Fréttablaðið - 14.08.2003, Síða 16
16 14. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR
ÖGN BÆRILEGRA
Hitabylgjan í Evrópu hefur bitnað hart á
skepnum, ekki síður en mönnum. Það
væsir þó ekki um ísbirnina í dýragarði
Berlínarborgar eftir að ísframleiðandi gaf
tuttugu tonn af ís svo líf bjarnanna yrði
bærilegra. Fjölda fólks þurfti til að bera ís-
inn í búr bjarnanna og fengu allir frítt í
dýragarðinn að því loknu.
Sveitarfélög greiða með framhaldsnemendum í tónlist fram til áramóta:
Reynt að ná samkomulagi við ríkið
TÓNLISTARSKÓLAR „Það er biðleikur
um að við reynum að bjarga þessu
fram að áramótum,“ segir Sigurð-
ur Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs
og formaður Samtaka sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu. Á
fundi samtakanna á mánudag var
ákveðið að leggja fyrir bæjarráð
sveitarfélaganna tillögu um að
greitt verði með framhaldsnem-
endum í tónlist fram til áramóta.
Vonast er til að á þeim tíma tak-
ist nefnd á vegum Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og mennta-
málaráðuneytisins að ná sam-
komulagi um að ríkið taki yfir
greiðslur vegna tónlistarnáms
framhaldsnemenda.
„Við munum hafa hagsmuni
viðkomandi nemenda í fyrirrúmi
og þar af leiðandi taka þátt í náms-
vistarkostnaði fyrir þessa nem-
endur fram til áramóta,“ segir Jón-
mundur Guðmarsson, bæjarstjóri
Seltjarnarness. „Fyrst ekki náðist
saman á þeim tíma, sem til reiðu
var, látum við nemendurna ekki
bera skaða af því að við séum ekki
búin að klára málið.“ Jónmundur
tekur fram að sveitarfélögin séu
þrátt fyrir það áfram jafnhörð á
því að tónlistarkennsla á fram-
halds- og háskólastigi eigi að vera
á ábyrgð ríkisins. ■
Seiðkarl segir að
Saddam finnist
Seiðkarl Saddams Husseins fyrrum Íraksforseta segir forsetann hafast
við í þorpi skammt frá Bagdad. Seiðkarlinn segist hafa viljað vara
Saddam við en forsetinn ekki viljað borga uppsett verð.
ÍRAK, AP Saddam er á lífi og mun
finnast, en hann næst ekki lif-
andi, að sögn seiðkarls fjölskyldu
Saddams Husseins, fyrrum Íraks-
forseta.
„Hann er á lífi er ég hræddur
um. Hann er í Dhuluaiyah, þorpi
rúmlega 85 kílómetra norður af
Bagdad,“ svarar seiðkarlinn að-
spurður um dvalarstað Saddams.
Seiðkarlinn, sem býr skammt
frá Bagdad, segir Saddam trúa
einlæglega á galdra. Hann hafi
sjálfur tekið virkan þátt í galdra-
athöfnum. Seiðkarlinn segir að
Saddam hafi reglu-
lega ráðfært sig
við tvo galdramenn
í Írak, einn í Tyrk-
landi, annan á Ind-
landi og svo megi
lengi telja. Þá hafði
Saddam, að sögn
seiðkarlsins, mikl-
ar mætur á norn
einni frá Marokkó og leitaði iðu-
lega til hennar.
Seiðkarlinn í Bagdad segir
Saddam ennþá njóta verndar
gadra. Hann neitar að nefna nafn
Saddams, segist muni gera það að
Saddam gengnum.
Fjölmargar sögur eru til um
galdratrú Saddams. Ein segir frá
því að Saddam eigi töfrastein sem
geri honum flest mögulegt. Önnur
segir að hann hafi látið koma fyr-
ir páfagauksbeini undir húð
hægri handleggs, það verndi hann
fyrir byssukúlum, auk þess sem
hann öðlist ást hjá almenningi.
Galdrartrú er mjög útbreidd í
Írak. Um 60% landsmanna iðka
galdra í einhverri mynd, þrátt
fyrir að það brjóti í bága við trú
þeirra.
Seiðkarl Saddams, sem nú er
62 ára, hefur iðkað galdra frá tíu
ára aldri og er einn sá virtasti í
Írak.
Hann segist aðallega hafa
hjálpað Saddamfjölskyldunni
með málefni tengd ást, trygg-
lyndi og afrekum á kynlífssvið-
inu. Stjórnmálin hafi komið
minna við sögu. Síðasta tilraunin
á því sviði mistókst þó að sögn
seiðkarlsins.
„Ég sagði aðstoðarmanni
Qusays, sonar Saddams, að for-
setinn væri í mikilli hættu í stríð-
inu. Fyrir Rolls Royce og 59.000
Bandaríkjadali var ég tilbúinn að
skýra nánar í hverju hættan fólst.
Upphæðin er sú sama og maga-
dansmeyjar Saddams fengu í
laun.
En þeir hlógu bara og sögðu
mig hafa misst glóruna,“ sagði
seiðkarl Saddams. ■
Verkamenn í sláturhúsi:
Drukknuði
í dýrablóði
JÓRDANÍA, AP Sjö egypskir farand-
verkamenn drukknuði í dýra-
blóði í sláturhúsi í Jórdaníu.
Mennirnir, sem voru á aldrin-
um átján til fjörutíu ára, fund-
ust látnir í stóru keri, fullu af
kinda- og kjúklingablóði, á bú-
garði í þorpinu Qweirah skammt
frá hafnarbænum Aqaba við
Rauða hafið. Þeir höfðu verið
ráðnir til þess að þrífa kerið en
talið er að fnykurinn í sláturhús-
inu hafi borið þá ofurliði og
valdið því að þeir drukknuðu í
blóðinu, að sögn jórdansks emb-
ættismanns. ■
FARA HVERGI
Yfirmenn bandaríska heraflans í Írak segja
að hermenn skuli búa sig undir að vera
heilt ár í landinu.
Bandarískir hermenn
í Írak:
Verða þar
í heilt ár
BAGDAD, AP Yfirmaður herafla
Bandaríkjamanna í Írak segir að
hermenn verði að vera undir það
búnir að þjóna í Írak í að minnsta
kosti ár.
Hermenn fá þó stutt leyfi
meðan þeir gegna skyldu sinni í
Írak. Hugsanlega fá þeir þó að
fara heim til Bandaríkjanna í
nokkra daga.
„Það er búið að kynna hverj-
um einasta hermanni fyrirkomu-
lagið, þeir verða her í eitt ár en
að því loknu sendir heim,“ sagði
Ricardo Sanchez, hershöfðingi.
Nú eru 148.000 bandarískir
hermenn í Írak. Þeir segja að
enginn hafi upplýst þá um hve
lengi þeir þurfi að vera í landinu,
þar sem árásir uppreisnarmanna
eru nær daglegt brauð og hitinn
er um og yfir fimmtíu gráður.
„Það verður erfitt að þjóna
hér í ár. En ég held við munum
spjara okkur, ekki síst ef það
kólnar lítillega. Þá verður þetta í
lagi,“ sagði Deacon Finkle, her-
maður. ■
■
Fyrir Rolls
Royce og
59.000 Banda-
ríkjadali var ég
tilbúinn að
skýra nánar í
hverju hættan
fólst
SKÓLAR „Þetta hefur mikla kosti í
för með sér, bæði fyrir nemendur
og kennara, því skólastarfið verð-
ur skilvirkara,“ segir Helgi Krist-
jánsson, aðstoðarskólameistari
Menntaskólans í Kópavogi, en
gert er ráð fyrir að allir nýnemar
sem hefja nám við skólann hafi að-
gang að fartölvu.
Að sögn Helga hefur þriðji ný-
nemaárgangurinn sem ræður yfir
fartölvu nám við skólann í haust.
„Þetta er auðvitað aukinn kostnað-
ur fyrir okkur en við erum að
svara því umhverfi sem er nýjast í
dag,“ segir Helgi og bætir við að í
nýrri álmu skólans, sem verið er
að taka í notkun, séu stafrænar
snertitöflur. Því sé hægt að senda
nemandanum með tölvupósti það
sem ritað er á töflu meðan á
kennslustund stendur.
Helgi segir stefnt á pappírs-
lausan skóla, en pappírsnotkun
hefur minnkað umtalsvert síðan
tölvurnar hófu innreið sína í skól-
ann. Einnig hafi kennarar tekið
eftir jákvæðum breytingum á
námsárangri nemenda. „Það hefur
dregið úr falli nemenda hjá þeim
kennurum sem hafa verið öflugir í
þessu, þannig að slakari nemend-
ur hafa átt auðveldara með að ná
árangri,“ segir Helgi. „Þetta virð-
ist því henta slakari nemendum
ekki síður en þeim duglegu. ■
ALI IMRON
Imron bar vitni í réttarhöldum yfir
Hutomo Pamungkas sem sakaður er um
að hafa hjálpað árásarmönnunum til að
flýja af vettvangi.
Sprengjuárásirnar á Balí:
Beint gegn
Banda-
ríkjunum
BALÍ, AP Markmiðið með sprengju-
árásunum á eynni Balí í Indónesíu
í október á síðasta ári var að
hefna fyrir meðferð bandarískra
yfirvalda á múslímum í Miðaust-
urlöndum og Afganistan, að sögn
Ali Imron, sem ákærður er fyrir
aðild að árásunum.
„Við lítum á Bandaríkin sem
hrokafullt ofurvald. Þess vegna
réðumst við gegn þeim. Þetta var
hefnd fyrir stefnu Bandaríkjanna
í málefnum Palestínu og fyrir
árás þeirra á Afganistan,“ sagði
Imron við yfirheyrslur.
Árásirnar á Balí kostuðu 202
mannslíf og voru flest fórnar-
lömbin ástralskir ferðamenn. ■
JÓNMUNDUR GUÐMARSSON
Bæjarstjóri Seltjarnarness segir sveitarfélög-
in hörð á því að tónlistarkennsla á fram-
haldsstigi eigi að vera á ábyrgð ríkisins.
Allir nýnemar Menntaskólans í Kópavogi hafa aðgang að fartölvu:
Jákvæðar breytingar að
námsárangri nemenda
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
Í nýrri álmu skólans eru stafrænar
snertitöflur og geta kennarar því sent nem-
endum með tölvupósti allt það sem þeir
skrifuðu á töfluna.
SEIÐMAÐURINN
Saddam er enn á lífi en mun innan tíðar finnast og þá látinn. Þetta fullyrðir seiðkarl Sadd-
ams Husseins, fyrrum Íraksforseta. Seiðkarlinn sinnti fjölskyldu Saddams og málum sem
tengdust einkum ást, trygglyndi og afrekum á sviðum kynlífs.
Árás úr launsátri:
Skotið á
ungmenni
SERBÍA-SVARTFJALLALAND, AP Tveir
serbenskir drengir létu lífið þeg-
ar vopnaðir menn hófu skothríð á
ungmenni sem voru að synda í
ánni Bistrica í vesturhluta
Kosovo. Fimm serbneskir ung-
lingar og albönsk stúlka særðust í
árásinni.
Árásarmennirnir földu sig í
kjarri við ána, vopnaðir hríð-
skotarifflum, að sögn talsmanns
Sameinuðu þjóðanna í Kosovo.
Lögreglunni hefur ekki tekist að
hafa hendur í hári mannanna.
Albanskir öfgamenn hafa stað-
ið fyrir fjölda árása gegn serbnes-
ka minnihlutanum síðan blóðugri
herferð Serba gegn Albönum lauk
árið 1999. Leiðtogi Serba í Kosovo
hefur kallað eftir aðstoð alþjóða-
samfélagsins við að binda endi á
þessar hefndaraðgerðir. ■