Fréttablaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 36
24 14. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR ■ Evrópumolar ■ Fótbolti JUVENTUS Ítalska póstþjónustan gaf fyrr í vikunni út frímerki í tilefni af sigri Juventus í ítölsku deildakeppninni í vor. Fótbolti Þjálfari AIK um leikinn gegn Fylki: Þurfum að hafa fyrir hlutunum FÓTBOLTI Fylkir mætir sænska liðinu AIK Solna í forkeppni UEFA-bikarsins í Stokkhólmi í kvöld. AIK-lið- inu hefur ekki gengið sem skyldi það sem af er tíma- bilinu. Liðið gerði 1-1 jafn- tefli við Halmstad í síðustu viku og situr nú í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar. „Við þurfum að hafa fyrir hlut- unum gegn Fylki,“ sagði Richard Money, enskur þjálfari AIK, í samtali við heimasíðu sænska liðsins. „Þetta er hættulegt lið og hefur þrjá mjög fljóta sókn- armenn.“ AIK hefur tvisvar leikið gegn íslensku félagi í Evr- ópukeppni. Árið 1996 lék AIK gegn KR í Evrópu- keppni bikarhafa og vann 1-0 í Laugardalnum en félög- in skildu jöfn í Solna. Í fyrra áttust AIK og ÍBV við í UEFA-bikarnum og unnu Svíarnir 2-0 heima og 3-1 í Eyjum. „Fylkir er með gott lið og á góð- um degi getur allt gerst,“ segir Hörður Hilmarsson hjá ÍT ferðum, fyrrum leikmaður AIK. „Ef við lít- um á leikina sem AIK hefur leikið gegn íslenskum liðum síðustu ár hefur verið mjótt á munum.“ Hörður hefur verið í sambandi við gömlu félaga sína úr AIK sem og gamla þjálfarann Bo Peterson. Þeir segja AIK ekki spila skemmtilegan fótbolta. „Liðið hefur hrapað niður töfluna eftir góða byrjun. Félagar mínir segja mér að Djurgården og Hammarby séu miklu sterkari lið, spili betri og skemmtilegri bolta.“ ■ Má ekki vanmeta Grindvíkinga Varnarvinnan er mjög vel skipulögð hjá Grindavíkurliðinu, segir Helgi Kolviðsson, leikmaður FC Kärnten, sem mætir Grindavík í UEFA-bikarkeppninni í kvöld. Leikið í 30 stiga hita. FÓTBOLTI „Okkur leist mjög vel á Grindvíkingana. Þeir áttu mjög góðan leik gegn Fylki,“ sagði Helgi Kolviðsson, leikmaður aust- urríska félagsins FC Kärnten. Helgi kom hingað til lands í lok júlí ásamt þjálfaranum Hannes Haubitz til að skoða Grindvíkinga, sem leika við Kärnten í UEFA-bik- arkeppninni í kvöld. „Þjálfaranum fannst mjög mik- ilvægt að koma hingað. Það var nauðsynlegt að sjá við hvaða að- stæður er leikið hér á landi og betra að geta undirbúið sig fyrir leikinn svo ekkert komi á óvart,“ segir Helgi. Þjálfari Kärnten sagði í viðtali við heimasíðu liðsins að Grinda- vík leiki þétt og agað með ríka áherslu á kantspilið. Helgi sagði að Haubitz hafi átt- að sig á því að ekki megi vanmeta Grindavíkinga. „Þeir spiluðu tak- tískt mjög vel í vörninni og á miðjunni. Varnarvinnan var mjög vel skipulögð hjá öllu liðinu og þeir voru greinilega ekki að gera þetta í fyrsta skipti.“ „Ég sá leik með þeim hérna í síðustu viku og hef nokkrar spól- ur með deildarleikjum þeirra,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur, um Kärnten. „Þetta er líkamlega sterkt lið, svona jaxlalið með ágætis boltamenn. Framherjarnir og tveir fremstu miðjumennirnir skapa mest í þessu liði. Þetta er gott austur- rískt lið og það virðist sem austur- rísk knattspyrna sé í fínu lagi núna.“ Bjarni á von á erfiðum leik enda er hitinn í Austurríki um 38 gráður á daginn en verður í kring- um 30 gráður á leiktíma. „Við verðum að verjast og reyna að sækja hratt á fáum mönnum. Ég held að það sé ekkert annað að gera,“ segir Ólafur Örn Bjarnason, fyrirliði Grindavíkur. „Við spilum agaðan varnar- leik,“ sagði Bjarni. „Enda væri það óðs manns æði að fara að hleypa upp einhverjum hraða.“ obh@frettabladid.is ÞRIÐJA SKIPTIÐ Í UEFA Fylkir hefur tvisvar áður tekið þátt í UEFA-bikarkeppninni. Árið 2001 vann Fylkir pólska félagið Pogon Sczezcin 3-2 samanlagt en tapaði 1-6 fyrir hollenska liðinu Roda Kerkrade í næstu umferð. Í fyrra tapaði Fylkir 2-4 samanlagt fyrir belgíska félaginu Excelsior Mouscron. FJÓRIR LEIKIÐ ALLA LEIKINA Kjartan Sturluson, Finnur Kol- beinsson, Þórhallur Dan Jóhanns- son, Gunnar Þór Pétursson og Kristinn Tómasson hafa leikið alla sex leiki Fylkis í Evrópu- keppninni. Þeir fjórir fyrst- nefndu verða að öllum líkindum í byrjunarliði Fylkis í kvöld en Kristinn gekk til liðs við Fram fyrir þessa leiktíð. SEX FYLKISMÖRK Fylkismenn hafa skorað sex mörk í jafn mörgum leikjum í UEFA-keppn- inni. Björn Viðar Ásbjörnsson og Sverrir Sverrisson eru einu leik- mennirnir sem hafa skorað og leika enn með liðinu en auk þeirra skoruðu Ólafur Stígsson, Errol Eddison McFarlane, Pétur Björn Jónsson og Steingrímur Jó- hannesson. FYRSTU UEFA-LEIKIRNIR Grinda- vík tekur þátt í UEFA-bikarkeppn- inni í fyrsta sinn. Félagið keppti í Intertoto-bikarnum fyrir tveimur árum og vann Aserana í FC Vilash 1-0 í vígsluleik nýja vallarins í Grindavík og fylgdi því eftir með 2-1 sigri í Bakú. Í næstu umferð tapaði Grindavík 0-3 fyrir FC Bas- el í vígsluleik St. Jakob Park. Svisslendingarnir unnu seinni leikinn í Grindavík 2-0. ÞRJÚ MÖRK GRINDAVÍKUR Grind- víkingar hafa skorað þrjú mörk í Intertoto-keppninni. Ólafur Örn Bjarnason fyrirliði skoraði eitt mark gegn FC Vilash á heima- velli og Paul McShane og Sinisa Kekic sitt markið hvor á útivelli. Þeir verða væntanlega allir í byrjunarliðinu í kvöld.  16.00. ORF Bein útsending frá leik FC Kärnten og Grindavíkur í Evrópukeppni félagsliða.  18.30 Canal 5 Leikur Fylkis og AIK Solna í Evrópu- keppni félagsliða verður sýndur í beinni útsendingu á Canal 5.  19.15 Hlíðarendi Valsmenn taka á móti KR í Landsbanka- deild karla. KR er í toppbaráttunni en Valsmenn í botnbaráttunni.  20.00 Sýn Sýnt verður frá PGA-mótaröðinni í golfi.  23.00 Sýn Leikur Ekvador og Króatíu frá heims- meistaramótinu í fyrra verður sýndur. JARDEL TIL BOLTON Brasilíski framherjinn Mario Jardel hefur gert tveggja ára samning við Bolton Wander- ers. Jardel von- ast til að geta farið á frjálsri sölu til liðsins sem verði til þess að bjarga ferli hans. Hann þarf þó að standast læknisskoðun. Jardel missti samning sinn við Sporting Lissa- bon á síðasta tímabili og hefur reynt fyrir sér hjá mörgum stærstu félögum Evrópu án ár- angurs. REYNA TIL FULHAM? Fulham er á höttunum eftir bandaríska mið- vallarleikmanninum Claudio Reyna, sem leikið hefur með Sunderland. Mick McCarthy, knattspyrnustjóri Sunderland, vill ekki selja leikmanninn en á erfitt með að halda í hann. Ful- ham vonast til að Reyna fylli skarð Sean Davis, sem hefur far- ið fram á sölu. HARTE TIL PORTSMOUTH? Harry Redknapp, knatt- spyrnustjóri Ports- mouth, íhugar nú að gera tilboð í Ian Harte, varnarmann Leeds United. Red- knapp vantar vin- stri bakvörð og hef- ur verið að skoða leikmenn, þar á meðal Harte og Juan Pablo Sorin. FYLKIR Í EVRÓPUKEPPNI Búist er við um tíu til fimmtán þúsund stuðningsmönnum, þar á meðal Svarta hernum, hinu alræmda stuðningsliði AIK. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18.30 að íslenskum tíma. Seinni leikurinn verður miðvikudaginn 28. ágúst. HÖRÐUR HILMARSSON HANDBOLTI Íslenska unglingalands- liðið, drengir fæddir ‘84 og síðar, mætir Slóvenum í úrslitakeppni Evrópumótsins í kvöld. Ísland er í þriðja sæti riðilsins en Slóvenar í öðru. Það lið sem sigrar í leiknum mun leika í undanúrslitum móts- ins. Íslenska liðið hefur staðið sig vel á mótinu, hefur unnið allar viðureignir sínar nema eina – eins marks tap gegn Þjóðverjum. Liðið vann meðal annars Rússa með níu marka mun, 33-24. ■ hársverði? BIO+ fæst á hársnyrtistofum og í apótekum. Vandamál í • psoriasis • exem • flasa • skán • hárlos • kláði • feitur hársvörður lausnin er BIO+ hársnyrtivörur frá Finnlandi Íslenska unglingalands- liðið á Evrópumóti: Leikur um sæti í undan- úrslitum ÁSGEIR ÖRN HALLGRÍMSSON Hefur staðið sig frábærlega með íslenska unglingalandsliðinu. FÓTBOLTI Adressavisen frá Þránd- heimi dregur upp mynd af ólíkri tilveru tveggja helstu afreksliða norskrar knattspyrnu, karlaliði Rosenborgar og kvennaliði Trond- heims/Ørn. Leikmenn Rosenborgar þéna vel á knattspyrnuiðkun, í kringum 3-5 milljónir íslenskra króna. Gøril Kringen, úr Ólympíumeist- araliði Noregs árið 2000, og aðrir leikmenn Trondheims/Ørn afla tekna fyrir félagið með því að af- greiða í sjoppunni á Lerkendal Stadion á heimaleikjum Rosen- borgar. Kringen sér ekki leik- menn Rosenborgar fyrir sér af- greiða í sjoppunni á heimaleikjum kvennanna. Bikarleik Trondheims/Ørn og Kolbotn bar upp á leikdag í Meist- aradeildini í fyrradag, sem þýddi að Kringen fékk frí frá sjoppunni á Lerkendal. ■ Norska knattspyrnan: Ólympíumeistarinn fékk frí frá sjoppunni ROSENBORG Azar Karadas, leikmaður Rosenborgar (til vinstri), í leik gegn írska félaginu Bohemi- ans í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. FC KÄRNTEN Þetta er líkamlega sterkt lið, svona jaxlalið, segir Bjarni Jóhannsson þjálfari um FC Kärnt- en. Á myndinn hefur Heimo Vorderegger, leikmaður FC Kärnten, betur í baráttunni við Norðmanninn Jan Ove Pedersen, leikmann Bregenz. hvað?hvar?hvenær? 11 12 13 14 15 16 17 ÁGÚST Fimmtudagur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.