Fréttablaðið - 14.08.2003, Qupperneq 37
25FIMMTUDAGUR 14. ágúst 2003
Enska knattspyrnan:
Makelele
til Chelsea?
FÓTBOLTA Umboðsmaður franska
miðjumannsins Claude Makelele
heldur því fram að Chelsea hafi
boðið Real Madrid sjö milljónir
punda fyrir leikmanninn.
Umboðsmaðurinn sagði að ef
Real hækkaði ekki laun Makelele
færi hann frá félaginu á mánudag.
Allir vissu, líka leikmenn Madríd-
ar liðsins, að Makelele væri ekki
ánægður og hann gæti ekki leikið
við hlið Beckhams sem þénar
fimmfalt meira en hann.
Talið er að Chelsea geri Real
formlegt tilboð í leikmanninn en
Roman Abramovich gaf í skyn um
helgina að leikmannakaupum fé-
lagsins vær engan vegin lokið. ■
VALA FLOSADÓTTIR
Verður ekki með á Heimsmeistaramótinu
í París sem hefst 23. ágúst.
Landsliðsþjálfarinn
í frjálsum:
Svolítil
vonbrigði
FRJÁLSAR „Þetta eru svolítil von-
brigði en við höfum verið með stíf
lágmörk fyrir svona mót. Eins og
staðan er eru tveir einstaklingar
sem eiga erindi á heimsmeistara-
mótið,“ segir Guðmundur Karls-
son, landsliðsþjálfari í frjálsum
íþróttum.
Jón Arnór Magnússon og Þórey
Edda Elísdóttir verða einu kepp-
endur Íslendinga á heimsmeist-
aramótinu í París sem hefst í lok
mánaðarins. Völu Flosadóttur og
Magnúsi Aroni Hallgrímssyni
mistókst á þriðjudag að ná lág-
mörkum fyrir heimsmeistaramót-
ið en fresturinn til þess rann út
þá.
Vala stökk yfir 4,13 metra á
móti í Malmö en lágmarkið er 4,40
metrar. Magnús Aron kastaði
kringlunni 57 metra á móti í
Kaplakrika en lágmarkið er 63,5
metrar.
Guðmundur segir næstu verk-
efni eftir heimsmeistamótið vera
Norðurlandamót unglinga. Átján
unglingar frá Íslandi mun taka
þátt í mótinu.
„Svo erum við byrjuð að undir-
búningi fyrir Ólympíuleikana í
Aþenu á næsta ári. Stefnan er sett
á að senda fjóra til sex keppendur
þangað eins og við stefnum alltaf
á fyrir stærri mót,“ segir lands-
liðsþjálfarinn. ■
FÓTBOLTI Valur og KR eigast við að
Hlíðarenda í kvöld í fyrsta leik 14.
umferðar Landsbankadeildar
karla. KR er í öðru sæti deildar-
innar með 26 stig, jafnmörg og
topplið Fylkis en með lakari
markatölu. Valur er í níunda sæti
með fimmtán stig.
KR hafði betur þegar liðin átt-
ust við í Frostaskjólinu, 2-1, og
skoraði Veigar Páll Gunnarsson
sigurmarkið þegar tíu mínútur
voru til leiksloka. „Það er svolítið
erfitt að gera upp á milli liðanna
því ég held með þeim báðum,“ seg-
ir Helena Ólafsdóttir, þjálfari ís-
lenska kvennalandsliðsins og Vals-
stúlkna og fyrrum leikmaður KR.
„Valur vann síðasta leik og það
gefur liðinu væntanlega smá
trukk fyrir þennan leik. KR-ingar
eru hins vegar á góðri siglingu.“
Helena segist vonast til að
leikurinn verði jafn en sigur sé
Valsmönnum lífsnauðsynlegur.
„Ég vona því að þeir vinni leikinn
en ætli ég spái samt ekki jafn-
tefli, 1-1.“ ■
ÓLYMPÍULEIKAR
Grikkir héldu heimsmeistarakeppni ung-
menna í róðri fyrr í þessum mánuði. Tilefni
keppninnar var líka að prófa aðstöðuna
sem Grikkir hafa byggt fyrir róðrarkeppnina
á Ólympíuleikana á næsta ári.
Helena Ólafsdóttir um leik Vals og KR:
Erfitt að gera
upp á milli
VEIGAR PÁLL GUNNARSSON
Hefur farið mikinn með liði KR í sumar. Hann verður í eldlínunni í kvöld
þegar KR mætir Val að Hlíðarenda.