Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 30
3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR Ég stend mig að því kvöld eftirkvöld að gleyma að kveikja á sjónvarpinu. Ekki einu sinni fréttatímar megna að draga mig að tækinu til að þrýsta á hnapp- inn. Það kemur þó fyrir að ég kveiki og horfi með öðru auganu og síðan fer framhaldið fyrir ofan garð og neðan. Sumarið er tími pokketbókanna og fátt skemmtilegra en kaupa sér eina um leið og fríið byrjar og þurfa ekki að velta fyrir sér hvort það er dagur eða nótt. Bara lesa þangað til á síðustu síðu. Ekki er þar með sagt að ég hafi ekkert horft á sjónvarp því Stöð tvö byrjaði í síðustu viku á að sýna þátt um eiginkonur fótbolta- manna sem lofar góðu. Ég datt óvart inn í fyrsta þáttinn og eyru og augu spenntust um leið þegar ég sá hvað gekk á hjá þessu bless- aða fólki. Í rauninni eru fótbolta- menn sjaldgæft umfjöllunarefni í kvikmyndum og leiknum sjón- varpsþáttum. Kvikmyndahandrit um aðrar stéttir eru greinilega að- gengilegri yrkisefni. Mér finnst þetta hins vegar tilvalið efni og enn trúverðugra er að þátturinn er breskur. Ef einhverjir hafa for- sendurnar eru það Bretar. Önnur saga er hvort þættirnir eru raunsannir. Mér finnst það líka gott hjá Stöð 2 að endursýna svona fram- haldsþætti eins og ég sá að þeir gerðu á mánudagskvöldið. Ríkis- sjónvarpið mætti gera meira af því að endursýna seint á dag- skránni vinsæla framhaldsþætti. Einkum og sér í lagi þar sem Skjár 1 hefur komið manni upp á lagið. Fátt annað er bitastætt hjá sjón- varpsstöðvunum þessa dagana. Mér finnst það svo sem ágætt og tek undir orð kollega minna sem eru á því að sjónvarp eigi beinlínis að vera leiðinlegt á sumrin. ■ Við tækið BERGLJÓT DAVÍÐSDÓTTIR ■ er á því að það sé beinlínis skylda sjónvarpsins að vera leiðinlegt á sumrin og megnar varla að kveikja á fréttatíman- um á kvöldin Eiginkonur fótboltamanna 18.00 Minns du sången 18.30 Joyce Meyer 19.00 Life Today 19.30 Miðnæturhróp 20.00 Kvöldljós 21.00 Freddie Filmore 21.30 Joyce Meyer 22.00 700 klúbburinn 22.30 Joyce Meyer Með áskrift að stafrænu sjón- varpi Breiðbandsins fæst aðgangur að rúmlega 40 erlendum sjónvarpsstöðvum, þar á meðal 6 Norðurlanda- stöðvum. Nánari upplýsingar um áskrift í síma 800 7000. 18.30 Western World Soccer Show (Heimsfótbolti West World) 19.00 Pacific Blue (5:22) (Kyrra- hafslöggur) Aðrir lögregluþjónar líta nið- ur á Kyrrahafslöggurnar vegna þess að þær þeysast um á reiðhjólum í stað kraftmikilla glæsibifreiða. Allar efasemda- raddir eru þó þaggaðar niður þegar lögg- urnar þeysast á eftir glæpamönnum á rándýrum ferðamannaströndum Kaliforn- íu og koma þeim á bak við lás og slá. 20.00 US PGA Tour 2003 (Buick Classic) 21.00 European PGA Tour 2003 (Open De France) 22.00 Kraftasport (Sterkasti maður Ís- lands) Fyrri hluti. 22.30 Football Week UK (Vikan í enska boltanum) 23.00 HM 2002 (Slóvenía - Paragvæ) 0.45 Wide Sargasso Sea (Hafrót) Hrífandi ástarsaga byggð á skáldsögu Jean Rhys. Bönnuð börnum. 2.20 Fastrax 2002 (Vélasport) Hrað- skreiður þáttur. 2.50 Dagskrárlok og skjáleikur 6.58 Ísland í bítið 9.00 Bold and the Beautiful 9.20 Í fínu formi 9.35 Oprah Winfrey 10.20 Ísland í bítið 12.00 Neighbours (Nágrannar) 12.25 Í fínu formi (Þolfimi) 12.40 Dharma & Greg (6:24) 13.00 The Guardian (8:22) 13.45 American Dreams (13:25) 14.25 Tónlist 14.45 Smallville (19:23) 15.30 Star Trek: The Motion Picture 17.40 Neighbours (Nágrannar) 18.05 Seinfeld (5:5) 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður 19.30 Friends 5 (17:23) (Vinir) 20.00 Jag (3:25) (True Callings) 20.50 Third Watch (16:22) 21.35 Oz (8:16) (Öryggisfangelsið) 22.30 Dead Simple (Sáraeinfalt) Kald- hæðin gamanmynd um gistihúsaeiganda í Kansas sem veit ekki sitt rjúkandi ráð. Frank, sem dreymir um að syngja kán- trílög, býr með eiginkonu sem gerir lítið úr honum. Til að bæta gráu ofan á svart gerir ókunnug kona sig heimakomna á gistihúsinu. Aðalhlutverk: Daniel Stern, James Caan, Patricia Richardson, Lacey Kohl. 2000. Stranglega bönnuð börnum. 0.05 Shadow of Doubt (Óvissuvottur) Kitt Devereux er vel þekktur lögfræðingur í Los Angeles sem hefur fengið frama vegna dómsmála sem hafa fangað at- hygli almennings og verið blásin upp í fjölmiðlum. Eftir að hafa fengið meintan morðingja sýknaðan fer hún að efast um réttlætið og ákveður að einbeita sér að því að verja hvítflibbaglæpamenn. Aðal- hlutverk: Melanie Griffith, Tom Berenger. 1998. Stranglega bönnuð börnum. 1.45 Friends 5 (17:23) (Vinir) 2.05 Ísland í dag, íþróttir, veður 2.35 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí 6.00 Rugrats in Paris: The Movie 8.00 Josie and the Pussycats 10.00 Running Free 12.00 Doctor Dolittle 2 14.00 Rugrats in Paris: The Movie 16.00 Josie and the Pussycats 18.00 Running Free 20.00 Doctor Dolittle 2 22.00 Consenting Adults 0.00 House on Haunted Hill 2.00 Prophecy II 4.00 Consenting Adults 7.00 70 mínútur 16.00 Pikk TV 19.00 XY TV 20.00 Pepsí listinn 22.03 70 mínútur 23.10 Trailer 23.40 Meiri músík Skjár Einn 22.20 Sjónvarpið 20.00 Sjónvarpið sýnir í kvöld athygl- isverða breska heimildarmynd um undirföt og sögu þeirra. Allt frá því að Adam og Eva huldu nekt sína með fíkjublaðinu hafa undirföt í einhverri mynd fylgt mannkyninu. Langbrækur, líf- stykki, kýlar og krínólín og hvað það allt heitir. Lengst af höfðu nærklæðin fyrst og fremst það hlutverk að skýla berandanum en í seinni tíð eru þau orðin rándýr tískuvara og oft á tíðum ekki ætlast til að konur séu í öðru utan yfir þeim. Í myndinni róta ofurfyrirsæturnar Caprice og Eva Herzigova og fleiri í und- irfataskúffum sögunnar og draga þaðan upp flíkur sem eiga sér forvitnilega sögu. 18.30 Traders (e) 19.30 The Dead Zone (e) 21.00 The King of Queens Arthur kveikti í húsinu sínu og situr nú uppi á Carrie dóttur sinni og Doug eiginmanni hennar. 21.30 Hljómsveit Íslands - Gleðisveit Ingólfs 22.00 Hjartsláttur á ferð og flugi Þóra Karítas og Mariko mæta aftur í fullu fjöri á skjáinn í sumar með þáttinn Hjartslátt á ferð og flugi. Stelpurnar hafa sagt skilið við strætóinn í bili og hefja sig nú til flugs með Flugfélagi Íslands; í sumar er landið allt undir! Tekinn verður púlsinn á því sem verður að gerast á Íslandinu bláa í sumar og hver veit nema þær kíki líka eitthvað út fyrir landsteinana. Spjallað verður við þjóðþekkta Íslendinga í bland við óþekkta áhugaverða einstaklinga sem eru að bralla eitthvað sniðugt. 22.50 Jay Leno 23.40 Law & Order (e) Lennie Briscoe er töffari af gamla skólanum, lögga sem kallar ekki allt ömmu sína. Hann vinnur með hinum geðuga Reynaldo Curtis við að rannsaka glæpi, yfirheyra grunaða og herja á illmenni út um borg og bý. Jack McCoy saksóknari og aðstoðarmenn hans vinna síðan úr málunum, sækja hina grunuðu til saka og reyna að koma þeim í fangelsi. 0.30 Dagskrárlok 16.45 Bikarkvöld Endursýndur þáttur frá miðvikudagskvöldi. 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Franklín (11:13) (Franklin) Teiknimyndasyrpa um skjaldbökustrákinn Franklín. 18.30 Stórfiskar (7:13) (The Big Fish)Þáttaröð um stórfiskaveiðar. 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið 20.00 Nærklæði fyrr og nú (Brief Encounters) Bresk heimildarmynd um undirföt og sögu þeirra. 20.50 Heima er bezt (1:4) Kokkarnir Arnar og Jón Rúnar kenna áhorfendum réttu handtökin við grillið. Framleiðandi: Saga film. 21.15 Lögreglustjórinn (8:22) (The District) Sakamálasyrpa um Jack Mannion, hinn skelegga lögreglustjóra í Washington, sem stendur í ströngu í bar- áttu við glæpalýð og við umbætur innan lögreglunnar.Aðalhlutverk: Craig T. Nel- son, John Amos, Jayne Brook og Justin Theroux. 22.00 Tíufréttir 22.20 Frasier (2:24) e. 22.45 Beðmál í borginni (2:26) Bandarísk gamanþáttaröð. e. 23.15 Af fingrum fram (8:24) e. 23.55 Kastljósið e. 0.15 Dagskrárlok Í þáttunum um Hljómsveit Ís- lands, eða Gleðisveit Ingólfs, er fylgst með Ingólfi umboðsmanni koma meðlimum Gleðisveitar- innar í fremstu röð sveitaballa- hljómsveita og vera snöggur að því! Ingólfur fær tæpt sumar til að gera strákana fræga og í þáttunum, sem eru nokkurs konar blanda af heimildar- og skemmtiþáttum, verður fylgst með því hvaða aðferðum hann beitir. Gleðisveitinni verður fylgt eftir á ferðum sínum um landið í leit að frægð og frama og áhorf- endur sjá með eigin augum hvernig óþekkt bílskúrsband breytist í hljómsveit Íslands! Hljómsveit Íslands Nærklæði fyrr og nú 32 ■ Ríkissjónvarpið mætti gera meira af því að endursýna seint á dagskránni vinsæla fram- haldsþætti. SJÓNVARP Áhorfendur fyrsta raun- veruleikasjónvarpsþáttar Afríku brá heldur í brún á dögunum þeg- ar tveir þátttakendur gerðu sér lítið fyrir og sváfu saman með myndavélarnar í gangi. Þátturinn heitir Big Brother Africa og er byggður upp á sama hátt og Big Brother þættirnir í öðrum lönd- um. Það er að segja þátttakendur frá tólf löndum í Afríku búa sam- an í húsi þar sem myndavélar eru við hvert fótmál. Þátttakendurnir hafa verið óvenju fjörugir, miðað við að fylgst er með þeim, og lítið annað sést á skjánum nema drykkja, bikini, allsbert fólk í sturtu, kossaflens og daður. Þetta mun þó vera í fyrsta skipti sem þátttakendur í raunveruleikasjón- varpsþætti fara alla leið. Þátttakendurnir sem koma frá Suður-Afríku, Namibíu, Botswana, Angola, Úganda, Tanz- aníu, Ghana, Nígeríu, Malawi og Kenýu eru af nokkrum kynþáttum og flestir vel menntaðir. Sjón- varpsstöðin valdi fólk sérstaklega eftir fjölbreytileika í von um að brjóta þá stöðluðu ímynd sem Vesturlandabúar hafa af íbúum heimsálfunnar. Framleiðendum datt þó ekki í hug að þeir hefðu dottið inn á jafn opinn og fjörugan hóp. Kynlíf er mikið feimnismál hjá sumum löndum Afríku, sérstak- lega í Úganda. Þar í landi voru miklar blaðaskriftir út af atvikinu og meðal annars sagt í greininni að „aðeins hundar ættu að eðla sig í almenningi“. ■ Þátttakendur í Big Brother Africa: Ástarleikir í raun- veruleikaþætti BIG BROTHER AFRICA Er nú næst vinsælasti þáttur heimsálfunn- ar. Mikið umdeildur enda kynlíf mikið feimnismál í nokkrum samfélögum Afríku. Afgreiðsla Herjólfs í Vestmannaeyjum, sími 481 2800 ar gu s - 03 -3 15 Í tilefni af Goslokahátíð í Vestmannaeyjum 3.–6. júlí bjóða Samskip þér í skemmtisiglingu um hið heillandi Eyjasvæði laugardaginn 5. júlí. Lagt er frá Básaskersbryggju kl. 16.30 og tekur siglingin röska klukkustund. Á leiðinni veitir sögufróður Eyjamaður innsýn í töfraheim og náttúru svæðisins. Goslokatilboð verður á ýmsum freistandi veitingum. Laust er fyrir farþega í ferðir með Herjólfi á milli lands og Eyja á Goslokahátíðina! Má bjóða þér í skemmtisiglingu um Eyjarnar með Herjólfi? MAMBO TÍSKUVERSLUN ÚTSALA Hefst á föstudaginn 4. júní 40-80% afsláttur Tískuverslunin í Firðinum, Hafnarfirði, sími 5442044

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.