. 6, 8 og 10
kl. 4, 6, 8 og 10ANGER MANAGEMENT
THEY kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 IDENTITY kl. 6, 8 og 10 b.i. 16
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Óskarsverðlaunaleikarinn SeanPenn hefur líka verið að bar-
dúsa ýmislegt í réttarsal, en hann
vann nýlega mál gegn framleiðand-
anum Steve Bing. Málið hófst þann-
ig að Penn kærði
Bing fyrir að
reka sig á þeim
forsendum að
hann léti opinber-
lega í ljós and-
stöðu sína við
stríðið í Írak. Fór
hann fram á um
720 milljónir í
skaðabætur. Bing
kærði þá á móti og
ásakaði Penn um að
reyna að fá peninga
fyrir hlutverk sem hann ætlaði
aldrei að taka að sér. Dómari sagði
kæruatriðið „tilraun til borgara-
legrar fjárkúgunar“ ekki til og
dæmdi því Penn í vil. Bing segir
enn fremur að stjarnan hafi brotið
loforð um að votta fyrir ágæti
handritsins svo Woody Allen tæki
verkefnið að sér.
Á MÓTI SÓL
Liðsmenn ákváðu að gefa
frekar út plötu í sumar en
að taka þátt í jólaplötuflóð-
inu. „Það eru færri sem
skyggja á mann. Maður
losnar við þessa hrikalegu
jólaplötugeðveiki og getur
gefið sér betri tíma í þetta.
Það er líka bara betri
stemning á sumrin.“