Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 13
15FIMMTUDAGUR 3. júlí 2003
Eflum Háskóla Íslands í verki.
Happdrætti Háskóla Íslands
Vinningar streyma út
Nú þegar eru þrír á 100 þúsund króna launum á mánuði í 10 ár
eftir að hafa skafið af Launamiðanum. Launin eru skattfrjáls.
Miðarnir voru seldir í:
Snæland Videó, Núpalind, Kópavogi
Ríkinu á Snorrabraut, Reykjavík
Steininum, Neskaupstað.
Þar að auki hafa fjölmargir fengið smærri vinninga á Launamiðanum,
þar af þrír einnar milljónar króna vinning. Þeir miðar voru seldir í:
Lukkusmáranum, Kópavogi
Hagkaupum Skeifunni, Reykjavík
Bláhorninu, Kópavogi.
Alls fengu skafarar Happaþrennunnar 59 milljónir
króna á árinu 2002!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
6
9
0
5
Ástandið nú er að sumu leytióvenjulegt,“ segir Ingunn S.
Þorsteinsdóttir, hagfræðingur hjá
ASÍ. „Við sjáum að atvinnuleysi hjá
konum eykst mjög mikið, sérstak-
lega á höfuðborgarsvæðinu.“ Ing-
unn segir ýmsar ástæður geta leg-
ið þar að baki. „Aðgerðir stjórn-
valda gegn atvinnuleysi virðast til
að byrja með fyrst og fremst bein-
ast að karlmönnum, en hafa minna
skilað sér til kvenna,“ segir hún.
Ingunn er þó bjartsýn á að dragi
úr atvinnuleysi þegar líða tekur að
hausti. „Við höfum tekið eftir að
einkaneyslan hefur aukist, sem er
óbein afleiðing af jákvæðara hug-
arfari vegna aðgerða ríkisstjórnar-
innar,“ segir hún. „Það mun skila
sér í aukinni eftirspurn eftir þjón-
ustu og þá batnar ástandið í versl-
unar- og þjónustugeiranum, þar
sem konur eru í meirihluta.“ Ing-
unn nefnir einnig að áhrif Kára-
hnjúkavirkjunar á hagkerfið komi
senn í ljós.
Ingunn lýsir þó yfir áhyggjum
af atvinnuástandinu nú og sérstak-
lega þeirri staðreynd að atvinnu-
leysi meðal ungs fólks hefur verið
að aukast. „Okkur hjá Alþýðusam-
bandinu finnst þetta allt of mikið
atvinnuleysi,“ segir hún og nefnir
að ASÍ hafi í undirbúningi vinnu
varðandi stefnumótun félagsins í
atvinnu- og byggðamálum. „Þar
leggjum við áherslu á að skapa
störf og vera með uppbyggjandi
stefnu varðandi atvinnulífið,“ segir
hún. „Það gerum við til dæmis með
nýsköpun og öðru í þeim dúr.“ ■
INGUNN S. ÞORSTEINSDÓTTIR
Hagfræðingur hjá ASÍ segir aðgerðir
stjórnvalda fyrst og fremst beinast að
karlmönnum til að byrja með og hafi
minna skilað sér til kvenna.
Atvinnuleysi of mikið að mati ASÍ:
Óvenjulegt ástand í atvinnumálum
VÍRASPLÆSINGAR
Þessir menn höfðu í nógu að snúast við vírasplæsingar á Reykjavíkurhöfn.
fr
ét
ta
b
la
ð
ið
/v
ilh
el
m