Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 18
FÓTBOLTI David Beckham er kominn
til Madrid og sannkallað Beckham
æði hefur gripið um sig í borginni.
Fleiri hundruð blaðamanna sitja
um hvert hans fótmál þrátt fyrir að
stjórn Real Madrid hafi gefið út þá
yfirlýsingu að Beckham muni ekki
ræða við blaðamenn í þessari ferð.
Spænsku íþróttablöðin fara ekki
varhluta af æðinu sem hefur gripið
um sig. Átta síður á dag hafa verið
tileinkaðar Beckham undanfarna
viku í Marca, þar sem hverju and-
artaki í lífi hans eru gerð góð skil.
Yfir 400 erlendir blaðamenn hafa
fylgt Beckham eftir síðan hann
lenti í borginni en þessi fjöldi er
tvöfalt meiri en þegar Ronaldo,
sem þá var nýkrýndur heimsmeist-
ari með Brasilíu, skrifaði undir
sinn samning á síðasta ári. Frétta-
mannaskáli liðsins réð ekki við
fjöldann og því var atburðurinn
færður annað.
Treyju númer 23 fékk Beck-
ham úr höndum hins aldna Al-
fredo Di Stéfano sem er ein mesta
knattspyrnuhetja Spánverja fyrr
og síðar.
Þungvopnaðir lífverðir fylgja
Beckham við hvert fótmál og
miklar öryggisráðstafanir hafa
verið gerðar hvar sem hann stígur
niður fæti. Real Madrid ætlar
greinilega að passa vel upp á
þessa rúmlega tveggja milljarða
króna fjárfestingu sína.
„Að spila með þessu liði hefur
verið draumur lengi,“ sagði Beck-
ham á heimasíðu félagsins.■
20 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR
■ Fótbolti
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
30 1 2 3 4 5 6
MARS
Föstudagur
Sannkallað Beckham æði gripið um sig í Madrid:
Orðinn leikmaður númer 23
KÖRFUBOLTI Jóni Arnóri Stefánssyni
var mikill heiður sýndur þegar
bandaríska körfuknattleiksliðið
Dallas Mavericks bauð honum til
sumarbúða með félaginu í sumar
því venjan er sú að tilvonandi leik-
menn verða að taka þátt í úrtöku-
móti áður en til slíks kemur.
Jón mun spila fimm leiki með lið-
inu ef allt gengur eftir en hann hef-
ur átt við smávægileg meiðsli að
stríða að undanförnu. Hann mun þó
að líkindum spila með sameiginlegu
liði frá Skandinavíu á sterku æf-
ingamóti í Texas um helgina.
„Þetta er stórt skref fyrir ís-
lenskan leikmann að komast þetta
langt,“ sagði Pétur Guðmundsson
sem lék áður fyrr í NBA. „En þetta
er einungis fyrsta hindrunin. Ef vel
gengur þarna þá verður honum boð-
ið í næstu búðir í haust og svo enn
aðrar áður en tímabilið hefst. Þetta
er löng og erfið leið en það er fyrir
öllu að hann er í sviðsljósinu á með-
an. Önnur félög gætu komið auga á
hann og ákveðið að hann væri mað-
urinn sem þau vantar. Þannig að
jafnvel þó að Dallas sé að bjóða hon-
um til Boston á mótið er alls ekkert
víst að hann endi hjá því félagi ef
allt gengur vel.“
Jón Arnór hefur sjálfur sagt að
mörg evrópsk félög hafi verið í
sambandi við hann að undanförnu
og hann kvíði því ekki ef þetta leiði
ekki til neins.
Pétur leggur samt áherslu á að
Jón fari varlega eftir meiðslin sem
hrjáð hafa hann um skeið. „Hann á
að vera orðinn góður eftir upp-
skurðinn fyrir fimm vikum en hing-
að til hefur hann ekkert spilað og
það er ákveðið áhyggjuefni ef hann
fer svo á fullt núna.“
Lið Dallas Mavericks hefur nú
um skeið náð sérstöðu á meðal liða í
hinni sterku NBA deild vegna vilja
þeirra og áhuga á að þróa efnilega
leikmenn og liðið hefur uppskorið
ríkulega vegna þessa. Skærustu
stjörnur liðsins eru Steve Nash,
Shawn Bradley, Michael Finley og
þjóðverjinn Dirk Nowitzki.
albert@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Í liðinu eru fimm
Argentínumenn, einn frá Malí og
þrír Kamerúnar með armensk
vegabréf. Kamerúnarnir kepptu
með Armeníu hér á landi í fyrra
í undankeppni Evrópumóts U17
landsliða. Þjálfarinn er Rúmeni.
Ég er með bók fyrir framan mig,
með 16 blaðsíðum af minnisp-
unktum,“ sagði Sigurður Helga-
son, framkvæmdastjóri KR-
Sport hf., sem fór til Armeníu
um helgina til að afla upplýsinga
um Pyunik, mótherja KR í und-
ankeppni Meistaradeildar Evr-
ópu.
„Pyunik spilaði með þriggja
manna vörn, fjögurra manna
línu þar fyrir framan - tvo væng-
bakverði og tvo sitjandi miðju-
menn. Síðan voru tveir sóknar-
menn fyrir aftan senterinn.
Hægri kantmaðurinn var mjög
góður, eldfljótur leikmaður. Á
miðjunni var einn 16 ára en það
kom einn argentínskur leikmað-
ur inn fyrir hann og fór allt spil í
gegnum Argentínumanninn.
Jafnframt léku þeir með tvo
framherja eftir það. Undir lok
leiksins voru fimm argentínskir
leikmenn inná.
Leikurinn fór fram á Repu-
blican Stadium, 16 þúsund
manna velli, sem er líka heima-
völlur landsliðsins. Þeirra völl-
ur er ekki ósvipaður okkar velli
og tekur um þúsund manns í
sæti.“ ■
16.45 RÚV Bikarkvöld (e).
18.30 Sýn Western World Soccer
Show. Heimsfótbolti West World.
20.00 KR-völlur KR og FH leika í
Landsbankadeild kvenna.
20.00 Sýn US PGA Tour 2003.
21.00 Sýn European PGA Tour
2003 (Open De France).
22.00 Sýn Kraftasport. Sterkasti
maður Íslands.
DAVID BECKHAM
Stóðst læknisskoðun og verður leikmaður
númer 23 hjá stórliðinu.
PÉTUR GUÐMUNDSSON
Þekkir betur en flestir hversu erfitt er að
komast í bandarísku atvinnumannadeild-
ina.
Stórt skref fyrir
íslenskan leikmann
Jón Arnór Stefánsson hefur þáð boð Dallas Mavericks úr bandarísku NBA deildinni
um að taka þátt í móti með þeim í júlí. Þetta er frábært tækifæri fyrir efnilegan leikmann
frá Íslandi en þetta mót er einungis fyrsta hindrunin á langri leið inn í sjálfa NBA deildina.
UNDANKEPPNI MEISTARADEILDAR
KR-ingar leika gegn armenska félaginu
Pyunik í undankeppni Meistaradeildar Evr-
ópu eftir tvær vikur.
Pyunik Jerevan:
Fimm Argentínumenn
og fjórir frá Afríku
BECKHAM OG DI STEFANO
David Beckham, nýjasta stjarna Real Ma-
drid, og Alfredo di Stefano, ein skærasta
stjarna félagsins á sjötta og sjöunda ára-
tugnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Valencia hefur gert tilboð íRoy Makaay sóknarmann
Deportivo sem hljóðar upp á
rúmlega 1.3 milljarð króna og
hinn sókndjarfa Kily Gonzales.
Forráðamenn Valencia hafaeinnig tilkynnt nýjum forseta
Barcelona að Pablo Aimar og Ro-
berto Ayala séu ekki falir fyrir
minna en 2.6 milljarða íslenskra
króna en Barcelona telur það
verð of hátt og vill afslátt.
Middlesbrough hefur lagtfram tilboð í David Dunn
hjá Blackburn rétt í þann mund
sem Birmingham var að ganga
frá kaupum í kappann. Dunn
vill fara frá Blackburn vegna
missættis við Greame Souness
knattspyrnustjóra liðsins.
Knattspyrnulið Chelsea semEiður Guðjohnsen leikur
með hefur skipt um eigendur í
stærstu yfirtöku sem sögur
fara af í breska knattspyrnu-
heiminum. Nýr eigandi er rúss-
neskur kaupsýslumaður.