Fréttablaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 13
13FIMMTUDAGUR 14. ágúst 2003
2.459 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
19
00
08
/2
00
3
99 kr.
(aðeins í Sigtúni)
Ís
Þessa helgi
399 kr.
Margaríta
50% afsláttur
Trjáplöntur
pottaplöntuútsala
20-50% afs
láttur af
öllum potta
plöntum
Ódýr skólavörumarkaður í Sigtúni.
Bakpokar t.d. Puma,
Diadora, Lotto
VÖRUMERKI BRENND
Víða á Indlandi hafa brotist út hörð mót-
mæli gegn pepsí og coca-cola í kjölfar
ásakana um að gosdrykkir fyrirtækjanna
innihéldu skordýraeitur.
Ásakanir á hendur fram-
leiðendum pepsí og kók:
Skordýra-
eitur í gos-
drykkjum
INDLAND, AP Dómari á Indlandi hef-
ur fyrirskipað ríkisstjórninni að
rannsaka sýni úr pepsí eftir að
gosdrykkjaframleiðandinn mót-
mælti með formlegum hætti ásök-
unum um að drykkir fyrirtækis-
ins, sem og samkeppnisaðilans
Coca Cola, innihéldu leifar af
skordýraeitri.
Í skýrslu vísinda- og umhverf-
ismiðstöðvarinnar er því haldið
fram að hlutfall skordýraeiturs í
pepsí og kók sem framleitt er á
Indlandi sé allt að 36 sinnum
hærra en leyfilegt er samkvæmt
reglum Evrópusambandsins.
PepsiCo á Indlandi fór fram á
óháða rannsókn á ásökunum og
krafðist þess að útgáfa skýrslunn-
ar yrði bönnuð.
Vísinda- og umhverfismiðstöð-
in, sem er sjálfstæð stofnun, held-
ur því fram að eitrið komi úr
menguðu grunnvatni og viður-
kennir að það megi einnig finna í
hættulega miklu magni í öðrum
gosdrykkjum sem framleiddir
séu á Indlandi. Í skýrslu stofnun-
arinnar kemur fram að mikil
neysla drykkjanna geti meðal
annars valdið krabbameini og
skemmdum á taugakerfi og veikt
ónæmiskerfið. ■
DÓMSMÁL Gunnar Örlygsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, af-
plánar nú sex mánaða fangelsis-
dóm sem hann hlaut fyrir bók-
haldsbrot og brot á lögum um
stjórn fiskveiða fyrir Héraðs-
dómi Reykjaness. Þrír mánuðir
dómsins eru óskilorðsbundnir og
mun Gunnar sitja einn mánuð í
fangelsi og tvo mánuði mun
hann taka út í samfélagsþjón-
ustu, að sögn Margrétar Sverris-
dóttur, framkvæmdastjóra
Frjálslynda flokksins.
Gunnar hefur setið í fangelsi
síðan á fimmtudag og mun af-
plánun dóms hans ljúka í nóvem-
ber, að sögn Margrétar. Vara-
maður Gunnars, Sigurlín Magn-
úsdóttir, mun taka sæti hans á
Alþingi þangað til, en Sigurlín er
heyrnarlaus.
Starfsmenn Alþingis undirbúa
nú setu Sigurlínar á þingi. „Ég geri
fastlega ráð fyrir að það verði
túlkaþjónusta fyrir hana þannig að
hún verði með túlk með sér í þing-
störfunum,“ segir Margrét.
„Við vissum af því að Gunnar
væri með þennan dóm á sér þeg-
ar við settum hann í fyrsta
sæti,“ segir Margrét, en bætir
við að afbrot Gunnars hafi þótt
þess eðlis að hann gæti þrátt fyr-
ir það leitt lista Frjálslyndra í
Suðvesturkjördæmi. ■
GUNNAR ÖRLYGSSON
Hlaut sex mánaða fangelsisdóm fyrir Hér-
aðsdómi Reykjaness fyrir bókhaldsbrot og
brot á lögum um stjórn fiskveiða. Hann af-
plánar nú dóminn.
Þingmaður afplánar dóm:
Mánuður í fangelsi og
tveir í samfélagsþjónustu
Björgunarþyrla hrapar í
Ölpunum:
Tveir menn
fórust
RÓM, AP Tveggja manna áhöfn ítal-
skrar björgunarþyrlu fórst þegar
þyrlan hrapaði í ítölsku Ölpunum í
gær. Þyrlan var á leið til að sækja
slasaðan fjallgöngumann þegar
hún rakst í klettavegginn og fórst.
Skömmu áður hafði þyrlan skilað
af sér tveimur hjálparliðum hjá
hinum slasaða. Annasamt hefur
verið hjá björgunarmönnum á
Ítalíu, sem og annars staðar í Evr-
ópu að undanförnu. Þeir hafa
meðal annars þurft að berjast við
elda í skraufþurrum skógum
landsins en margir eldanna eru af
mannavöldum. ■
Vinnuhópur:
Sinfónía
eignist út-
varpsfiðlu
FORNMUNIR Vinnuhópur mennta-
málaráðherra hefur áhyggjur af
verðmætri fiðlu sem kennd er við
Joseph Gurnerius og Ríkisútvarp-
ið keypti í stríðslok.
Fiðlan hefur verið í vörslu fyrs-
ta konsertmeistara Sinfóníunnar:
„Þetta fyrirkomulag er óeðlilegt
með öllu og brýnt að annað hvort
verði gerður langtímasamningur
milli Ríkisútvarpsins og hljóm-
sveitarinnar um afnotarétt, eða
eignarhaldið færist með einhverj-
um hætti til hljómsveitarinnar.“ ■