Fréttablaðið - 14.08.2003, Qupperneq 20
20 14. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR
■ Asía
UMHVERFISSLYS
Skjaldbakan sem drengurinn ber drapst af
völdum mengunar frá olíuskipinu Tasmin
Spirit sem strandaði við auðug fiskimið
undan strönd Pakistans. Sprunga er komin í
skipið og er verulegt tjón þegar orðið. Ótt-
ast er að skrokkur skipsins klofni og munu
þá þúsundir tonna af olíu leka í sjóinn.
SARASOTA, AP Rúmlega sextug
bandarísk kennslukona, Faith
Fippinger, hefur verið sektuð um
10.000 Bandaríkjadali fyrir að
fara til Íraks og reyna að stöðva
innrásarstríð Bandaríkjanna
gegn Saddam Hussein með því að
gegna hlutverki mannlegs skjald-
ar. För Fippinger til Íraks og
þriggja mánaða dvöl í landinu
braut gegn viðskiptabanni
Bandaríkjanna.
Fippinger var í hópi 300 ein-
staklinga frá 30 löndum sem fóru
til Íraks fyrir innrásina í þeim
tilgangi að verja skotmörk í land-
inu.
Fippinger neitar að greiða
sektina og á því yfir höfði sér allt
að 12 ára fangelsi. Talsmaður
bandaríska fjármálaráðuneytis-
ins segir að borgi hún ekki sjálf-
viljug kunni sektin að hækka. Þá
hafi ráðuneytið úrræði til þess að
ná fjárhæðinni. Sektin verði ann-
að tveggja dregin frá ellilífeyri
hennar eða eigur Fippinger seld-
ar nauðungarsölu. ■
LANDHELGISGÆSLAN „Það er alltaf
þessi sami tími á sumrin þegar
mikið er að gera,“ sagði Benóný
Ásgrímsson, þyrluflugstjóri hjá
Landhelgisgæslunni, en hann og
fimm manna áhöfn hans áttu erf-
iðan dag á mánudaginn var.
Stærri þyrla gæslunnar fór þá á
loft laust eftir klukkan tvö til að
sækja spænskt ferðafólk sem lent
hafði í bílveltu nálægt Kvískerj-
um á Öræfum. Lent var við Lands-
spítala Háskólasjúkrahús sköm-
mu fyrir klukkan sex síðdegis.
Skömmu áður hafði komið til-
kynning um slasaðan bifhjóla-
mann á Sprengisandi og óskað var
aðstoðar þyrlu sem fyrst. Þyrlu-
áhöfnin flutti sig þá um set í
minni þyrlu gæslunnar, TF-SIF, og
hélt af stað. Varðstjóri í stjórnstöð
Landhelgisgæslunar sagði slík
skipti vera sameiginlega ákvörð-
un flugstjóra og varðstjóra, en í
þessu tilfelli hefði verið einn al-
varlega slasaður maður og TF-SIF
væri hraðfleygari þyrla.
Ekki tók við
löng bið þegar
komið var til
R e y k j a v í k u r
með bifhjóla-
manninn. Þá var
tilkynnt um al-
varlega slasaðan
mann á veginum
við Hítará sem
slasaðist illa við
að detta af hest-
baki. Enn var
TF-LÍF ræst af
stað og lenti hún
með manninn
laust fyrir
klukkan tíu um
kvöldið.
„Það er of mikið að gera í
slysaverkefnum, ég vildi gjarnan
að þau væru færri,“ sagði Benóný
um tíðina í sumar. „Staða sem
þessi getur komið upp þar sem að-
eins er ein vakt og hver áhöfn er á
bakvakt í fjóra sólarhringa. Það
er ekki fjármagn til að hafa nema
eina vakt í einu.“
Eftir að áhöfnin lenti með
hestamanninn í Fossvoginum
þurfti Landhelgisgæslan að óska
eftir að varnarliðið á Keflavíkur-
flugvelli tæki að sér eina vakt því
reglugerðir kveða á um ákveðna
áhafnarhvíld hvern dag. Mun
þetta vera í þriðja sinn sem óskað
er eftir þessu við varnarliðið.
Benóný sagði það áhyggjuefni
ef varnarliðið hverfur af landi
brott. „Við treystum á þá varðandi
okkar öryggi. Ef eitthvað kemur
fyrir hjá okkur eru engir aðrir í
aðstöðu til að koma til hjálpar með
sama hætti og þeir.“
albert@frettabladid.is
DREGIÐ TIL HAFNAR
Tveir dráttarbátar drógu ítalska skipið
Grande Nigeria til hafnarborgarinnar Flush-
ing í Hollandi.
Flutningaskip rekast á:
Höfnin í
Antwerpen
lokuð
BRUSSEL, AP Siglingaleiðin inn og út
úr höfninni í Antwerpen í Belgíu
var lokuð í níu klukkutíma eftir að
tvö bílaflutningaskip rákust á í
mynni árinnar Scheldt.
Skipin, sem voru frá Ítalíu og
Panama, rákust á af svo miklu afli
að stafnar þeirra festust saman.
Engin slys urðu þó á fólki. Björg-
unarsveitir frá Belgíu og Hollandi
skildu skipin að og var annað
þeirra dregið til hafnarborgarinn-
ar Flushing í Hollandi. Panamska
skipið strandaði á grynningum og
hindraði umferð skipa inn og út úr
höfninni í Antwerpen.
Þetta er þriðji áreksturinn í
sumar úti fyrir belgísku hafnar-
borginni. ■
RÚTA SPRENGD Fimmtán manns
létu lífið þegar sprengja sprakk
um borð í lítilli rútu í Helmand-
héraði í Afganistan. Sex fórnar-
lambanna voru börn. Enginn hef-
ur lýst ábyrgð á sprengjuárásinni
á hendur sér en yfirvöld telja að
talíbanar og liðsmenn hryðju-
verkasamtakanna al Kaída hafi
staðið þarna að verki.
67 LÁTNIR AF VÖLDUM NIÐUR-
GANGS Að minnsta kosti 67
manns hafa látist af völdum nið-
urgangs í fylkinu Uttar Pradesh á
Indlandi á undanförnum tíu dög-
um. Flestir hinna látnu eru börn.
Sjúkdómar sem berast með vatni
breiðast hratt út þegar monsún-
rigningar standa yfir enda hafa
hátt í 70% af íbúum fylkisins
ekki aðgang að hreinu drykkjar-
vatni.
SPRENGING VIÐ BANKA Á fjórða
tug manna særðust, þar af átta al-
varlega, þegar sprengja sprakk
fyrir utan banka í bænum
Bandipora í indverska hluta
Kasmír. Talið er að herskáir
múslímar hafi staðið á bak við
verknaðinn. Flest fórnarlambanna
voru óbreyttir borgarar.
FERÐALÖG Frakkar grínast með það
þessa dagana að hjólreiðakappinn
Lance Armstrong sé eini Banda-
ríkjamaðurinn sem heimsótt hefur
Frakkland í sumar. Ferðamálaráð
Frakklands hefur lýst því yfir að
30% færri Bandaríkjamenn hafi
ferðast til landsins það sem af er
árinu og munar um minna.
Reyndar eru Frakkar ekki þeir
einu sem verða illa úti. Sömu sögu
er að segja um önnur lönd Evrópu
þó í minna mæli sé. Telja fróðir að
ástæður megi rekja til veikari doll-
ara en verið hefur en auk þess er
hræðsla Bandaríkjamanna við
hryðjuverk mikil. Svo mikil að
margir hafa kosið að dvelja heima
þetta árið.
Magnús Oddsson ferðamála-
stjóri segir að bandarískum ferða-
löngum til Íslands hafi ekki fækk-
að að sama skapi. „Fljótlega eftir
11. september 2001 settum við
mun meiri fjármuni í markaðs-
setningu en áður og við stöndum í
þeim sporum nú að fjöldi ferða-
manna frá Bandaríkjunum stend-
ur í stað, sem er góður árangur
miðað við aðrar þjóðir í Evrópu.“ ■
Fór til Íraks sem mannlegur skjöldur:
Á yfir höfði sér allt
að 12 ára fangelsi
SEKT EÐA FANGELSI
Faith Fippinger, ríflega sextug bandarísk kennslukona á eftirlaunum, á yfir höfði sér allt að
12 ára fangelsi fyrir brot á viðskiptabanni Bandaríkjanna gegn Írak. Fippinger fór til Íraks
sem mannlegur skjöldur fyrir Íraksstríðið og neitar að greiða sekt sem hún fékk fyrir vikið.
NICE Í FRAKKLANDI
Fullar strendur af fólki en engir Bandaríkjamenn.
Bandaríkjamenn ferðast minna:
Áhyggjufullir Frakkar
Mikill erill hjá þyrlu
Landhelgisgæslunar
Slysahrinur svipaðar þeim sem urðu á mánudaginn var, þegar ein kona lést og sjö manns slösuð-
ust í þremur ólíkum slysum, eru sem betur fer óalgengar. Vegna reglna um vinnutíma flugá-
hafna varð varnarliðið að standa vaktina aðfaranótt þriðjudagsins.
BENÓNÝ ÁSGRÍMSSON Á TF-LÍF
Lenti henni við Landspítala – Háskólasjúkrahús með slasaða Spánverja.
BENÓNÝ Á TF-SIF
Skipti um þyrlu og flaug upp á Sprengisand til aðstoðar bifhjóla-
manni sem slasaðist illa í árekstri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M