Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 26
28 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR METALLlCA TÓNLIST Árið 1991 varð Metallica stærsta þungarokksveit heims. Upp frá því hefur sveitin reynt að halda í vinsældir sínar með minnkandi árangri. Metnaðurinn sem var lagður í nýju plötuna er því mikið ánægju- efni. Munu þeir halla aftur bökum eða standa áfram uppréttir í end- urreisn sinni? Þegar saga Metall- icu er skoðuð kemur glögglega í ljós að hér eru engir letingjar á ferð. Gríðarlegar vinsældir þeirra í upphafi síðasta áratugar voru engin tilviljun, heldur af- rakstur margra ára erfiðis. Við skulum vona að þeir séu endan- lega búnir að hrista af sér slenið. Engan glamúr, takk! Metallica var stofnuð í Los Angeles árið 1982 af söngvaranum og gítarleikaranum James Hetfi- eld, trommaranum Lars Ulrich og bassaleikaranum Ron McGovney. Þeir auglýstu eftir gítarleikara í dagblaði og Dave Mustaine svar- aði. Hann deildi andúð Hetfield og Ulrich á glamúrþungarokksveit- um L.A. og ást þeirra á klassískum þungarokksböndum á borð við Black Sabbath, Thin Lizzy og Aerosmith. Einnig heilluðust þeir allir af nýrri bylgju breskra þungarokksbanda á borð við Judas Priest, Iron Maiden, Motorhead, Diamond Head, Venom, Saxon og Angel Witch. Þessar sveitir lögðu allan metnað sinn í tónlistina, en ekki útlit eða glamúr. Fljótlega varð stofnliðsmönn- um ljóst að samstarfið við bassa- leikarann Ron McGovney gekk ekki upp og komu þeir sér í sam- band við bassaleikarann Cliff Burton eftir að hafa séð hann á sviði með þáverandi sveit sinni Trauma. Burton tók vel í tilboðið en sagðist ekki ætla að ganga í sveitina nema hún færði sig um set frá L.A., þar sem ekkert var að ganga, yfir til San Francisco þar sem öllu blómlegri þungarokks- sena var í burðarliðnum. Ulrich, Hetfield og Mustaine höfðu engu að tapa og slógu til. Á meðan flestar þunga- rokksveitir á upphafsárum ní- unda áratugarins voru með sótt- hreinsaðan hljóm, útataðar í farða, í teygjubuxum með blásið hár voru liðsmenn Metallicu skítugir, í götóttum gallabuxum, með ógreitt sítt hár og léku rusl- aralegri og þyngri metal. Þeir kærðu sig lítið um meginstraum- inn og höfðu andúð á ímynd og myndböndum þungarokksveita. Menn voru gefnir fyrir flöskuna og þótti Mustaine duglegastur við að súpa. Metallica kemst á skrið Stíft tónleikahald í San Francisco færði sveitinni traust- an aðdáendahóp og eftir að prufu- upptökur þeirra, sem þeir gáfu út á kassettu undir nafninu No Life Til Leather, tók að seljast vel á tónleikum var sveitinni boðinn samningur hjá Megaforce útgáf- unni. Upptökur á fyrstu breiðskíf- unni áttu svo að fara fram í New York en lifnaðarhættir Mustaine voru byrjaðir að fara verulega í taugarnar á hinum. Einhvers stað- ar höfðu þeir heyrt af gítarleikar- anum Kirk Hammett og var hann boðaður í prufu. Eftir að hafa tek- ið einn umgang í gegnum lagið Seek & Destroy var honum boðin staðan og Mustaine sparkað. Dave Mustaine fór heim til Arizona í fýlu og segir sagan að hann hafi fengið vitrun í rútunni á leiðinni heim og lagt hugmynda- grunninn fyrir Megadeath, sem hann sló síðar í gegn með. Fyrsta plata Metallica, Kill ‘Em All, spurðist vel út og sveitin gerði stóran upptökusamning við Elektra sem keypti einnig útgáfu- réttinn á frumrauninni. Með inn- komu Hammetts þróaðist sveitin út í melódískari áttir enda piltur- inn afar flinkur. Þessi nýja stefna sinfóníutóna kom strax í ljós á annarri plötunni, Ride the Lightn- ing sem kom út árið 1984. Yfir- burðir þeirrar plötu yfir frumrauninni voru miklir. Metall- ica seldi strax slatta af plötum, þrátt fyrir að komast hvergi að hjá meginstraumsútvarpsstöðv- um. Burton deyr Þriðja breiðskífa Metallicu, Master of Puppets, kom út tveimur árum síðar og þótti enn betri en önnur platan. Hún rauk beint inn á topp 30 í Bandaríkj- unum og náði gullplötusölu, aftur án þess að fá nokkra aðstoð frá útvarps- eða sjónvarpsstöðvum. Sveitin var á allra vörum og var boðið í heljarinnar tónleikaför um Bandaríkin með Ozzy Osbo- urne. Gleðin var mikil innan sveitarinnar og hún fylltist metnaði. Næst átti að leggja Evr- ópu að fótum sér þar sem eftir- spurn hafði farið stigvaxandi með hverri plötunni. Sú ferð reyndist þeim dýrkeypt. Þann 27. september 1986 valt hljómsveitarrúta Metallicu í Sviðþjóð með þeim hræðilegu af- leiðingum að bassaleikarinn Cliff Burton lést. Harmi slegnir ákváðu Ulrich, Hetfield og Hammett að halda áfram. Þeir auglýstu strax eftir nýjum bassaleikara og var Metallicu að- dáandinn Jason Newsted á meðal þeirra sem sóttu um. Hann var þá meðlimur í sveitinni Flotsam & Jetsam. Honum var kippt inn í sveitina í flýti og eftir nokkra vikna stopp kláraði hún tónleika- ferðalagið um Evrópu. Newsted fékk þó aldrei að blómstra innan sveitarinnar. Hann tók þátt í vinnslu plötunnar, ...And Justice for All, en bassinn var hafður sérstaklega lágt stilltur í hljóð- blönduninni. Þessi fjórða plata Metallicu kom út árið 1988 og þótti heppn- ast sæmilega. Hún var þema- plata sem fjallaði um hnignun bandaríska þjóðfélagsins séð frá ýmsum hliðum. Þar á meðal frá sjónarhorni særðs hermanns sem var lamaður og blindur eftir stríðsátök í laginu One. Það varð óvæntur slagari og komst á topp 40 smáskífusölulistans í Banda- ríkjunum. Breiðskífan komst svo inn á topp 10 breiðskífusölulist- ann, aftur án allrar aðstoðar meginstraumsútvarps- og sjón- varpsstöðva. Metallica gaf út á dögunum St. Anger, sína bestu breiðskífu í 12 ár. Sveitin er án efa ein stærsta rokksveit heims og hefur svo sannarlega unnið sér inn fyrir því. Á 22 ára ferli þeirra hafa liðsmenn þurft að þola málsóknir, baráttu við eiturlyf, áfengi og dauða eins liðsmannsins. METALLICA Útlitið var ekki gott á köflum, en nú virðist sem nýjum eldmóði hafi verið blásið í liðsmenn. METALLICA Nýjasti meðlimur Metallicu heitir Robert Trujillo og gekk hann til liðs við sveitina eftir að upptökum á St. Anger lauk. Hann hefur áður plokkað bassann með Suicidal Tendencies auk þess að hafa verið liðsmaður í sveit Ozzy Osbourne. Trujillo kynntist fyrst liðs- mönnum Metallicu þegar Suici- dal Tendencies hitaði upp fyrir sveitina á tónleikaferðalagi þeir- ra um Bandaríkin árið 1994. Liðs- menn kynntust honum ágætlega og heilluðust af bassastíl hans og sviðsframkomu. Þegar kom að því að ráða nýjan mann í stöðuna kom nafn Roberts strax upp og var hann sá fyrsti sem boðið var að mæta í prufu. Eftir prufuna reyndu liðs- menn Metallicu að finna ástæður til þess að ráða hann ekki, alger- lega án árangurs. Upptökustjóri sveitarinnar, Bob Rock, var sann- færður um að maðurinn væri fundinn. Hann þurfti ekki að eyða mikilli orku í það að sann- færa liðsmenn um að aflýsa öll- um frekari prufum. Frá og með 24. febrúar á þessu ári hefur Rob Trujillo verið fjórði liðsmaður Metallicu. ■ ROB TRUJILLO Þykir hafa sérstak- lega líflega sviðs- framkomu. Nýr bassaleikari Metallicu: Bassarumurinn Robert Trujillo Endurreisn Metallicu 15% AFSLÁTTUR AF NO NAME FÖRÐUNARVÖRUM Í JÚLÍ FINNDU NÆSTA ÚTSÖLUSTAÐ Á WWW.NONAME.IS Í SUMARSKAPI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.