Fréttablaðið - 14.08.2003, Side 21
21FIMMTUDAGUR 14. ágúst 2003
TÖLVUR Fjöldi tölvueigenda hér á
landi hefur leitað sér aðstoðar
vegna nýrrar veiru sem veldur
því að vélar með Windows XP
stýrikerfi endurræsa sig í sífellu
eða frjósa. Eigendur véla með
Windows 2000 stýrikerfi verða oft
á tíðum ekki varir við veiruna, en
vélar þeirra geta þó smitað aðrar
vélar af veirunni, sem dreifir sér
beint milli véla yfir Netið.
„Höfundur veirunnar er
greinilega að reyna að smita eins
margar vélar og mögulegt er. Að-
faranótt laugardags munu allar
þessar vélar sameinast um það að
ráðast á vefsíðuna Microsoft,“
segir Erlendur S. Þorsteinsson,
verkefnisstjóri hjá Friðriki Skúla-
syni ehf.
Til þess að koma í veg fyrir að
tölvur sýkist af veirunni er eig-
endum bent á að verða sér úti um
veiruvörn og uppfæra hana reglu-
lega. Einnig er hægt að koma sér
upp eldveggjarhugbúnaði, en
hann fylgist með öllum netteng-
ingum og greinir árásir á vélina.
Veiran nýtir sér öryggisveilu í
Windows-stýrikerfinu sem gerir
veirunni kleift að ná óheftum að-
gangi að Windows-tölvum, hafi
stýrikerfið ekki verið uppfært.
Eigendum tölva sem þegar hafa
sýkst af veirunni er bent á að
verða sér úti um veiruvörn og
keyra hana, eða uppfæra veiru-
vörn sem þegar er fyrir hendi. ■
Verðhjöðnun í ágúst:
Húsnæðis-
verðbólga
EFNAHAGSMÁL Verðhjöðnun varð í
ágúst. Vísitala neysluverðs lækk-
aði um 0,09%. Markaðsverð hús-
næðis hækkaði um 1,9%. Ef
hækkun húsnæðis er tekin frá
lækkaði vísitalan um 0,36%. Sum-
arútsölur í fataverslunum og
lækkandi verð á flugi og pakka-
ferðum eru helstu áhrifavaldar
lækkunarinnar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
2,0% en vísitala neysluverðs án
húsnæðis um 0,4%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitala neyslu-
verðs lækkað um 0,1% sem jafn-
gildir 0,5% verðhjöðnun á ári. ■
SJÓRÆNINGJADISKAR
Ólögleg fjölföldun mynddiska er vaxandi
vandamál, ekki síst í Asíu.
Malasía:
Lagt hald á
300.000
mynddiska
KUALA LUMPUR, AP Yfirvöld í
Malasíu hafa gert upptæka yfir
300.000 mynddiska sem selja átti
erlendis. Starfsemi ólöglegs fyrir-
tækis í Penang, sem fjölfaldaði
nýjar bíómyndir á mynddiska, var
jafnframt stöðvuð. Verðmæti
diskanna sem hald var lagt á er
um 400.000 Bandaríkjadalir, ríf-
lega 31 milljón króna. Níu manns
voru handteknir og getur hver um
sig búist við sekt upp á rúmar
200.000 krónur fyrir hvert ólög-
legt eintak sem hald var lagt á.
Talið er að hinir handteknu til-
heyri skipulögðum glæpasamtök-
um sem dreifa ólöglegum afritum
af nýjum kvikmyndum um Banda-
ríkin, Kanada, Mexíkó, Ástralíu,
Argentínu og Evrópu. Hver disk-
ur kostar 7 til 18 Bandaríkjadali,
jafngildi 700 til 1.500 króna.
Þrátt fyrir að hald hafi verið
lagt á þrjár milljónir ólöglegra
mynddiska á undanförnum mán-
uðum segja yfirvöld í Malasíu það
aðeins dropa í hafið. Aðgerðirnar
að undanförnu virðist þó hafa
hægt heldur á vexti glæpastarf-
seminnar. ■
Göran Persson:
Svíar mála
sig út í horn
SVÍÞJÓÐ Svíþjóð mun mála sig út í
horn í Evrópu ef landsmenn hafna
upptöku evrunnar í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni 14. september,
að mati forsætisráðherrans Gör-
ans Perssons.
„Það verður mun erfiðara að
hafa áhrif. Það eru alltaf að koma
upp ný stór mál sem evrulöndin
taka að sér,“ sagði Persson í við-
tali sem birtist í Svenska Dag-
bladet. Forsætisráðherrann segir
að evran hafi hjálpað Evrópu að
takast á við þá efnahagslegu lægð
sem verið hefur að undanförnu og
varar sænsku þjóðina við því að
hafa ofurtrú á krónunni.
Samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum eru andstæðingar evr-
unnar enn í yfirgnæfandi meiri-
hluta í Svíþjóð. ■
HEIMASÍÐA MICROSOFT
Árás fjölda veirusmitaðra tölva gæti haft þau áhrif að vefsíða Microsoft leggist niður að-
faranótt laugardags.
Nýr tölvuvírus í hraðri dreifingu:
Sameinast um að ráð-
ast á vefsíðu Microsoft