Fréttablaðið - 19.08.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
ÞRIÐJUDAGUR
19. ágúst 2003 – 195. tölublað – 3. árgangur
ÞYNGIST EKKI Lögmaður Flosa Arnórs-
sonar, sem situr í
fangelsi í Abu
Dabhi, segir ekki
hættu á að dómur
Flosa þyngist við
áfrýjun. Það geti
einungis gerst í
þeim tilfellum sem
ákæruvaldið áfrýjar.
Sjá nánar bls. 4
AFSKIPTI RÁÐUNEYTIS Réttinda-
lausum yfirvélstjóra á Snæfellsnesi hafði
verið neitað um undanþágu sem var sam-
þykkt eftir tilmæli ráðuneytis. Vélstjórar eru
ævareiðir og benda á að útgerðin er í kjör-
dæmi samgönguráðherra. Sjá nánar bls. 2
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR Botnhlið
togarans Guðrúnar Gísladóttur, sem legið
hefur á hafsbotni síðan í fyrrasumar, er nær
óskemmd. Sáralítil olía hefur lekið úr skip-
inu, sem verður lyft á um það bil þremur
vikum. Sjá nánar bls. 4
MYNDATÖKUMAÐUR MYRTUR
Bandarískir hermenn í Írak hafa viðurkennt
að hafa skotið palestínskan myndatöku-
mann til bana. Alls hafa nítján fjölmiðla-
menn fallið í Írak frá því ráðist var inn í
landið. Sjá nánar bls. 8
SAMSPIL VALDS OG ALÞJÓÐA-
RÉTTAR Opinn fyrirlestur, Samspil valds
og alþjóðaréttar: SÞ og hin „nýja heims-
skipan“, verður haldinn í dag klukkan
12.05 í stofu 101 í Odda. Hans Köchler,
prófessor í heimspeki og deildarforseti
heimspekideildar Innsbruck háskóla í Aust-
urríki, heldur fyrirlesturinn. Sjá nánar:
DAGURINN Í DAG
BREIÐÞOTA AIR CANADA
Reykur kom upp í farþegarými vélarinnar um klukkan hálffjögur í gærdag. Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli rúmri klukkustund síðar.
Fyrsta hrefnan veidd
Hrefnuveiðar í vísindaskyni hófust síðdegis í gær er áhöfn Njarðar KÓ veiddi fyrstu hrefnuna.
Það gerðist eftir að tveimur bátum sem veittu Nirði eftirför var snúið við. Mikilvægt skref í fjöl-
stofna rannsóknum, segir forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Hægur
vindur
+13
+14
+14
Hæg breytileg
átt.
Hæg breytileg
átt.
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA ÚRKOMA Hæglætisveður verður
í dag, með úrkomu víða, helst á Norður- og
Austurlandi. Hiti 13-17 stig. Sjá nánar bls. 6
gefur út safnbox
Björk:
Hápunktar
á tónleikum
stendur á tímamótum
Egill Helgason:
Hættir á
Skjá einum
▲
SÍÐA 30
▲
SÍÐA 18
HVALVEIÐAR Fyrsta hrefnan af þeim
þrjátíu og átta sem fyrirhugað er
að veiða í vísindaskyni í ágúst og
september veiddist síðdegis í gær.
Það var áhöfn Njarðar KÓ, eins
þriggja skipa sem Hafrannsókna-
stofnun hefur gert samning við
um að annast veiðarnar, sem veid-
di hrefnuna. „Þetta gekk framar
öllum vonum,“ sagði Droplaug
Ólafsdóttir, leiðangursstjóri á
Nirði, í samtali við Fréttablaðið í
gær.
Að hennar sögn gekk aflífun
dýrsins fljótt og vel fyrir sig, en
hrefnan dó samstundis. „Nýi skut-
ullinn reyndist mjög vel og menn
voru ánægðir með hann,“ segir
Droplaug. Krufning og sýnataka
fer fram á hafi úti og gengur sam-
kvæmt áætlun. Úr sýnunum er síð-
an unnið í landi, en út frá þeim sjá
menn fæðu, mengun og næringar-
ástand hvalanna, auk þess sem
sýni eru tekin fyrir erfðafræði og
meinafræði. „Þetta er mjög um-
fangsmikil vinna og miklar upplýs-
ingar sem við fáum úr hverjum
hval,“ segir Droplaug.
Hrefnan veiddist eftir að tveim-
ur bátum, sem veittu Nirði eftirför,
var snúið við til lands vegna veð-
urs, en að sögn Droplaugar eru
hvalveiðar helst ekki stundaðar í
námunda við aðra aðila. Bátarnir
komu til hafnar í Reykjavík um há-
degisbilið í gær, en erlendir fjöl-
miðlamenn höfðu leigt bátana og
ætluðu að festa á filmu fyrsta
hvaladrápið. Að sögn Rannveigar
Grétarsdóttur, framkvæmdastjóra
Hvalaskoðunarinnar Eldingar,
hafði í gær ekki verið ákveðið
hvort og þá hvenær fjölmiðla-
mennirnir færu út aftur.
„Við höfum áhyggjur af því að
við séum að eyðileggja ímynd
landsins út á við,“ segir Ásbjörn
Björgvinsson, forstöðumaður
Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík.
„Það er þegar farið að koma fram
í þeim áhuga sem erlendir fjöl-
miðlar hafa sýnt þessu máli og ég
held að ímyndarlega séð geti þetta
skaðað okkur verulega þegar til
langs tíma er litið ef framhald
verður á.“
„Það má segja að þetta séu tíma-
mót,“ segir Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar. Jóhann telur hrefnuveiðarn-
ar mikilvægt skref í fjölstofna
rannsóknum Hafrannsóknastofn-
unarinnar. „Þetta mun styrkja
þekkingu okkar á þætti hvalanna í
lífkerfinu og byggja undir ákvarð-
anatöku stjórnvalda í framtíðinni.“
helgat@frettabladid.is
FLUG Allt tiltækt lið lögreglu,
björgunarsveita og slökkviliðs
var kallað út að Keflavíkurflug-
velli í gærdag eftir að tilkynnt
hafði verið um reyk í farþegarými
breiðþotu um klukkan hálffjögur í
gærdag. Vélin, sem var á leið frá
Frankfurt í Þýskalandi til Toronto
í Kanada, lenti heilu og höldnu á
Keflavíkurflugvelli rúmlega
klukkustund síðar. 282 voru í vél-
inni, sem er af gerðinni Boeing
747, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Flugmálastjórn.
Ekki var vitað hvað olli reykn-
um í vélinni í gær, en að sögn
sýslumanns var talsvert mikill
reykur í vélinni. Farþegar vélar-
innar voru þó rólegir. „Áhöfn vél-
arinnar brást við af mikilli fag-
mennsku,“ segir sýslumaður.
„Þetta gekk allt mjög vel fyrir
sig,“ segir Óskar Þórmundsson,
yfirlögregluþjónn hjá Lögregl-
unni í Keflavík. Að hans sögn ger-
ist af og til að vélar lenda hérlend-
is af ýmsum ástæðum. „Við erum
miðsvæðis milli Evrópu og Banda-
ríkjanna og þetta því staðurinn til
að koma á,“ segir Óskar. ■
Breiðþota á leið til Kanada lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli:
Reykur í farþegarými
Breskir hermenn í Írak:
Kornabarn í
skotfæra-
kassa
LONDON, AP Breskir hermenn í suð-
urhluta Íraks björguðu nýfæddu
stúlkubarni úr læstum stálkassa
sem í voru geymd skotfæri.
Breska varnarmálaráðuneytið
greindi frá þessu í gær. Hermenn-
irnir fundu stúlkuna þegar þeir
voru við húsleit í Basra í suður-
hluta Íraks um helgina. Stúlkan,
sem var aðeins tveggja daga göm-
ul, var í andnauð og virtist nær
dauða en lífi. Hermennirnir blésu
í hana og eftir nokkrar ógnarlang-
ar mínútur kreisti sú stutta fingur
annars hermannsins og grét.
„Við bjuggumst við að finna
vopn í kassanum. Við trúðum vart
okkar eigin augum“, sögðu lífgjaf-
arnir.
Embættismenn segja að virðist
sem hún hafi verið í kassanum í
um tíu mínútur. Móðir stúlkunnar
kom síðar í leitirnar. Hún fullyrti
að faðir stúlkunnar hefði læst
kornabarnið ofan í kassanum.
Mæðgurnar eru nú á sjúkrahúsi í
Basra en faðirinn var handtekinn.
Við húsleitina fundu hermennirn-
ir einnig vopn og sprengjur. ■
KORNABARNIÐ
Tveggja daga gamalli stúlkunni veitt fyrsta
hjálp skömmu eftir að hún fannst.