Fréttablaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 30 Leikhús 30 Myndlist 03 Íþróttir 24 Sjónvarp 34 FIMMTUDAGUR 14. ágúst 2003 – 190. tölublað – 3. árgangur SINFÓNÍAN Í HLUTAFÉLAG Skuld- ir Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands hafa aukist hröðum skrefum síðustu ár, ekki síst vegna lífeyrisskuld- bindinga. Vinnuhópur á vegum menntamálaráðuneytisins leggur til að Sinfóníunni verði breytt í hlutafélag. Reykjavík, Seltjarnarnes og Ríkisútvarpið vilja komast út úr rekstri hljómsveitarinnar. Að mati hljómsveitarinnar þarf að fjölga hljóð- færaleikurum um tíu vegna fyrirhugaðs tón- listarhúss. Sjá síðu 8. VIÐBÚNAÐUR Í MIÐBORGINNI Lögreglan mun auka viðbúnað í miðborg- inni á Menningarnóttunni um helgina. Öfl- ugt hjálparlið heldur uppi röð og reglu ásamt lögreglunni þegar 80 til 100 þúsund manns fylla miðborgina. Fast verður tekið á því að börn undir 16 ára verði ekki í bænum eftir flugeldasýninguna. Sjá síðu 2. SKULDIR DV AFSKRIFAÐAR Unnið er að aukningu hlutafjár DV með þátttöku nýrra hluthafa. Samkvæmt heimildum eru skuldir DV við Landsbankann um eða yfir milljarður króna. Þessar skuldir eru að stærstum hluta skuldir sem fylgdu til DV þegar blaðið var selt. Sjá síðu 4. ● Uppáhaldsborgin ▲ SÍÐUR 26-27 Í friði með fuglunum ferðir o.fl. Sveinn Guðmarsson: ● ný verslun í Kringlunni ▲ SÍÐUR 28-29 Það flottasta í fataskápnum tíska o.fl. Valgerður Matthíasdóttir: REYKJAVÍKURSLAGUR KR mætir Val á Hlíðarenda í Landsbankadeild karla í knattspyrnu kl. 19.15 í dag. Valur er í fall- sæti en hins vegar gefst KR færi á að stökkva upp fyrir Fylki á toppinn. Á meðan fara Fylkismenn til Stokkhólms og leika gegn AIK í Evrópukeppni félagsliða. Þá fara Grindavíkingar til Austurríkis og keppa við FC Kärnten. sjá nánar: DAGURINN Í DAG HÚS INNRÉTTINGANNA FLUTT Framkvæmdir eru hafnar við byggingu kjallara og sýningarskála sem tilheyrir nýju hóteli á horni Tún- götu og Aðalstrætis. Í gærkvöld var húsið Aðalstræti 16 flutt yfir Túngötuna og verður haft þar til áramóta. Þá verður þetta sögufræga hús, byggt árið 1764, flutt aftur á sinn stað. Í húsinu voru Innréttingarnar með starfsemi og þar var einnig fyrsti barnaskólinn í Reykjavík. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Nokkur vindur Hægur vindur +14 +18 +15 Hægviðri VEÐRIÐ Í DAG RIGNING MEÐ KÖFLUM Í dag má búast við rigningu með köflum og nokkrum vindi á Suðvestur- og Vestur- landi. Bjartviðri verður ríkjandi á Norður- landi. Hiti 11 til 20 stig. Sjá nánar síðu 6. Útgáfutónleikar í kvöld Hljómsveitin Tube: ▲ SÍÐA 31 Spila ekki á sveitaböllum WASHINGTON, AP Lögreglan í Banda- ríkjunum hefur handtekið þrjá menn sem sakaðir eru um að hafa gert tilraun til að selja íslömskum hryðjuverkamönnum flugskeyti. Yfirvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi og Rússlandi unnu sam- an að rannsókn málsins sem hófst fyrir nokkrum mánuðum þegar rússnesk yfirvöld komust á snoðir um það að breskur vopnasali væri að leita að vopnum til kaups í Pét- ursborg. Ákveðið var að leggja gildru fyrir manninn og var hann handtekinn á hóteli í New Jersey þegar hann mætti þangað til að selja íslömskum hryðjuverka- manni rússneskt loftvarnaflug- skeyti sem nota átti til að skjóta niður farþegaþotu. Kaupandinn reyndist vera starfsmaður Banda- rísku alríkislögreglunnar, FBI og varan eftirlíking. Tveir aðrir menn sem taldir eru viðriðnir málið voru handteknir í New York á sama tíma. Ekki er talið að mennirnir teng- ist al-Kaída eða öðrum þekktum hryðjuverkasamtökum. Á meðal sönnunargagna gegn breska vopnasalanum eru myndbands- og hljóðupptökur þar sem hann ræð- ir um fyrirætlanir sínar og fer lof- samlegum orðum um Osama bin Laden, að sögn ónafngreinds bandarísks embættismanns. ■ Breskur vopnasali handtekinn vegna fyrirhugaðra viðskipta við hryðjuverkamenn: Reyndi að selja flugskeyti RANNSÓKN „Við teljum að lagaum- hverfið sé afdráttarlaust. Sam- keppnisstofnuninni ber að vísa til meðferðar, hjá lögreglu og ákæru- valdi, alvarlegustu brotum á sam- k e p p n i s l ö g u m , “ segir Jón H.. Snorrason, yfir- maður efnahags- brotadeildar ríkis- lögreglustjóraemb- ættisins, um rannsókn máls olíufé- laganna sem hefur verið til rann- sóknar hjá Samkeppnisstofnun. Jón segir lögin ekki verða sveigð svo málið sjálft beri ekki skaða af. Framhald málsins hefur verið rætt við ríkissaksóknara og á fundum með lögfræðingi Sam- keppnisstofnunar. Hann segir Samkeppnisstofnun standa frammi fyrir því í fyrsta sinn að mál sé svo alvarlegt að vísa beri því til rannsóknar hjá hjá ríkissak- sóknara eða lögreglu. Lögregla og Samkpennisstofn- un hafa rætt framhald málsins á fundum. „Viss ágreiningur er í málinu. Ríkislögreglustjóraemb- ættið segir að Samkeppnisstofnun eigi að vísa málinu til lögreglu en Samkeppnisstofnun heldur því fram að þeir hafi uppfyllt sínar skyldur með því að greina óform- lega frá því, þar sem lögreglan hafi ákveðnar frumkvæðisskyld- ur. Ég held því fram að þetta sé mál sem annars vegar varði ein- staklinga og hins vegar fyrirtæki,“ segir Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðar- og viðskiptaráðherra um gang málsins. „Enn er ekki komin nein niður- staða. Vonandi finnst hún sem fyrst. Ég átta mig ekki á því ná- kvæmlega hvernig og hvenær þessu lýkur. Á þessu stigi segi ég ekki meira,“ segir Ásgeir Einars- son lögfræðingur Samkeppnis- stofnunar. Jón H. Snorrason segir eðlilegt að Samkeppnisstofnun og lögregla ræði saman. Embættin hafi hins vegar ekki heimildir til að búa til annan farveg en lögin mæla fyrir um. „Lagaumhverfið er afdráttar- laust. Þegar svona er ber Sam- keppnisstofnun að vísa málinu til lögreglu. Ef til greina kemur að beita þyngstu refsingu er það mælikvarði á hversu alvarlegt málið er. Við þekkjum ekki málið. Það er Samkeppnisstofnunnar að meta hvort um er að ræða alvar- legustu brot samkvæmt sam- keppnislögum.“ hrs@frettabladid.is Ágreiningur tefur rannsókn olíumáls Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir ágreining vera á milli Samkeppnis- stofnunar og ríkislögreglustjóraembættisins. Jón H. Snorrason segir að Samkeppnisstofnun beri að vísa alvarlegum brotum á samkeppnislögum til lögreglu. Fjarnám allt árið! Þitt nám þegar þér hentar Upplýsingar á www.fa.is - Skólameistari ■ Ég átta mig ekki á því ná- kvæmlega hvernig og hvenær þessu lýkur. Aukablað um Menn- ingarnótt MENNINGARNÓTT Í dag fylgir öll Dagskrá Menningarnáttar með Fréttablaðinu. Blaðið er leiðarvís- ir um alla þá viðburði sem verða í gangi víðs vegar um miðborg Reykjavíkur. Allt frá Innrömm- uðu maraþonhlaupi yfir í flugelt- ingarleik yfir Reykjavíkurflug- velli. Menningarnótt hefur heldur betur vafið upp á sig í gegnum árin og er nú orðin að heilum sól- arhring af stanslausum uppákom- um. Það ætti enginn að eiga í erfiðleikum með að finna eitthvað við sitt hæfi en framboðið er mik- ið og því um að gera að hafa Dag- skrána við höndina á laugardag. ■ d a g s k r á d a g s k r á www.rvk.is/men ningarnott. .i i 01 Forsída 10.8.2003 2 2 MENNINGARNÓTT Dagskrá Menningarhátíðar fylgir með Fréttablaðinu í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.