Fréttablaðið - 14.08.2003, Side 6
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Þetta sem smá-
bátamenn fara fram á er réttnefnt
línumismunun,“ segir Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, um línuívilnunina sem nú
skekur ríkisstjórnina. Trillukarlar
eru ævareiðir vegna þess að þeir
telja að stjórnarflokkarnir ætli
sér að svíkja skýr
kosningaloforð um
að tekin verði upp
sú regla að dag-
róðrabátar sem
stunda línuveiðar
fái meiri kvóta en
aðrir. Trillukarlarnir, sem hyggj-
ast efna til stórfundar á Ísafirði,
vísa til orða Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra í kosningabar-
áttunni, þar sem hann sagðist ekki
sjá neitt því til fyrirstöðu að taka
upp þetta fyrirkomulag nú í haust.
Davíð hefur síðan skipt um skoð-
un og haft var eftir honum í fyrra-
dag að Alþingi yrði að fjalla um
málið með það fyrir augum að um-
rædd ívilnun yrði að veruleika á
næsta fiskiveiðiári. Þetta er sama
sjónarmið og hjá Árna Mathiesen
sjávarútvegsráðherra, sem vill
skipta út byggðakvótanum fyrir
línuívilnun, þrátt fyrir að í stefnu-
yfirlýsingu stjórnarflokkanna
segi skýrt um að stefnt skuli að
því að auka byggðakvóta og taka
upp línuívilnun. Ríkisstjórnin
glímir við þann vanda að þrír
stjórnarþingmenn, Einar K. Guð-
finnsson, Einar Oddur Kristjáns-
son og Kristinn H. Gunnarsson
eru harðir á því að standa skuli
við loforð um ívilnun til smábáta.
Þessir þrír ráða meirihluta ríkis-
stjórnarinnar.
Trillukarlarnir vísa einnig til
samþykktar landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins um sama efni.
Friðrik segir að landsfundarsam-
þykktin hafi falið í sér að horfið
yrði frá byggarkvóta ef ívilnunin
verði að veruleika.
„Samþykktin var undir þeim
formerkjum að byggðakvótinn
hyrfi nú,“ segir hann.
Friðrik segir að mesta gæfa ís-
lensks sjávarútvegs, og þar með
efnahagslífsins, hafi verið þegar
sjávarútvegsmenn hættu þeirri
hugsun að menn gætu velt ábyrgð
af fjárfestingum sínum yfir á aðra
með ákalli til banka og Byggða-
stofnunar.
„Þessi hugsun er því miður enn
við lýði hjá smábátamönnum fyrir
vestan. Þeim finnst sjálfsagt að
taka frá öðrum og flytja til sín.
Mér er það óskiljanlegt hvers
vegna á að færa þessum mönnum
veiðiheimildir annarra,“ segir
Friðrik.
rt@frettabladid.is
6 14. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR
■ Viðskipti
Veistusvarið?
1Hvar í Garðabæ er ráðgert að nýreinkaskóli taki til starfa?
2Hvað skilaði Pharmaco miklumhagnaði á fyrri helmingi ársins?
3Frá hvaða landi er Christiano Ron-aldo, sem Manchester Utd. festi kaup
á í vikunni?
Svörin eru á bls. 40
JAKARTA, AP Indónesískir saksókn-
arar krefjast þess að múslíma-
klerkurinn Abu Bakar Bashir
verði dæmdur í fimmtán ára
fangelsi fyrir landráð og hlut-
verk sitt sem leiðtogi hryðju-
verkasamtakanna Jemaah Isla-
myah.
Samtökin eru talin hafa staðið
á bak við sprengjuárásirnar á Balí
í október á síðasta ári og sjálfs-
morðsárásina við Marriot-hótelið
í Jakarta í síðustu viku. Bashir
hefur ekki verið kærður fyrir að-
ild að þessum ódæðisverkum. Aft-
ur á móti er hann talinn hafa
skipulagt sprengjuárásir á kirkj-
ur, aðfangadagskvöldið árið 2000,
sem kostuðu nítján manns lífið.
Hann er einnig sakaður um að
hafa lagt á ráðin um að myrða
Megawati Sukarnoputri, forseta
Indónesíu, og beitt hryðjuverkum
til að reyna að koma ríkisstjórn-
inni frá völdum. Klerkurinn rekur
íslamskan heimavistarskóla á
eynni Java og hafa nemendur
hans átt aðild að fjölda sprengju-
árása í Indónesíu.
Bashir heldur fram sakleysi
sínu og neitar því að samtökin
Jemaah Islamiyah séu til. Hann
hefur fullyrt við fjölmiðla að
bandaríska leyniþjónustan CIA
standi á bak við hryðjuverkaárás-
ir í Indónesíu. ■
Vilja fá línu-
mismunun
Svæði þar sem búast má við talverðri vætu eru skyggð á kortinu. Minniháttar úrkoma er táknuð með dropum. Hitatölur sýna hæstu h itagildi.
.ÚRKOMA Í
REYKJAVÍK
Það er viss takt-
breyting í veðrinu
í dag frá gær-
deginum. Því í
dag mun úrkomu-
svæði liggja yfir
Suðuvestur- og
vesturlandi sem úr
mun rigna af og til.
Á sama svæði er
að sjá dálítinn
strekkingsvind,
hvassast í Vest-
mannaeyjum og til
fjalla. Mér sýnist
að hitinn verði á
skaplegu nótun-
um, þetta 11-20
stig, hlýjast á
Norðuaustur- og
austurlandi. þar
verður blíðan.
Kaupmannahöfn 21°C skýjað
London 25°C heiðskírt
París 30°C heiðskírt
Berlín 30°C skýjað
Algarve 34°C heiðskírt
Mallorca 29°C heiðskírt
Torrevieja 33°C heiðskírt
Krít 28°C heiðskírt
K•pur 33°C heiðskírt
Róm 30°C heiðskírt
New York 29°C alskýjað
Miami 30°C þrumur og rign.
Laugardagur
Föstudagur
+14
+15 +18
+16
+19
+16
+15
+13
+14
+14
+11
+12 +17
+19
+14
+13
+13 +16
+18
+14+14
Nokkur vindur
Fremur hægur vindur síst þó með
ströndum sunnantil og á hálendinu.
Allhvasst
Nokkur vindur
Nokkur vindur
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Nokkur vindur
Strekkingsvindur víða um land, síst
á norðvestanverðu landinu.
Nokkur vindur
Nokkur vindur
Hægur
vindur
Hægur
vindur
www.icelandair.is
Stokkhólmur
www.icelandair.is/stokkholmur
Ganga um gamla bæinn – í Gamla Stan er margt
forvitnilegt að sjá. Byggingar, styttur, söfn og
veitingahús.
Í Stokkhólmi þarftu að:
á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Birger
Jarl, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustu gjöld.
Brottfarir 18. okt. og 20. feb.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
21
70
5
0
7/
20
03
Central
Station
Sergels
Torg
Gustov
Adolfs Torg
Karl XII's
Torg
Skeppsholmen
Riddarholmen
Stadsholmen
Karl Johans
Torg
Vasagatan
Kun
gsga
tan
Kungsgatan
Kun
gste
nsga
tan
Radisson SA
S
Royal Vikin
g
Birger Jarl
Hamngatan
Skeppsbron
G
otgatan
Sveavägen
Birger Jarisgatan
Tule gatan
Normalm
Södermalm
Gamla
Stan
D
D
rottninggatan
Skansen
Karlaplan
Ju
ng
fr
ug
at
an
St
ur
eg
at
an
G
re
v
Tu
re
ga
ta
En
ge
lb
re
kt
s-
ga
ta
n
Karlavägen
Biblioteksgatan
Valhallavägen
Verð frá 34.900 kr.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Réttað yfir múslímaklerki:
Krafist fimmtán
ára fangelsisdóms
BROSANDI SAKBORNINGUR
Réttarhöldin yfir Abu Bakar Bashir hófust í apríl á þessu ári en var frestað til 21.ágúst.
Framkvæmdastjóri LÍÚ hafnar því að línuívilnun verði tekin upp.
Segir að trillukörlum þyki sjálfsagt „að taka frá öðrum“
■
Þeim finnst
sjálfsagt að
taka frá öðrum
og flytja til sín.
FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON
Segir enga sanngirni vera í því að taka veiðiheimildir frá einum til að færa öðrum.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 80.1 1.35%
Sterlingspund 128.6 1.54%
Dönsk króna 12.14 0.88%
Evra 90.25 0.85%
Gengisvístala krónu 127,78 0,68%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 367
Velta 8.567 m
ICEX-15 1.578 0,72%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 568.735.659
Pharmaco hf. 181.536.268
Landsbanki Íslands hf. 128.025.771
Mesta hækkun
Marel hf. 4.21%
Pharmaco hf. 2.89%
Síf hf. 2.41
Mesta lækkun
Opin kerfi hf. -10.00%
Kögun hf. -4.17%
Samherji hf. -2.76%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 9284,5 -0,3%
Nasdaq*: 1691,1 0,2%
FTSE: 4180,7 -0,1%
DAX: 3398,9 0,5%
NK50: 1273,6 0,3%
S&P: 985,9 -0,5%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Útgefandi Penthouse í
London:
Rambar á
barmi gjald-
þrots
NEW YORK, AP General Media, út-
gefandi karlatímaritsins Pent-
house hefur fengið greiðslu-
stöðvun. Penthouse kom fyrst út
fyrir tæpum 40 árum í London
og var tímaritinu ætlað að veita
Playboy samkeppni. Rekstrar-
erfiðleikar hafa hrjáð fyrirtækið
um margra ára skeið. Þá hafa
deilur innan fyrirtækisins og
rannsókn á fjármálum fyrirtæk-
isins hafa reynst útgáfufélaginu
þungar.
Eigendur tímaritsins kenna
Netinu um ófarirnar og því mikla
magni af klámi, sem þar er að
finna, um hnignum blaðsins.
Skuldir útgáfunnar nema 50 til
100 milljónum Bandaríkjadala en
eignir eru álíka verðmiklar.
Stjórnendur hyggjast freista
þess að endurskipuleggja rekst-
urinn og leita nauðarsamninga
við lánardrottna. Sala Penthouse
hefur dregist saman um helming
á nokkurra ára tímabili, úr millj-
ón eintökum árið 1998 í 565.700
eintök í fyrra. Á sama tíma hefur
upplag Playboy staðið í stað og er
nálægt 3,2 milljónum eintaka.
Karlatímaritum sem ekki inni-
halda klámfengið efni hefur hins
vegar vaxið fiskur um hrygg. ■
UPPGJÖR DECODE deCODE genet-
ics, móðurfyrirtækis Íslenskrar
erfðagreiningar, skilaði 840 millj-
óna króna hagnaði af rekstri á
öðrum fjórðungi ársins. Á sama
tímabili í fyrra nam hagnaður af
rekstri 752 milljónum króna.
Aukningin skýrist af framleiðslu-
þróun fyrirtækisins og samning-
um við nýja samstarfsaðila.