Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.08.2003, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 14.08.2003, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR Smáralind mán.-fös. kl. 11-19 lau. kl. 11-18 sun. kl. 13-18 Glæsibæ mán.-fös. kl. 10-18 lau. kl. 10-16 OPIÐ Smáralind - Glæsibæ Sími 545 1550 og 545 1500 Útsala ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 18 72 0 8/ 20 03 www.utilif.is Síðustu dagar útsölunnar! afsláttur 30% 70% til Sá sem á mest dót þegar hann deyrvinnur.“ Þannig hljóðar fullyrðing sem vinur minn rakst einu sinni á uppi á vegg í skólastofu atorkumik- illa unglinga í einum grunnskóla borgarinnar. Fullyrðingin var sett fram eins og hvert annað spakmæli, eins konar mottó sem rétt væri að lifa eftir. Fyrst skildi ég reyndar ekki boðskapinn alveg en þegar ég áttaði mig á því að sögnin að vinna er hér í merkingunni sigra gekk það algerlega upp. Sem sagt, sá sigrar í keppninni stóru sem á mest þegar upp er staðið. AUÐVITAÐ var húmor unglinganna að baki þessum litla miða á veggn- um. En má ekki þegar betur er að gáð velta fyrir sér hvort þarna sé á ferðinni ákveðinn kjarni íslensku þjóðarsálarinnar? Að keppast við að safna dóti fram í rauðan dauðann, að upplifa kappleikinn stóra tapaðan ef, af einhverjum ástæðum, manni hef- ur ekki tekist að safna sér heilum hellingi af dóti, koma sér upp álit- legu safni stórra og smárra muna sem bera vitni um velgengni í lífinu. ÞAÐ sem verður því miður oft út undan í þessum kappleik er stundin sjálf. Lífið okkar sem á sér stað núna, á þessari stundu, ekki á morg- un, ekki í komandi viku, um jólin eða næsta sumar. Og alls ekki þegar kappleiknum mikla er lokið því á þeirri stundu fer engin verðlaunaaf- hending fram, að minnsta kosti ekki fyrir dótasöfnun. VIÐ stöndum nefnilega á þessum verðlaunapalli á hverjum degi og bestu verðlaunin eru ekki þau sem fást fyrir að eiga mest dót. Stærstu verðlaunin eru fólgin í gleðinni sem felst í því að lifa innihaldsríku lífi frá degi til dags, lífi þar sem hver dagur gefur manni gleði og lífsfyll- ingu, lífi þar sem við leggjum eitt- hvað af mörkum í stærra eða smærra samhengi, lífi þar sem við erum fær um að gefa þeim sem okk- ur þykir vænt um innblástur og gleði sem auðgar þeirra líf og ekki síður að vera fær um að þiggja það sama frá öðrum. Kannski má hnika til full- yrðingunni og segja: Sá sem á flestar gleðistundir að baki þegar hann deyr vinnur. Þar er þó til einhvers að vinna á hverjum degi. ■ Sá sem á mest dót

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.