Fréttablaðið - 14.08.2003, Síða 12
12 14. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR
ÖRSMÁ MYNDAVÉL
Sony hefur kynnt nýja örsmáa stafræna
myndavél. Hún er hluti af nýrri línu frá fyr-
irtækinu sem nefnist Qualia. Myndavélin
kostar um 240 þúsund krónur í Japan.
STJÓRNSÝSLA Viðræður fulltrúa
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga og menntamálaráðuneytis-
ins um fyrirkomulag og kostnað-
arskiptingu tónlistarkennslu á
framhaldsskólastigi hófust í gær
með fundi í menntamálaráðu-
neytinu.
„Þetta er hluti af víðtækari
viðræðum sem standa milli ríkis
og sveitarfélaga um verkaskipt-
ingu. Við höfum tekið þennan
vinkil upp við ríkisvaldið og ósk-
að formlega eftir því að ríkis-
valdið taki að sér framhaldsnám-
ið,“ segir Stefán Jón Hafstein,
formaður fræðsluráðs Reykja-
víkurborgar, en hann á sæti í
nefndinni.
Að sögn Stefáns Jóns var á
fundinum ákveðið að afla frekari
gagna, en næsti fundur nefndar-
innar verður haldinn fljótlega.
„Okkar ósk er sú að það verði
unnið mjög hratt að þessu máli,“
segir Stefán Jón. Vonast er til að
komið verði á hreint þann 1. nóv-
ember hvort vilji er til þess hjá
ríkinu að taka námið að sér.
„Ég tel eðlilegt að ríkið muni
samfara þessu endurskoða lögin
um tónlistarkennsluna í heild
þannig að nám á framhaldsskóla-
stigi og í tengslum við háskóla-
nám verði skilgreint mjög vand-
lega,“ segir Stefán Jón.
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra vildi ekki tjá sig
um málið að svo stöddu. ■
Brottkastsmáli Bjarma
áfrýjað til Hæstaréttar
Skipstjóri Bjarma ætlar með mál sitt til Strassborgar ef með þarf.
Hættur að fleygja fiski en spyr hvað eigi að gera með brottkast frystitogara.
DÓMSMÁL „Þessu verður áfrýjað
til Hæstaréttar og áfram til
Strassborgar ef þörf krefur. Ég
reiknaði reyndar með mikið
þyngri dómi og er harla glaður
yfir þessu,“ segir Níels Adolf Ár-
sælsson, skipstjóri og útgerðar-
maður Bjarma ÍS, sem dæmdur
var til að greiða 1.300 þúsund
króna sekt eða sæta ella þriggja
mánaða fangelsi fyrir að fleygja
53 fiskum í hafið. Þannig leggur
hver fiskur sig á rúmar 24 þúsund
krónur að mati dómsins. Brott-
kastmál Bjarma komst í hámæli
þegar sjónvarpsmenn fóru í
veiðiferð með Bjarma og sýndu
fréttamyndir af brottkastinu. Um
svipað leyti fóru fjölmiðlar með
netabátnum Báru Ís frá Þorláks-
höfn og sýndu brottkast úr þeirri
sjóferð. Skipstjóri og útgerð Báru
voru sýknuð af meintu lögbroti.
Níels segir dóm Héraðsdóms
Vestfjarða vera um margt undar-
legan þar sem ekkert hafi verið
sannað um brottkast á óskemmd-
um fiski.
„Þarna var engin sönnun en
dómurinn segir að víst verði að
telja að það hafi verið fyrirslátt-
ur að fiskurinn hafi verið sýktur.
Þegar ríkissaksóknari stendur
uppi með slíkan dóm spyr ég
hvað hann ætli að gera gagnvart
frystitogurum og öðrum togurum
sem fleygja ómældu magni af
fiski í hafið aftur. Það hlýtur
jafnt yfir alla að ganga,“ segir Ní-
els Adolf.
Hann segist að sjálfsögðu
hætta að kasta sýktum fiski.
„Mér er bannað að henda fiski
og ég mun hlýða lögunum. Hér
eftir mun hver uggi koma á land
og ég mun leggja Hafrannsókna-
stofnun til mikil verðmæti,“ segir
Níels og vísar til þess að eftir
brottkastsmyndirnar í Sjónvarp-
inu var heimilað að koma með allt
að 5 prósent afla að landi utan
kvóta gegn því að Hafrannsókna-
stofnun fái 80 prósent af verð-
mætinu. Níels segir að sjóðurinn
sé nú réttnefndur Bjarmasjóður-
inn.
„Málið hefur því skapað gríð-
arleg verðmæti af strandveiði-
flotanum en það hefur ekkert
komið frá fullvinnsluskipum eða
þeim sem stunda flottrollsveiðar.
Það er umhugsunarefni,“ segir
Níels.
rt@frettabladid.is
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
Formaður fræðsluráðs Reykjavíkurborgar
segir ósk sveitarfélaganna að unnið verði
hratt að máli tónlistarnemenda.
Viðræður um kostnaðarskiptingu tónlistarkennslu á framhaldsstigi hafnar:
Lög um tónlistarkennslu
verði endurskoðuð
BJARMI BA
Mér er bannað að henda fiski og ég mun hlýða lögunum, segir skipstjórinn.
Gagnrýni Bandaríkjanna
vísað á bug:
Ekkert
fjármagn til
Hamas
ÍSRAEL, AP Mahmoud Abbas, forsæt-
isráðherra Palestínu, sagði að ekk-
ert fjármagn sem ætlað væri nauð-
stöddum Palestínu-
mönnum endaði
hjá skæruliðasam-
tökum eins og
Bandaríkjamenn
hafa ýjað að.
„Allt fé til hjálp-
arstarfa fer í gegn-
um ríkisstjórnina
og þaðan er því út-
deilt til nauð-
staddra,“ sagði
Abbas. Bandarísk
stjórnvöld vilja meina að samtök á
borð við hin herskáu Hamas fái
huta fjárins en hafa ekkert í hönd-
unum til að styðja slíkar ásakanir. ■
FUNDUR
ARABAÞJÓÐA
Þar var meðal
annars rætt
hvernig skæru-
liðasamtök verða
sér úti um fé til
starfsemi sinnar.
Smáralind
Kópavogi
Flottu skólafötin
komin!
Nýtt kortatímabil
KALIFORNÍA, AP Eitt hundrað níutíu
og þrír sækjast eftir embætti rík-
isstjóra í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum en framboðsfrestur rann út
á miðnætti, aðfaranótt mánudags.
Kosningarnar fara fram þriðju-
daginn 7. október og verður það í
fyrsta sinn í 82 ár sem uppkosn-
ingar fara fram í Bandaríkjunum.
Atkvæðagreiðslan fer þannig
fram að fyrst gera kjósendur upp
við sig hvort umboð Gray Davis,
sem var kjörinn ríkisstjóri í fyrra,
verður afturkallað. Samþykki
þeir það, velja þeir milli fram-
bjóðendanna 193. Sá ber sigur úr
býtum sem hlýtur flest atkvæði.
Hópur frambjóðenda er mislit-
ur en skoðanakönnun Gallup
bendir til þess að kvikmyndaleik-
arinn Arnold Schwarzenegger
muni sigra örugglega. 42% að-
spurðra segja að góðar líkur séu á
því að þeir kjósi hann. Næstur
honum kemur demókratinn Cruz
Bustamante með 22% fylgi og síð-
an repúblikaninn Bill Simon með
13% fylgi. ■
193 vilja embætti ríkisstjóra í Kaliforníu:
Schwarzenegger
sigurstranglegastur