Fréttablaðið - 14.08.2003, Qupperneq 4
4 14. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR
Hefurðu farið í golf í sumar?
Spurning dagsins í dag:
Ertu hlynnt(ur) einkaskólum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
69%
31%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Ísraelar hefna fyrir sjálfsmorðsárásir:
Heimili árásarmanns jafnað við jörðu
ÍSRAEL, AP Ísraelskar hersveitir
réðust inni í flóttamannabúðir
við borgina Nablus á Vestur-
bakkanum og jöfnuðu við jörðu
heimili palestínsks unglingspilts
sem sprengdi sig í loft upp í út-
hverfi Tel Aviv. Sjö eftirlýstir
vígamenn voru handteknir í
borginni.
Mikil óvissa ríkir um fram-
hald vopnahlés palestínskra and-
spyrnuhreyfinga eftir að tveir
Ísraelar létu lífið og ellefu særð-
ust í tveimur sjálfsmorðsárás-
um. Hamas-samtökin hafa lýst
ábyrgð á hendur sér vegna árás-
ar skammt frá landnemabyggð
Ísraela á Vesturbakkanum en
liðsmaður Al-Aqsa herdeild-
anna, sem eru angi úr Fatah-
hreyfingunni, sprengdi sig í loft
upp í lítilli verslunarmiðstöð í
úthverfi Tel Aviv.
Ísraelsk yfirvöld hafa varað
við því að friðaráætlanir muni
fara út um þúfur, ef Palestínu-
menn hefjist ekki handa við að
brjóta á bak aftur starfsemi her-
skárra öfgahópa. Palestínskir
ráðamenn kenna Ísraelum um
árásirnar og segja að þeir hafi
ekki staðið við sínar skuldbind-
ingar í friðarferlinu.
Ísraelska lögreglan er í við-
bragðsstöðu og hefur sett upp
fjölda vegatálma til að reyna að
koma í veg fyrir fleiri sjálfs-
morðsárásir. ■
Skuldir DV meðal
afskrifta Landsbankans
Útgáfufélag DV vinnur að endurfjármögnun. Meðal nýrra hluthafa sem
nefndir eru er Burðarás sem er í eigu Eimskipafélagsins. Samkvæmt frétt
Ríkisútvarsins afskrifaði Landsbankinn 700 milljóna skuld DV.
AFSKRIFTIR Unnið er að aukningu
hlutafjár DV með þátttöku nýrra
hluthafa. Samkvæmt heimildum
eru skuldir DV við Landsbankann
um eða yfir milljarður króna.
Þessar skuldir eru að stærstum
hluta skuldir sem fylgdu til DV
þegar blaðið var selt nýjum eig-
endum árið 2001.
Heimildir eru líka fyrir því að
skuldir DV hafi verið meðal þess
sem kaupendur Landsbankans
töldu vafasamar við kaup á bank-
anum. Ríkisútvarpið greindi frá
því að í 2,4 milljarða afskriftum
Landsbankans á fyrri hluta árs-
ins, næmu skuldir DV allt að 700
milljónum af afskriftunum eða
um það bil þeirri upphæð sem
Samson fær að öllum líkindum í
afslátt frá ríkinu við kaupin á
Landsbankanum. Upphæðin sem
gefin var í frétt RÚV hefur þó
ekki fengist staðfest.
Örn Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri DV og ritstjóri Við-
skiptablaðsins, segir þessar af-
skriftartölur í frétt RÚV hressi-
legar. „Ég efast um að DV skuldi
svo mikið,“ segir Örn sem hafði
ekki vitneskju um frétt RÚV.
Hann segir vinnu við innkomu
hluthafa í fullum gangi. „Það er
unnið með viðskiptabanka félags-
ins, sem er Landsbankinn, við
endurfjármögnunina. Bankinn
stýrir því verki. Mér er ekki
kunnugt um að þeir séu búnir að
afskrifa neitt.“ Núverandi eigend-
ur munu leggja nýju félagi til
hlutafé, en auk þeirra er Burðar-
ás, fjárfestingarfélag Eimskipafé-
lagsins, nefnt sem nýr hluthafi.
Nýtt hlutafé nemur um eða yfir
250 milljónum króna.
Landsbankinn tjáir sig ekki um
viðskipti einstakra viðskiptavina
og vildi ekkert staðfesta um mál-
ið. Samkvæmt heimildum hefur
bankinn verið að leita leiða til að
koma rekstri DV á réttan kjöl. Í
yfirlýsingu frá Halldóri J. Krist-
jánssyni, bankastjóra Landsbank-
ans, kemur fram að unnið sé að
endurfjármögnun. Sú endurfjár-
mögnun sé ekki til lykta leidd og
því sé umræða um afskriftir
ótímabær. Hann segir Landsbank-
ann leggja metnað sinn í faglega
úrlausn verkefna og að finna
lausnir sem séu honum hag-
felldastar til langs tíma litið. Hall-
dór telur óeðlilegt að ræða mál-
efni eins viðskiptavinar í tengsl-
um við heildarafskriftir bankans
á fyrri hluta þessa árs.
haflidi@frettabladid.is
Atlantshafsbandalagið:
Kafbáta-
leitaræfing
VARNARLIÐIÐ Árleg kafbátaleitaræf-
ing varnarliðsins, KEFTACEX
(Keflavík Tactical Exchange) hefst
í dag.
Æfingin, sem haldin er í níunda
skiptið, fer fram á hafsvæði suður
af landinu. Markmiðið er að við-
halda og auka færni þátttakenda í
leit að kafbátum á Norður-Atlants-
hafi. Auk viðeigandi sveita varnar-
liðsins er gert ráð fyrir að um 400
manns komi til landsins vegna þátt-
töku í æfingunni, þar á meðal liðs-
afli, skip og flugvélar frá sex aðild-
arríkjum Atlantshafsbandalagins.
Æfingin stendur til 22. ágúst. ■
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
Björgun togskipsins af hafsbotni tefst enn
um nokkra daga þar sem tankur rifnaði.
Guðrún Gísladóttir:
Björgun
tefst enn
SKIP Björgun togskipsins Guðrún-
ar Gísladóttur, sem liggur á hafs-
botni rétt utan við Lófóten í Nor-
egi, tefst enn um nokkra daga þar
sem tankur sem notaður var við
að reisa skipið rifnaði. Nýr tankur
hefur nú verið settur í hans stað
og björgunaraðgerðir hafnar á ný.
Að sögn Hauks Guðmundsson-
ar, framkvæmdastjóra Íshúss
Njarðvíkur, sem keypti skipið, var
ónákvæmum tækniútreikningum
um að kenna að tankurinn rifnaði.
„Þetta kom okkur talsvert á óvart,
og skipið var farið að hreyfast
þegar óhappið átti sér stað.“ ■
Borgin styrkir einkaskóla:
55 milljónir
til Ísaksskóla
SKÓLAMÁL Borgaryfirvöld hafa
samþykkt að veita Ísaksskóla 55
milljóna króna styrk til að greiða
niður uppsafnaðan rekstrarhalla
skólans.
Fræðslumiðstöð hefur einnig
heimilað að afskrifa um 14 millj-
ónir króna fyrirfram greitt fram-
lag vegna launaskuldbindinga Ís-
aksskóla. Borgaryfirvöld hafa
auk þessa samþykkt að veita
Tjarnarskóla tveggja milljóna
króna styrk til niðurgreiðslu
skammtímaskulda. Þá verður
einkareknum grunnskólum veitt-
ur 23 þúsund króna styrkur á
mánuði fyrir hvert fimm ára gam-
alt reykvískt barn, sem nýtur
kennslu og skóladagvistar á veg-
um skóla og nýtir þ.a.l. ekki leik-
skólaþjónustu borgarinnar. ■
HVALVEIÐAR Áhafnir hrefnubátanna
þriggja sækja nú námskeið hjá
norskum sérfræðingi í notkun
sprengiskutuls til hvalveiða.
Sprengjan er talin fljótvirkasta og
öruggasta tækið til að aflífa hvali
og veldur þar af leiðandi sem
minnstum kvölum fyrir dýrin.
Námskeiðið hefur staðið síðustu
þrjá daga frá níu að morgni til
fimm.
„Þetta er meiri háttar aðferð.
Hún flýtir mikið fyrir drápinu og
ég er hrifinn af því. Ef þú hittir
ekki, er hægt að nota þetta aftur,“
segir Konráð Eggertsson, oft
nefndur Hrefnu-Konni.
Auk Konráðs hafa Guðmundur
Haraldsson og Gunnar Jóhanns-
son, skipstjórar á hrefnuveiðibát-
unum sem Hafrannsóknarstofnun
hefur leigt, beðið í sautján ár eftir
að hvalveiðar hæfust að nýju. Þeir
hafa varið árunum í útgerð á aðr-
ar tegundir, Guðmundur á þorsk
og Konráð og Gunnar helst á
rækju. „Alltaf beið maður með þá
von í huga að þetta kæmi aftur.
Stoppið átti upphaflega ekki að
vera nema í fjögur ár og rann-
sóknir á meðan. Þetta hefur dreg-
ist, nú komin sautján ár. Við för-
um örugglega út um helgina,“ seg-
ir Guðmundur.
600 milljóna fjárfesting:
Kaupa full-
kominn bor
VIÐSKIPTI Jarðboranir hafa undirrit-
að samning um kaup á stórum bor
sem verður sá öflugasti í flota
Jarðboranna. Fyrirtækið vinnur að
stórum borverkefnum innanlands
og utan.
Kaupverð nýja borsins er um
590 milljónir íslenskra króna og er
áætlað að hann komi til landsins í
apríl 2004. Hér er um afkastamik-
inn og tæknilega háþróaðan bor að
ræða sem mun styrkja fyrirtækið í
markaðsstarfi hér á landi sem og
erlendis og gera því kleift að veita
viðskiptavinum fjölbreyttari þjón-
ustu. ■
Bóndi ákærður:
Spýtti
plómusteini
GRIKKLAND, AP Sextugur bóndi var
sektaður og honum gert að mæta
fyrir rétt fyrir að spýta út úr sér
plómusteini þegar hann var á
keyrslu skammt frá borginni
Serres í norðurhluta Grikklands.
Yianni Tassos var stöðvaður af
lögreglunni eftir að hann hafði
spýtt steininum út um gluggann á
bifreið sinni. „Þetta var plóma af
trénu mínu. Ég baðst afsökunar
þrisvar en þeir hlustuðu ekki á
mig“ sagði bóndinn. Tassos þarf
að greiða sem svarar rúmum
7.000 íslenskum krónum í sekt
auk þess hann verður að mæta
fyrir rétt í október vegna ákæru
fyrir að henda rusli á víðavangi. ■
RÚSTIRNAR SKOÐAÐAR
Ísraelskar hersveitir sprengdu upp heimili
fjölskyldu hins sautján ára gamla Khamis
Gerwan sem sprengdi sig í loft upp í versl-
unarmiðstöð í úthverfi Tel Aviv.
ÍSAKSSKÓLI
Skólinn fær
aukinn styrk
frá borginni.
HREFNUSKIPSTJÓRARNIR ÞRÍR
Guðmundur Haraldsson, Gunnar Jóhannsson og Konráð G. Eggertsson eru hrefnuveiði-
skipstjórar Hafrannsóknarstofnunar.
Hrefnuveiðimenn á námskeiði:
Minni kvalir fyrir hvalina
UNNIÐ AÐ ENDURFJÁRMÖGNUN
Verið er að vinna að endurfjármögnun DV. Framkvæmdastjóri blaðsins kannast ekki við
háar afskriftartölur sem nefndar hafa verið vegna skuldar í Landsbankanum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M