Fréttablaðið - 14.08.2003, Síða 51
FIMMTUDAGUR 14. ágúst 2003
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin
til Benidorm í haust á hreint frábæru
verði, en nú er uppselt í nánast allar
ferðir sumarsins. Hér getur þú valið
um úrvalsgististaði í hjarta
Benidorm, og notið haustsins í
frábæru veðri. Að sjálfsögðu nýtur
þú toppþjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann.
Lægsta verðið til
Benidorm
í haust
frá kr. 29.963
með Heimsferðum
Verð kr. 29.963
27. ágúst/3. sept. Stökktutilboð. M.v.
hjón með 2 börn, 2-11 ára.
Verð kr. 39.950
27. ágúst/3. sept. Stökktutilboð. M.v. 2
í íbúð. Vikuferð, með sköttum.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Eldri borgara ferð
2. okt. - 3 vikur
Verð kr. 68.050
M.v.2 í íbúð. El Faro, flug, gisting,
skattar. Val um aukaviku.
Vinsælustu
gististaðirnir:
• El Faro
• La Era Park
• Vacanza
Beint flug alla miðvikudaga
Næsthallærislegasta hljómsveit Íslands Gilitrutt
á Vídalín í kvöld. Þeir eru hryllilega skemmtilegir-
fyrst sætt og væmið en endar í brjá....
Svartar og
teinóttar
konubuxur
Full búð af nýjum vörum
NÝKOMIÐ
BLÚSSUR OG KONUBUXUR
Þetta á að vera bók um íslenskapopp- og samtímamenningu,“
segir Yuka Ogura rithöfundur,
sem stödd er hér á landi í rann-
sóknarvinnu. „Ég var hérna síð-
ast í maí og tók viðtöl, en nú er ég
mikið að skoða íslensku djasstón-
listarmennina.“
Yuka er frá Yokohomo, nærri
Tokyo, og heldur að sjálfsögðu
mikið upp á Björk en kann einnig
vel að meta Trabant, Apparat og
Sigurrós sem hún sá á tónleikum
í Tokyo og heillaðist mikið af.
Yuka verður hér í tvær vikur og
hlakkar mest til Menningarnátt-
ar. Hún verður á þeytingi í bæn-
um alla þá nótt. ■
Minni nú bara á barnaspítalaHringsins við þá sem ætla
að gefa mér eitthvað,“ segir Geir
Ólafsson söngvari sem verður
þrítugur í dag. „Yrði afar ánægð-
ur ef fólk sæi sér fært að gefa
þeim eitthvað í mínu nafni, sjálf-
ur á ég feykinóg af öllu.“ Geir
stendur í ströngu þessa daga við
undirbúning á stærðarinnar kon-
sert á Brodway þann 19. septem-
ber næstkomandi og hefur engan
tíma fyrir afmælisstúss. „Ég
ætla ekkert að gera sérstakt,
bara hafa það notalegt í faðmi
fjölskyldunnar. Veisluhöld verða
að bíða þar til í október en þá
ætla ég að halda eitthvað temmi-
lega stórt fyrir vini og frændur.
Hins vegar er allt á fullu hjá mér
núna. Ég, Páll Rósinkranz og
Harold Burr ætlum að spila á
þessum stærðarinnar tónleikum
með tuttugu manna „Big Bandi“
og það tekur frá mér allan tíma
að skipuleggja þetta, Endurkomu
„The Rat Pack“.“
Geir vill ekkert gera upp á
milli afmælisgjafa gegnum tíð-
ina, enda ekki ráð að móðga
neinn með því að nefna hann
ekki. „Ég get líka ómögulega val-
ið eitthvað ákveðið afmæli sem
situr sérstaklega eftir. Kannski
helst að það sé þá eitt sem ég
man einmitt ekkert eftir, en þá
var ég svo fullur að allur afmæl-
isdagurinn hvarf í móðu.“ segir
Geir og hlær.
Geir óttast ekki árin. „Ég finn
náttúrlega voða lítinn mun á mér
sjálfum. Svo er ég í svo góðu
formi undanfarið og borða holla
fæðu að ég held að ég hafi sjald-
an verið í betra ásigkomulagi.“ ■
Kötturinn Tiger Lily, sem hafðiverið týndur í einn og hálfan
mánuð, fannst grafinn við malar-
námu fyrir utan Hafnarfjörð fyrir
skömmu.
Ekki var hægt að sjá á illa förn-
um kettinum hver dánarorsökin
var. Skothylki fannst rétt hjá hon-
um og ályktaði starfsmaður við
malarnámuna að hann hefði verið
skotinn þar og grafinn.
„Hún var rúmlega árs gömul.
Ég eignaðist hana þegar hún var
pínulítill kettlingur,“ sagði eig-
andi kattarins. “Þetta er rosalega
leiðinlegt. Við auglýstum eftir
henni og leituðum að henni á
hverjum degi í meira en mánuð en
svo virðist hún hafa verið þarna
allan tímann.“
Þó svo að skothylki hafi fundist
nálægt kettinum skal taka það
fram að skammt frá svæðinu er
skotæfingasvæði og hafa skot
áður fundist við malarnámuna.
Finnst eigandanum ómögulegt að
trúa því að einhver hafi skotið
köttinn og grafið hann síðan.
„Það er einhver sem gróf kött-
inn, hvort sem hann var drepinn
viljandi eða óviljandi. Það hafði
aldrei neinn kvartað undan þess-
um ketti. Hann var vel merktur og
ef þetta var óviljandi þá hefði það
verið lágmarkskurteisi að láta
mig vita.“ ■
Japönsk bók um
íslenska poppmenningu
YUKA OGURA
er að skrifa bók um íslenska sam-
tímamenningu og hlakkar mikið
til Menningarnáttar.
Bókmenntir
YUKA OGURA
■ er stödd hér á landi við rannsóknar-
vinnu fyrir japanska bók um íslenska
poppmenningu og verður víst í tvær vikur.
Afmæli
GEIR ÓLAFSSON
■ söngvari verður þrítugur í dag. Hann
hefur engan tíma til að halda upp á af-
mælið sitt en biður fólk að gefa Barnaspít-
ala Hringsins í sínu nafni.
Kettir
TIGER LILY
■ var vel merkt og aldrei hafði verið
kvartað undan henni. Eigandi hennar vill
ekki trúa því að hún hafi verið skotin og
grafin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
TIGER LILY
var rúmlega árs gömul þegar hún dó.
Fannst grafinn við malarnámu
Afmælið víkur fyrir
„The Rat Pack“
GEIR ÓLAFSSON
Vill að þeir sem vilja sýna honum hlýhug á afmælinu beini því til barnaspítala Hringsins
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI