Fréttablaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 38
Osló
www.icelandair.is/oslo
Heimsækja Astrup Fearnley nýlistasafnið.
Þar eru framsæknar sýningar á verkum
innlendra og erlendra listamanna.
Í Osló þarftu að:
á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Hotel
Bondeheimen, morgunverður, flugvallarskattar og
þjónustugjöld. Brottfarir 23. jan. og 21. feb.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
21
70
5
08
/2
00
3
iðbærinn
Konungshöllin
Akershus
Karl Johan gate
Karl Johan gate
Karl Johan gate
Stortingsgate
Akerbrygge
Hotel
Bondeheimen
Radisson
SAS Plaza
Akerbrygge
mall
Ráðhúsið
Sto
rga
ta
C
hr
ist
ia
n
K
ro
hg
s
ga
te
Brugata
Sto
rga
ta
Ro
se
nk
ra
nt
zg
at
e
Slott & Festning
Oslo
Sentralstasion
Hegdehaug sveie
nsvei
en
sveien
Oslo
SpektrumVerð frá 34.900 kr.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
www.icelandair.is
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Sveinn Guðmarsson, umsjónar-maður Kastljóss, bjó fyrir
nokkrum árum í Þessalóníku í
Norður-Grikklandi. „Það er hreint
frábær borg, svo ég held ég verði
að nefna hana sem uppáhalds-
borg,“ segir Sveinn.
Sveinn segir að Þessalóníkubú-
ar, svipað og Akureyringar, séu
mjög stoltir af uppruna sínum og
finni Aþeningum helst allt til for-
áttu. „Það er samt ofboðslega góð-
ur andi í borginni, sem er falleg
og hrein, ólíkt Aþenu sem er mjög
skítug. Maður verður hálf geð-
veikur á að vera í Aþenu, þó ekki
sé nema í einn, tvo daga. Þessa-
lóníkubúar eru frekar efnaðir Það
er þetta klassíska módel Suður-
Evrópu þar sem fólk er betur
stætt í norðurhlutum landanna,
svipað og Mílanó og Róm til dæm-
is.“
Ástæðan fyrir veru Sveins í
Þessalóníku var að hann var
ERASMUS-stúdent á vegum
Evrópusambandsins. „Ég stúder-
aði þar guðfræði sem var ekki
ónýtt á þessum slóðum.“
Sveinn kveðst ekki altalandi á
grísku. „Ég hef ekki verið nógu
duglegur að halda grískunni við,
en ég næði henni örugglega upp á
stuttum tíma.“ ■
Kínaklúbbur Unnar er á leið tilKína 5. september næstkom-
andi, en Unnur þurfti að hætta
við vorferðina til Kína vegna
Asíu-lungnabólgunnar. Kínverjar
eru mjög áfram um að fá ferða-
menn til landsins, þannig að boð-
ið verður upp á fimmstjörnu gist-
ingu í ferðinni í stað fjögurra,
eins og fyrirhugað var. Þessi fína
gisting mun þó ekki kosta ferða-
félaga krónu meira.
Þegar dagskrá ferðarinnar er
skoðuð kemur í ljós að á hverjum
degi í þrjár vikur er farið í spenn-
andi skoðunarferðir. En er dag-
skráin ekkert stíf? „Nei,“ segir
Unnur, „það er alltaf einhver laus
tími á hverjum degi svo fólk geti
náð áttum. Svo verður þetta allt
lausara í reipunum þegar líður á
ferðina, en þá er fólk líka orðið
ansi duglegt að bjarga sér.“
Kínaáhugi Unnar vaknaði þeg-
ar hún var barn og heillaðist af
forkunnarfögru reykelsiskeri
sem mamma hennar átti. „Ég vissi
að ég yrði að fara til Kína og skoða
þetta sérstaka land.“
Nú eru tuttugu ár síðan Unnur
fór fyrst til Kína, en árið 1992 hóf
hún skipulagðar ferðir þangað
með fólk. „Ég elska að þeytast og
snúast í kringum fólk,“ segir hún.
„Ég hef farið til margar landa sem
farastjóri, Víetnam, Singapúr,
Ástralíu og Sýrlands til dæmis, en
af því ég byrjaði á Kína og réðst á
garðinn þar sem hann er hæstur,
er allt annað leikur einn.“
Enn er pláss í haustferð Unnar
til Kína. ■
Kínaklúbbur Unnar:
Aldrei betri kjör í Kínaferð
Uppáhaldsborgin
Þessalóníkumenn sem
minna á Akureyringa
SVEINN GUÐMARSSON
Heldur mest upp á Þessalóníku, sem hann segir bæði fagra og hreina og sneisafulla af
sögu.
Áferð um landið er tilvalið aðnýta sér göngustíga sem
heimamenn á hverjum stað hafa
merkt. Yfirleitt býður ganga eftir
slíkum stíg upp á flest það besta
sem njóta má á staðnum.
Dæmi um skemmtilega göngu-
leið er í Hrísey þar sem merktir
hafa verið þrír mislangir stígar,
grænn, gulur og rauður. Eitt af því
sem gerir göngu í Hrísey eftir-
sóknarverða er fuglalífið sem þar
er með meira móti. Um leið og
komið er úr byggð taka fuglarnir
völdin, til dæmis lóa, spói, tjaldur,
hrossagaukur, rjúpa og kría, svo
ekki sé minnst á jaðrakann sem yf-
irleitt er tiltölulega sjaldgæfur
fugl.
Á göngustígum í Hrísey eru fáir
á ferli þannig að hver og einn get-
ur notið einsemdar í faðmi náttúru.
Ekki spillir útsýni út á Ólafs-
fjarðarmúla að vestan og yfir á
Látraströnd að austan fyrir góðri
upplifun. ■
hvað?hvar?hvenær?
11 12 13 14 15 16 17
ÁGÚST
Fimmtudagur
8.30 Strútsstígur með Útivist. Brott-
för frá BSÍ klukkan 8.30.
Föstudagur
17.00 Básar á Goðalandi með Úti-
vist. Fegurð svæðisins er einstök og þar
er fjöldi gönguleiða. Brottför frá BSÍ
klukkan 17.
Laugardagur
Fimmvörðuháls með Útivist. Gist í
skála félagsins á Fimmvörðuhálsi.
Ferðafélag Íslands leggur upp í
tveggja daga Fossagöngu í Gnúpverja-
hreppi. Fararstjórar eru Björg Eva Er-
lendsdóttir og Sigþrúður Jónsdóttir.
20.00 Grettishátíðin í Húnaþingi
hefst með menningar- og skemmtidag-
skrá í félagsheimilinu Hvammstanga.
Þar koma fram m.a. Einar Kárason,
Þórarinn Eldjárn og Ólafur Kjartan
Sigurðarson.
Sunnudagur
10.30 Bjarnarfell í Biskupstungum,
724 m. Farið er af þjóðvegi vestur af
Haukadal og gengið sunnan á fjallið.
Brottför frá BSÍ klukkan 10.30.
10.00 Svínaskarð-Hrafnhólar með
Ferðafélaginu. Gangan hefst við Gyldar-
holt í Kjós. Gengið er um 11 - 12 km og
tekur um það bil fjóra tíma. Brottför frá
BSÍ klukkan 10.00.
13.00 Njáluferð með Arthúri Björg-
vin Bollasyni í samvinnu við Austurleið.
Lagt verður af stað frá Sögusetrinu á
Hvolsvelli.
Gönguleið í Hrísey:
Í friði með fuglunum
HORFT ÚT Á ÓLAFS-FJARÐARMÚLA
Útsýnið úr Hrísey er tignarlegt til allra átta.
KÍNVERJAR VILJA FLEIRI FERÐAMENN
Vegna Asíulungnabólgunnar eru fáir ferðamenn í Kína. Kínverjar ætla að bjóða gestum
sínum allskyns afslátt til að laða þá til landsins.