Fréttablaðið - 14.08.2003, Síða 53
41FIMMTUDAGUR 14. ágúst 2003
HRÚTUR
Þuklað verður á hrútum á Ströndum þann
24. ágúst.
Meistara-
mót í hrúta-
dómum
KEPPNI Meistaramót í hrútadóm-
um verður haldið annan sunnu-
dag. Það er Sauðfjársetur í
Sævangi á Ströndum sem stendur
fyrir mótinu.
Framkvæmdin verður með
þeim hætti að nefnd ráðunauta og
hrútaþuklara mun taka nokkra
hrúta til skoðunar og raða þeim í
gæðaröð. Leynd mun hvíla yfir
röðinni og verður takmark kepp-
enda að komast næst henni í mati
sínu, að því er kom fram á bb.is.
Keppt verður í tveimur flokkum;
annar fyrir vana bændur en hinn
fyrir óvana. ■
LÍNUÍVILNUN
Undanþága frá kvóta.
Hvað er
línuívilnun?
FISKUR Fyrir borgarbörnin okkar
þá er línuívilnun undanþága frá
kvóta fyrir þá báta sem veiða á
línu. Síðast þegar þetta var notað
var svokölluð 50% línuívilnun og
þá veiddi bátur kannski 100 tonn
af fiski á línu og tók þá aðeins 50
tonn af kvóta sínum. Ekkert er
ákveðið um þá línuívilnun sem nú
er talað um af stjórnmálamönnum
og því ekkert vitað um hvernig
það yrði, ef af yrði. ■
Ólafur Jóhann Ólafsson rithöf-undur verður með nýja bók í
jólabókaflóðinu í ár. Bókin verður
í lengri kantin-
um, eða um 500
til 600 blaðsíður.
Síðasta bók
Ólafs, Höll
minninganna,
sló sölumet fyr-
ir tveimur árum
og eru vænting-
arnar því miklar vegna nýju
bókarinnar. Arnaldur Indriðason
mun einnig gefa út nýtt efni fyrir
jólin, en síðasta spennusaga hans,
Röddin, seldist í rúmlega tíu þús-
und eintökum. Það má því búast
við miklum bókaslag á milli þess-
ara tveggja risahöfunda í jóla-
bókaflóðinu í ár.
Fréttiraf fólki
Margrét Pála Ólafsdóttir, eig-andi Hjallastefnunnar ehf.,
sem mun reka einkarekinn grunn-
skóla í Garðabæ, er fædd á Akur-
eyri þann 17. október árið 1957.
„Ég er uppalin á Hólsfjöllum á
Akureyri, skammt frá Mývatns-
sveit. Þetta er ein hæsta byggð
landsins. Hún er afskekkt og ein-
angruð og um það bil að fara í
eyði, en hún er samt besta sveit í
heimi,“ segir Margét. Þar á hún
fallegt sumarhús. „Ég hef farið
þangað örfáa daga í sumar, enda
hef ég tekið mér lítið frí. Það
verður bara að bíða betri tíma. Þá
mun ég og konan mín fara í burtu
og anda rólega með góðri bók á
góðum stað.“
Margrét kláraði Fóstruskólann
í Reykjavík árið 1981 og lauk
framhaldsnámi í stjórnun við
sama skóla. Fyrir þremur árum
lauk hún síðan meistaraprófi í
uppeldisfræði með áherslu á
stjórnun frá Kennaraháskóla Ís-
lands.
Fyrir utan vinnu, vinnu og aft-
ur vinnu, segist Margrét eiga þrjú
önnur áhugamál. „Þau eru fólkið
mitt, hundurinn minn og húsið
mitt. Hundurinn heitir Viktoría og
reyndist vera með sterkari
drottningarhvöt en kannski heppi-
legt var. Hvað varðar fólkið mitt
þá á ég við fjölskyldu mína og tvö
barnabörn sem ganga í daglegu
tali undir hugtakinu hoppildin.
Þau eru ótrúlega lífsglöð og dá-
samleg,“ segir Margrét.
Hún er ekki lengi að svara því
hvert mottó hennar í lífinu er:
„Alltaf í framför.“ ■
MARGRÉT PÁLA
Að sögn Margrétar hefur verið
gríðarmikið að gera undanfarið.
„Þetta hefur verið ótrúlega
skemmtilegt. Nú er níu ára draum-
ur að rætast um að bjóða eldri
börnum, fimm til tíu ára, upp á
áframhald á módelinu okkar.“
Hoppildin og hundurinn Viktoría
MARGRÉT PÁLA ÓLAFSDÓTTIR
■ á sumarhús á Hólsfjöllum á Akureyri
og vonast til að komast þangað í
afslöppun í haust.
Persónan