Fréttablaðið - 03.07.2003, Síða 28
3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR30
JOHNNY ENGLISH kl. 3.45
THE MATRIX R.. 5.30, 8, 10.30 b.i 12
BRINGING DOWN... kl. 3.45, 5.50, 8, 10.20
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
kl. 6NÓI ALBINÓI
kl. 6, 8 og 10 RESPIRO
kl. 4, 6, 8 og 10
TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. kl. 4
ANGER MANAGEMENT 5.45, 8, 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8, og 10.30 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 b.i. 12Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd í lúxus kl. 4, 6 og 10 b.i 14
kl. 5.50, 8 og 10.15HOW TO LOSE A...
kl. 8 og10 b.i. 16FILMUNDUR:
XMEN kl. 10.15 síð. sýn. 2f. 1 bi 12
AGENT CODY B... kl. 3.40, 5.50 og 8
SKÓGARLÍF 2 m/ísl. kl. 4
KANGAROO JACK kl. 4, 6, 8 og 10
DARK BLUE kl. 5.40, 8, 10.20 b.i 16
ATVINNA „Tilgangur Nordjobb er
mjög fjölþættur,“ segir Guðmund-
ur Skarphéðinsson tómstundafull-
trúi. „Við erum í raun bara vinnu-
miðlunarfyrirbæri auk þess sem
við styðjum við fólk félagslega á
meðan dvöl þeirra stendur. Hug-
myndin á bak við er hinsvegar að
Norðurlandabúar læri inn á menn-
ingu hver annara, skilji hvað felst
í því að vera Norðurlandabúi, hvað
við eigum sameiginlegt og þá um
leið hvað er frábrugðið.“
Guðmundur útskýrir verkefnið
nánar. „Þetta er bara í gangi yfir
sumartímann og krakkar koma
hingað hvaðanæva að. Við erum
þá búin að redda þeim bæði vinnu
og íverustað. Það getur verið her-
bergi á stúdentagörðum með öðr-
um Nordjobburum, en líka einstök
leiguherbergi eða gisting hjá fjöl-
skyldu. Innan Nordjobb er mælst
til þess að fólk kunni eitthvert
hinna stóru skandinavísku mála,
dönsku, norsku eða sænsku. Þó má
bjarga sér á ensku.“
Tómstundafulltrúarnir sjá svo
um að mynda aðstöðu fyrir krakk-
ana sem koma til að kynnast inn-
byrðis og út á við. „Það eru skipu-
lagðar ferðir og samkomur, en það
er alveg merkilegt hvað við verð-
um fljótt óþarfir. Um miðjan júní
eru þau bara búin að taka málin í
sínar hendur, halda partí og hittast
algjörlega án okkar innleggs. Við
reynum samt að ná persónulegum
tengslum við krakkana, og erum
tengiliðir við vinnuveitanda, miðl-
um málum ef það kemur eitthvað
upp á.“
Leyfilegur aldur er bilið 18-25
ára og störfin sem krakkarnir sem
hér dvelja sinna eru mestmegnis
garðyrkju eða umönnunarvinna.
„Garðyrkjuvinna, vinna í eldhúsi,
umönnun aldraðra og ræstingar er
þetta helsta. Fyrir Íslendinga úti
er það eins. Ef maður er fær í
Norðurlandamálunum eru þó ein-
hver þjónustustörf í boði,“ segir
Guðmundur. „Atvinnurekendur
hér hafa allmennt mjög góða
reynslu af Nordjobburum.“
Nordjobb hefur verið í stöð-
ugri stækkun frá upphafi og er þar
ekkert lát á. „Fjöldi þátttakenda
eykst sífellt, en nú gætu stærri
breytingar verið á næstu grösum.
Allt síðan Eystrasaltslöndin fengu
sjálfstæði hafa þau verið að færast
til norðurs varðandi bæði hagkerfi
og menningu. Það gæti vel verið að
þau komist inn í samstarfið næstu
ár. Þá tapast að vísu fókusinn á
skandinavísku málin.“
Guðmundur segir að Nord-
jobbarar séu flestir ánægðir með
sumrin. „Það eru alltaf einhverjir
sem líður bara illa að heiman og
snúa aftur snemma, en allmennt
þykir fólki þetta góð lífreynsla.“
david@frettabladid.is
TRICKY LIFE
Góð lífsreynsla
Nordjobb er samstarfsverkefni norrænufélaga Norðurlandanna. Árlega koma 80-
100 ungmenni á vegum Nordjobb hingað til lands víðsvegar að úr Skandinavíu eða
frá Grænlandi og Færeyjum og enn fleiri fara héðan út, sífellt fleiri hvert sumar.
NORDJOBB UNGMENNIN
21. júní fór hópurinn sem hér dvelur nú, yfir 80 krakkar, í ferð á Snæfellsnes og upp á jökulinn.
Þegar að frjóseminni kemur má al-veg taka ofan fyrir Mark Oliver
Everett, eða E eins og hann kallar
sig, í einsmanns sveitinni Eels.
Sjaldnast líða tvö ár á milli platna og
hefur honum tekist að skila af sér af-
bragðs plötum á borð við Daises of
the Galaxy og nú síðast Souljacker.
Nú er svo komin fimmta platan
Shootenanny!, engin vonbrigði en
bætir engu við heldur.
E er hægt og rólega að nálgast
hefðbundinn blús í lagasmíðum sín-
um og það fer svo sem sandpappírs-
röddu hans ágætlega. En það er engu
líkara en E vilji bara láta hér við
sitja, og ætli sér ekkert að þróa hljóm
sinn neitt frekar áfram. Rödd hans er
nægilega þreytuleg og angurvær
fyrir... það bætir ekki meira fjöri í
leikinn að hann ætli sér nú að staðna
tónlistarlega. Hann hefur svosem
þolað margt á sinni ævi, og er líkleg-
ast orðinn eldri en hann ætti að vera.
Hörðustu aðdáendur Eels verða
þó líklegast ekki fyrir neinum von-
brigðum. Hér er sama gamla, fallega
depurðin á ferð með slettu af textum
sem fjalla flestir um sjálfsskoðun
söngvarans. Einstaka sinnum setur E
svo í rallýgírinn, setur á bjögunina og
rokkar.
Skrýtið, síðustu þrjár setningar
hefðu alveg geta verið um síðustu
Eels plötu á undan þessari. Uppá-
haldslög voru „The Good Old Days“,
„Love of the Loveless“ og „Agony“.
Mjög upplífgandi lagaheiti, ekki satt?
E brosir ekki einu sinni fyrir mynda-
vélina.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
EELS:
Shootenanny!
Sami gamli állinn
sniðin að þörfum
húðarinnar
með mildum ilmi
Krem
sápa
ph 3,5
e
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
5.
0
18
DRANGEY
Laugavegi og Smáralind
Þessa daganna er verið að frum-sýna framhaldsmynd „Charlies
Angels“ báðum
megin við Atl-
antshafið.
Stúlkurnar
þrjár,
Cameron
Diaz, Lucy
Liu og
Drew
Barrymore,
eru nú
staddar í
London
þar sem
myndin var frumsýnd á þriðju-
dagskvöld. Í mörgum dómum
myndarinnar er það þó aðallega
mótleikkona þeirra Demi Moore
sem fær mesta hólið fyrir útlitið.
Moore er komin á fimmtugsaldur-
inn en þykir jafnvel glæsilegri en
aðalleikkonurnar þrjár og stela
senunni í þeim atriðum sem hún
kemur fram í. Hvað leik hennar
varðar virðast gagnrýnendur ekki
jafn hrifnir.
Quarashi hefur lausráðið nýjanrappara. Hann heitir Ólafur
Torfason, eða Opee eins og hann
kallar sig. Sveit-
in hefur sleppt
nýju lagi í út-
varpsspilun til
þess að minna á
sig. Það kallast
því upplífgandi
nafni „Partílag“
og ætti að byrja
að hljóma á
allra næstu dögum á völdum út-
varpsstöðvum. Sölvi Blöndal segir
að þrátt fyrir að Opee sé ekki eig-
inlegur liðsmaður Quarashi verði
hann áberandi í verkum sveitar-
innar á næstunni.
Væntanleg kvikmynd Mel Gib-sons um síðustu ævidaga Jesú
Krists vekur skiljanlega mikið
umtal. Á meðan
á tökum hefur
staðið á Ítalíu
segist kappinn
hafa farið í
kirkju á hverj-
um degi og að
heilagur andi
hafi leiðbeint
honum við gerð
myndarinnar.
Myndin er öll á armensku og átti
upphaflega að vera sýnd texta-
laus. Nú hefur kvikmyndafyrir-
tæki Gibsons ákveðið að skella
texta undir svo bíógestir geti skil-
ið eitthvað hvað sé á seyði á
skjánum. Jim Caviezel kemur til
með að leika Jesú en þokkagyðjan
Monica Bellucci leikur Maríu
Magdalenu. Myndin heitir „The
Passion“.
Leikarinn ungi Ashton Kutcherer á allra vörum í glæsibænum
Hollywood þessa daga. Hann
nældi sér í leikkonuna Demi
Moore, sem er 16 árum eldri en
hann, auk þess sem sjónvarpsþátt-
ur hans „Punk’d“ hefur verið mjög
vinsæll. Svo vinsæll að sjónvarps-
stöðin MTV hefur pantað 20 auka-
þætti sem eiga að fara í loftið á
næstu tveimur árum. Í þáttunum
leiðir hann nokkra félaga sína í
gildru. Á meðal þeirra sem hafa
fallið fyrir brögðum Kutchers eru
Justin Timberlake, Pink, Kelly Os-
bourne, Rosario Dawson og Seth
Green.
Leikstjórinn Joel Zwick, sem vará bak við myndavélina í mynd-
inni „My Big Fat Greek Wedding“,
hefur tekið að sér að gera mynd
um Fat Albert. Eins og margir
muna voru teiknimyndirnar um
Fat Albert sýndar á Stöð 2 þegar
hún fór í loftið. Það er gamanleik-
arinn Bill Cosby sem er á bak við
hetjuna ráðagóðu. Fat Albert mun
fylla upp í hvíta tjaldið árið 2005.
Fyrrum eiginkona Eminem,Kimberly Mathers, heldur fram
sakleysi sínu eftir að hafa verið
kærð fyrir að eiga kókaín. Hún
var handtekin fyrir skömmu eftir
að 25 grömm af kókaíni fundust í
hanskahólfi bifreiðar hennar sem
lögreglan stöðvaði. Stúlkan er laus
gegn lausnargjaldi og verður að
mæta í blóðssýnistöku einu sinni í
viku. Réttað verður í málinu síðar.
Fréttiraf fólki
Útsala hefst í dag
30-80%
afstáttur
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154
www.teflon.is
LAKKVÖRN
BRYNGLJÁI
Á BÍLINN!
Blettun-djúphreinsun-alþrif.