Fréttablaðið - 14.08.2003, Page 39
27FIMMTUDAGUR 14. ágúst 2003
15.16. og 17. ágúst
Ásahreppur, Rangárþing ytra og Rangárþing eystra.
Töðugjöld 15.16. og 17. ágúst
Menning, atvinnulíf og skemmtun
Föstudagur:
Tónleikar í Hellahelli í Landsveit
hljómsveitin Á móti sól
hljómsveitin Herra Jón.
Gaddstaðaflatir
Laugardagur:
Markaðstjöld, sölubásar, sýningar,
spákona, Rangæsk ferðaþjónusta
með sérstaka kynningu þennan dag,
leiktæki hoppukastlar, Zorb boltinn,
bíla- og búvélasýning, barnaguðs-
þjónusta, hestvagn, húsdýragarður,
veiðitjörn, "Ísmaðurinn", dægurlaga-
keppni, hestakúnstir, glímusýning,
glímuáskorun, Gunni og Felix,
Matarveislan mikla, úrslit í dægurlaga-
keppni, Halli og Laddi, fjöldasöngur,
varðeldur, flugeldasýning, hjómsveitin
Sniglabandið, hjómsveitin Ernir og
Ómar Diðriksson, hljómsveitin
Hljómar.
Sunnudagur:
Markaðstjöld, sölubásar og sýningar,
leiktæki, bíla- og búvélasýning,
guðsþjónusta Séra Sigurður Jónsson,
tónlist: Þorvaldur Halldórsson.
afhending Hornsteina, viðurkenninga
Töðugjalda og Sunnlenska frétta-
blaðsins, kassabílarallý, keppt í fokkum,
verðlaun veitt fyrir sigur í rallýinu og
fyrir frumlegsta bílinn, hæfileikakeppni
barna og ungmenna Karaokie keppni,
hestvagn, húsdýrasýning, veiðitjörn.
Velkomin í Ran árþing
Sætaferðir milli Hellu og Hvolsvallar
laugardag og sunnudag og á dansleiki.
Nánar á:
www.rang.is/todugjold og www.atvinnferda.is
Ásahreppur, www.asahreppur.is
Rangárþing ytra, www. rang.is
Rangárþing eystra, www. hvolsvollur.is
Töðugjöld verða haldin hátíðleg í Rangárvallasýslu nú um
helgina. Þetta er tíunda árið í röð sem hátíð undir nafninu
Töðugjöld er haldin í sýslunni. Meðal dagskráratriða;
Ísumar er á vegum Umhverfis-stofnunar víða um land unnið
við að koma upp skiltum og merk-
ingum á friðlýstum svæðum. Um
er að ræða leiðbeiningaskilti fyrir
gesti svæðanna þar sem fram
koma upplýsingar um afmörkun,
aðgengi, sérstöðu og annað sem
gagnast getur ferðamönnum. Sér-
stökum fræðsluskiltum um nátt-
úrufar svæðanna, svo sem upp-
lýsingar um dýralíf og gróðurfar,
sögu og örnefni verður einnig
komið upp ásamt leiðarmerking-
um sem vísa á áhugaverðar
gönguleiðir. Umhverfisstofnun
annast gerð skiltanna og framleið-
ir þau, en gagnasöfnun og fram-
setning er unnin í samstarfi við
landeigendur, sveitarstjórnir og
aðra staðkunnuga. Verkið er enn-
fremur unnið í samstarfi við
Vegagerðina sem hefur annast
uppsetningu skiltanna.
Brýnt þótti að fara í nýjar
merkingar á friðlýstum svæðum
þar sem merkingar eru víða úrelt-
ar og úr sér gengnar. Verkið er
greitt af sér fjárveitingu til upp-
byggingar á friðlýstum svæðum
sem hefur numið nítján milljón-
um árlega síðustu þrjú ár. ■
Merkingar á friðlýstum svæðum:
Upplýsingar
fyrir ferðamenn
LEIÐBEININGASKILTI Á FRIÐLÝSTUM SVÆÐUM
Verkið er unnið í samstarfi við Vegagerðina sem hefur annast uppsetningu skiltanna.
Síðan á fimmtudag í síðustuviku hefur á þriðja tug ferða-
manna verið fluttur á sjúkrahús
eftir bílveltur, af þeim eru tveir
látnir. Um er að ræða fjögur
slys og í tveimur þeirra fer bíll
erlendra ferðamanna út af í
lausamöl.
Talsvert er búið að leggja í
forvarnir gegn umferðarslysum
vegna erlendra ökumanna.
Vegagerðin, Umferðarstofa og
fleiri gerðu bækling sem heitir
„the Art“, eða listin að keyra á
malarvegi. Myndband hefur
verið gert sem sýnt er um borð í
Norrænu og í vélum Flugleiða.
En forvarnarstarfið virðist ekki
skila sér til þessa hóps öku-
manna.
Hvað er það sem erlendir
ferðamenn ná ekki. Þau umferð-
armerki sem eru við vegi lands-
ins eru eftir alþjóðlegum stöðl-
um þannig að erlendir ökumenn
eiga að skilja merkingu þeirra.
Reyndar er vegakerfið á Íslandi
sums staðar slakt. Hugsanlegt
er að þeir vegkafla sem eru
verstir séu ekki nógu vel merkt-
ir.
Eitt er ljóst og það er að þeir
aðilar sem eru í ferðaþjónustu á
Íslandi og þær stofnanir og fé-
lagasamtök sem vinna að slysa-
vörnum í umferðinni þurfa að
fara að stilla saman strengi til
að ná til erlendra ökumanna. ■
Umferðarátak Umferðarstofu og Landsbjargar:
Bæta þarf forvarnarstarf