Fréttablaðið - 14.08.2003, Page 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Smáralind
mán.-fös. kl. 11-19
lau. kl. 11-18
sun. kl. 13-18
Glæsibæ
mán.-fös. kl. 10-18
lau. kl. 10-16
OPIÐ
Smáralind - Glæsibæ
Sími 545 1550 og 545 1500
Útsala
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
18
72
0
8/
20
03
www.utilif.is
Síðustu dagar útsölunnar!
afsláttur
30%
70%
til
Sá sem á mest dót þegar hann deyrvinnur.“ Þannig hljóðar fullyrðing
sem vinur minn rakst einu sinni á
uppi á vegg í skólastofu atorkumik-
illa unglinga í einum grunnskóla
borgarinnar. Fullyrðingin var sett
fram eins og hvert annað spakmæli,
eins konar mottó sem rétt væri að
lifa eftir. Fyrst skildi ég reyndar
ekki boðskapinn alveg en þegar ég
áttaði mig á því að sögnin að vinna
er hér í merkingunni sigra gekk það
algerlega upp. Sem sagt, sá sigrar í
keppninni stóru sem á mest þegar
upp er staðið.
AUÐVITAÐ var húmor unglinganna
að baki þessum litla miða á veggn-
um. En má ekki þegar betur er að
gáð velta fyrir sér hvort þarna sé á
ferðinni ákveðinn kjarni íslensku
þjóðarsálarinnar? Að keppast við að
safna dóti fram í rauðan dauðann, að
upplifa kappleikinn stóra tapaðan ef,
af einhverjum ástæðum, manni hef-
ur ekki tekist að safna sér heilum
hellingi af dóti, koma sér upp álit-
legu safni stórra og smárra muna
sem bera vitni um velgengni í lífinu.
ÞAÐ sem verður því miður oft út
undan í þessum kappleik er stundin
sjálf. Lífið okkar sem á sér stað
núna, á þessari stundu, ekki á morg-
un, ekki í komandi viku, um jólin eða
næsta sumar. Og alls ekki þegar
kappleiknum mikla er lokið því á
þeirri stundu fer engin verðlaunaaf-
hending fram, að minnsta kosti ekki
fyrir dótasöfnun.
VIÐ stöndum nefnilega á þessum
verðlaunapalli á hverjum degi og
bestu verðlaunin eru ekki þau sem
fást fyrir að eiga mest dót. Stærstu
verðlaunin eru fólgin í gleðinni sem
felst í því að lifa innihaldsríku lífi
frá degi til dags, lífi þar sem hver
dagur gefur manni gleði og lífsfyll-
ingu, lífi þar sem við leggjum eitt-
hvað af mörkum í stærra eða
smærra samhengi, lífi þar sem við
erum fær um að gefa þeim sem okk-
ur þykir vænt um innblástur og gleði
sem auðgar þeirra líf og ekki síður
að vera fær um að þiggja það sama
frá öðrum. Kannski má hnika til full-
yrðingunni og segja: Sá sem á flestar
gleðistundir að baki þegar hann deyr
vinnur. Þar er þó til einhvers að
vinna á hverjum degi. ■
Sá sem
á mest dót