Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 12
Atvinnuleysi er alltaf grafal-varlegt,“ segir Hjálmar Árna-
son, formaður félagsmálanefnd-
ar Alþingis. „Allar rannsóknir
sýna að atvinnuleysi hefur eink-
ar slæm áhrif á alla. Því er eitt
það mikilvægasta sem til er að
grípa til aðgerða sem losa fólk
úr þeirri ánauð að sitja atvinnu-
laust.“
Að sögn Hjálmars er meginat-
riði þegar til lengri tíma er litið
að skapa forsendur til þess að
hér geti þróast og dafnað heil-
brigt atvinnulíf. „Það gerum við
annars vegar með því að halda
vel utan um ríkisfjármálin og
hins vegar með því að leggja
áherslu á nýsköpun á sem flest-
um sviðum, því það er í gegnum
menntun og nýsköpun sem störf-
um mun fjölga í framtíðinni.“
Aðspurður um aukinn hlut
ungs fólks meðal atvinnulausra
segir Hjálmar of fáa leita sér
starfsmenntunar. „Skólakerfið
hefur ef til vill ekki einblínt
nógu vel á mikilvægi starfs-
menntunar,“ segir Hjálmar.
Hann bendir auk þess á að ungt
fólk sem ekki hefur aflað sér
menntunar eigi minni möguleika
en þeir sem menntun hafa.
Hjálmar segir aðstæður lengi
vel hafa verið öðruvísi hér á
landi en í iðnríkjunum kringum
okkur. Á síðustu árum hafi þó
tæknivæðing verið að færast
yfir íslenskt atvinnulíf, ekki síst
í sjávarútvegi og landbúnaði.
„Þessi þróun kallar á vaxandi
áherslu á starfsmenntun,“ segir
Hjálmar. „Eðlileg viðbrögð við
fækkun starfa eru þau að róa á
önnur mið.“ ■
Stjórnir Verk- og Tæknifræð-ingafélaga Íslands skora á ís-
lensk stjórnvöld að veita ekki er-
lendum aðilum frá löndum utan
EES atvinnuleyfi án þess að ýmis
skilyrði séu uppfyllt.
„Það sem við undirstrikum í
fyrsta lagi er að athugað verði
hvort ekki sé hægt að leysa
verkefnin með því að ráða inn-
lenda verk- og tæknifræðinga,“
segir Steinar Friðgeirsson, for-
maður Verkfræðingafélag Ís-
lands. „Ef verið er að sækja um
atvinnuleyfi fyrir erlenda verk-
og tæknifræðinga gerum við auk
þess þá kröfu að þeir séu með
sambærilega menntun og bak-
grunn og verk- og tæknifræðing-
ar hér á landi og að um þá gildi
íslensk lög og reglur.“
Steinar segir félögin vakta að
menntunarbakgrunnur verk- og
tæknifræðinga sem starfa á Ís-
landi sé sambærilegur og að
sömu launakjör gildi fyrir þá
sem starfa hér á landi. „Við
bendum á að menn ættu fyrst og
fremst að kanna hvort til séu Ís-
lendingar með tilskylda mennt-
un,“ segir Steinar. Hann segir þó
atvinnuleysi meðal verk- og
tæknifræðinga ekki mikið, og
býst við að það sé líklega um 1%.
„Það eru heilmiklar fram-
kvæmdir framundan svo við lít-
um björtum augum á næstu ár,“
segir Steinar. ■
Meðalfjöldi atvinnulausra ímaí var 48% meiri en í maí í
fyrra, en atvinnulausir voru 3,6%
af áætluðum mannafla á vinnu-
markaði. Alls voru 5.798 manns á
atvinnuleysiskrá í lok maí og voru
talsvert fleiri konur en karlar án
atvinnu. Meðalfjöldi atvinnu-
lausra minnkaði þó um 3,8% milli
mánaðanna apríl og maí, sem er
meira en undanfarin ár. Atvinnu-
lausum konum fjölgaði þó í heild-
ina milli mánaða meðan atvinnu-
lausum körlum fækkaði talsvert.
Aukning atvinnuleysis kvenna
milli mánaða nær einskorðast við
höfuðborgarsvæðið og Suðurnes,
en atvinnuleysi kvenna minnkaði í
öllum öðrum landshlutum. Í lok
maí voru 2.034 konur skráðar at-
vinnulausar á höfuðborgarsvæð-
inu og fjölgaði um 17% á milli
mánaða. Aukning atvinnulausra
kvenna er þó fyrst og fremst með-
al námsmanna, en talsverður hóp-
ur kemur inn á skrá eftir að próf-
um lýkur í maí.
Langtímaatvinnulausum hefur
fjölgað stöðugt undanfarna mán-
uði, en fjöldi þeirra stóð þó í stað
nú milli mánaðanna apríl og maí.
Hlutfall þeirra sem verið hafa án
atvinnu í sex mánuði eða lengur
er þó mun stærra nú en á sama
tíma í fyrra. Fjöldi þeirra sem
verið hafa atvinnulausir í einn
mánuð eða skemur óx hins vegar í
síðasta mánuði, og hefur ekki ver-
ið meiri í mjög langan tíma.
Atvinnuleysi er mest á Suður-
nesjum, eða 4,6%. Þar er hlutfall
atvinnulausra hæst hjá báðum
kynjum, en athygli vekur að 6%
kvenna á Suðurnesjum eru án at-
vinnu. Atvinnuleysi er hins vegar
minnst á Vestfjörðum þar sem er
aðeins 1,8% atvinnuleysi.
Hlutur ungs fólks af heildar-
fjölda atvinnulausra hefur haldist
nokkuð stöðugur í kringum 30%
það sem af er árinu. Hlutur ungs
fólks af heildarfjölda atvinnu-
lausra hefur þó sífellt verið að
aukast síðustu árin, en árið 2001
var hann aðeins 21%.
Þegar ólíkar starfsgreinar eru
skoðaðar kemur í ljós að hlutfalls-
legt atvinnuleysi er mest í hótel- og
veitingahúsarekstri. Hlutfallslegt
atvinnuleysi hefur minnkað í flest-
um greinum iðnaðar, að fiskvinnsl-
unni undanskilinni þar sem hlut-
fallslegt atvinnuleysi er mjög hátt.
Mikið atvinnuleysi er meðal
þjónustustétta og í ýmsum grein-
um þjónustunnar er atvinnuleysi
nú meira en það var þegar al-
mennt atvinnuleysi var mest nú í
vetur.
helgat@frettabladid.is
ÞRÓUN ATVINNULEYSIS MAÍ 2001 TIL MAÍ 2003
Meira atvinnuleysi hefur mælst nú í ár en síðustu árin.
2001 2002 2003
maí
1,6
jún
1,2
júl
1,1
ágú
1,1
sep
1,0
okt
1,2
nóv
1,5
des
1,9
jan
2,4
feb
2,6
mar
2,7
apr
2,6
maí
2,5
jún
2,3
júl
2,3
ágú
2,2
sep
2,2
okt
2,5
nóv
2,8
des
3,0
jan
3,8
feb
4,1
mar
4,0
apr
3,9
maí
3,6
14 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR
Formaður félagsmálanefndar segir atvinnuleysi grafalvarlegt:
Menntun og nýsköpun fjölga störfum
ATVINNULEYSI
EFTIR
LANDSHLUTUM
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Atvinnulausir á höfuð-
borgarsvæðinu í maí
voru 3.655 eða 4,0%
af áætluðum mannafla.
Atvinnuleysið minnkaði um
eitt prósent frá því í apríl. Atvinnulaus-
um körlum fækkaði nokkuð en at-
vinnulausum konum fjölgaði. Að með-
altali búa 69% atvinnulausra á höfuð-
borgarsvæðin.
VESTURLAND
Atvinnuleysi á Vestur-
landi var 2,6% í maí
en 187 manns voru þá
án atvinnu. Atvinnuleysi
kvenna stóð í stað milli mánaðanna
apríl og maí meðan atvinnulausum
körlum fækkaði.
VESTFIRÐIR
Minnst atvinnuleysi á
landinu er á Vestfjörð-
um en þar voru 74 án
atvinnu í maí. Atvinnu-
lausum fækkaði lítillega milli mánað-
anna apríl og maí, eða um sex karla og
eina konu.
NORÐURLAND VESTRA
113 voru atvinnulausir
á Norðurlandi vestra í
síðasta mánuði. Það er
2,5% af mannafla, sem
er nokkru minna en í apríl.
Þá var atvinnuleysi 2,7%.
NORÐURLAND EYSTRA
Fjöldi atvinnulausra á
Norðurlandi eystra í
maí var 449 og er það
3,4% af mannafla. 208
karlar voru án atvinnu og
241 kona.
AUSTURLAND
Atvinnulausum á Aust-
urlandi fækkaði um 49
milli mánaðanna apríl
og maí og nú eru 449 á
atvinnuleysiskrá. 3,9% kvenna er án at-
vinnu en aðeins 1,9% karla.
SUÐURLAND
Atvinnulausum af báð-
um kynjum fækkaði
milli mánaðanna apríl
og maí á Suðurlandi, en
í maí voru 2,5% mann-
afla án atvinnu. Atvinnulausum konum
fækkaði meira en atvinnulausum körl-
um.
SUÐURNES
Mesta atvinnuleysið á
landinu er á Suður-
nesjum. Þar er 4,6%
mannafla á atvinnuleys-
isskrá, mun fleiri konur en karlar. At-
vinnulausar konur á Suðurnesjum eru
nú 210 og atvinnuleysi mælist 6%. ■
Atvinnuleysi kvenna eykst
Atvinnulausir í maí voru 3,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysi er
meira meðal kvenna en karla og jókst fjöldi atvinnulausra kvenna milli mánaða bæði á
höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Ungt fólk er þriðjungur af heildarfjölda atvinnulausra.
ATVINNULEYSI EFTIR LANDSHLUTUM
Atvinnuleysi mælist mest á Suðurnesjum en minnst á Vestfjörðum.
Konur - atvinnuleysi í %
Alls: 4,0%
Höfuðborgarsvæðið
Karlar - atvinnuleysi í %
4,4
3,7
3,3
2,1
1,1
2,6
2,3
4,3
2,7
3,9
1,9
3,2
1,9
6,0
3,7
2,9
Alls: 2,6%
Vesturland
Alls: 1,8%
Vestfirðir
Alls: 2,5%
Norðurland vestra
Alls: 3,4%
Norðurland eystra
Alls: 3,9%
Austurland
Alls: 2,5%
Suðurland
Alls: 4,6%
Suðurnes
ATVINNULEYSI Í MAÍ 1994-2003
Atvinnuleysi hefur verið að aukast síðustu árin, en er þó minna en árin1994-1997.
Konur - atvinnuleysi í %
Karlar - atvinnuleysi í %
1994
6,2
1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003
6,4
6,1 6,0
4,0
2,7
2,1 2,2
3,0
4,2
3,8
4,4
3,5
2,9
1,9
1,3
1,0 1,1
2,1
3,2
FRAMKVÆMDIR VIÐ KÁRAHNJÚKA
Verk- og Tæknifræðingafélög Íslands skora á stjórnvöld að verk- og tæknifræðingar frá
löndum utan EES fái ekki atvinnuleyfi hér á landi nema þeir hafi sambærilega menntun
og innlendir verk- og tæknifræðingar hér á landi.
Verkfræðinga- og Tæknifræðingafélög Íslands:
Sömu lög og reglur gildi fyrir alla
HJÁLMAR ÁRNASON
Formaður félagsmálanefndar segir megin-
atriði þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi
að halda vel utan um ríkisfjármálin og
leggja áherslu á nýsköpun.
ATVINNU-
MÁL