Fréttablaðið - 19.08.2003, Side 8
8 19. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Kynferðisbrot kaþólskra presta:
Páfi fyrirskipaði þögn um brotin
RÓM, AP Bandarískur lögmaður
fólks, sem segist hafa sætt kyn-
ferðislegu ofbeldi af hálfu
kaþólskra presta, hefur komist
yfir leynilegt skjal sem páfa-
garður sendi prestum árið 1962.
Í skjalinu eru fyrirmæli til bisk-
upa um hvernig fara skuli með
slík mál.
Lögmaðurinn, Daniel Shea,
hefur afhent yfirvöldum afrit af
skjalinu. Þar krefst Páfagarður
þess að kynferðisbrotamál
klerka séu meðhöndluð með al-
gerri leynd, komist upp um þau
á annað borð.
Skjalið er dagsett 16. mars
1962 og er með innsigli Jóhann-
esar 23. sem gegndi þá embætti
páfa.
Klerkum, sem rjúfa þögnina,
er hótað brottrekstri og bann-
færingu. Páfagarður hefur stað-
fest að skjalið sé ófalsað en neit-
ar því að um tilraun til yfirhylm-
ingar hafi verið að ræða. Lög-
fræðingar hafi slitið skjalið úr
samhengi og afskræmt það.
BAGDAD, AP Nokkrum andartökum
áður en hann féll fyrir byssukúl-
um bandarískra hermanna, lýsti
kvikmyndatökumaður Reuters
fréttastofunnar ótta sínum við að
verða skotinn.
Mazen Dana, 41 árs Palestínu-
maður var skotinn til bana á
sunnudag, utan við Abu Graihab
fangelsið í útjaðri Bagdad. Dana
vann að frétt um
sprengjuárás á
fangelsið er
varð sex manns
að bana og særði
sextíu á laugar-
dag.
Fréttamenn
erlendra fjöl-
miðla voru sam-
an á ferð við fangelsið og fór
Dana út úr bifreið sinni til að
mynda bandaríska skriðdrekalest
sem nálgaðist. Hermaður á einum
skriðdrekanna skaut þá sex skot-
um að myndatökumanninum. Tvö
þeirra lentu í Dana. Hann var
fluttur í skyndi á hersjúkrahús en
var úrskurðaður látinn þegar þan-
gað var komið.
„Við vorum allir þarna í að
minnsta kosti hálfa klukkustund.
Þeir vissu að við vorum frétta-
menn. Eftir að þeir skutu Dana,
beindu þeir byssum sínum að okk-
ur. Ég held ekki að þetta hafi ver-
ið óhapp. Þeir eru mjög spenntir á
taugum, þeir eru brjálaðir,“ sagði
Stephan Breitner frá frönsku
sjónvarpsstöðinni France 2.
Munzer Abbas, ökumaður
Dana, tekur í sama streng og seg-
ir einn bandarísku hermannanna
hafa gefið þá skýringu að þeim
hafi sýnst Dana bera sprengju-
vörpu á öxl sér, ekki myndatöku-
vél.
„Það var allt krökkt af frétta-
mönnum þarna. Þeir vissu að við
vorum fréttamenn, þetta var alls
ekkert slys,“ sagði Abbas.
Bandaríkjaher hefur fyrirskip-
að rannsókn á atvikinu en tals-
menn hersins eru fámálir um at-
vikið.
„Mazen var einn af bestu mynda-
tökumönnum Reuters og við tökum
fráfall hans mjög nærri okkur.
Hann var hugaður fréttamaður og
margverðlaunaður fyrir framgöngu
sína á átakasvæðum,“ segir í yfir-
lýsingu frá Stephens Jukes, frétta-
stjóra erlendra frétta hjá Reuters.
Nítján fréttamenn hafa fallið í
Írak frá því innrásarstríðið í Írak
hófst, 20. mars sl. Þá er saknað
fréttamanns og túlks saknað frá
22. mars, en báðir hurfu eftir
skotárás sem varð í suðurhluta
Íraks.
the@frettabladid.is
Friðargæslulið í Írak:
Ungverjar
í hópinn
BÚDAPEST, AP Ungverjar hafa
ákveðið að senda 177 friðargæslu-
liða til Íraks. Búist er við að þeir
komi til landsins í dag. Friðar-
gæsluliðarnir bíða nú eftir farar-
tækjum og búnaði í Kúveit en
halda þaðan til Hillah, sem er um
100 kílómetra fyrir sunnan
Bagdad, höfuðborg Íraks.
Ungversku friðargæsluliðarn-
ir, sem lúta stjórn Pólverja, munu
meðal annars aðstoða við upp-
byggingu samgangna. ■
Sjötugur flugmaður
í haldi:
Rauf
lofthelgi
Úkraínu
ÚKRAÍNA, AP Þrír Þjóðverjar eru í
haldi yfirvalda í Úkraínu vegna
flugs inn í lofthelgi landsins án
heimildar. Flugmaðurinn, sem er
74 ára gamall, var handtekinn
ásamt tveimur farþegum þegar
einkaflugvél þeirra lenti á
Dnipropetrovsk-flugvellinum,
tæplega 500 kílómetra suðaustur
af höfuðborginni Kiev. Þýsk yfir-
völd eru fámál, en opinber rann-
sókn er hafin á atvikinu. ■
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
VetrarPlús
Plúsfer›a
er kominn út
Frábær
tilbo›
í allan
vetur!
33.442 kr.
38.830 kr.
Ver›dæmi Kanarí - sta›greitt
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2ja-11 ára í 7 nætur 10. janúar.
á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið: Flug, gisting á Verilplaya, ferðir til
og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar.
39.242 kr.
69.930 kr.
Ver›dæmi Benidorm - sta›greitt
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2ja-11 ára í 14 nætur 5. nóvember.
á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið: Flug, gisting á Halley, ferðir til
og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar.
BIÐ Á BRYGGJUHVERFI Skipu-
lagsnefnd Kópavogs frestaði á
síðasta fundi sínum að taka af-
stöðu til óskar Bygg ehf. og
Björgunar ehf. um fram-
kvæmdaleyfi til landfyllingar
vegna bryggjuhverfis á Kárs-
nesi við Fossvog.
NÝJAR LÓÐIR Á EGILSSTÖÐUM
Lóðir fyrir allt að fimmtíu og
tvær íbúðir í Selbrekku á Egils-
stöðum hafa verið auglýstar til
úthlutunar. Um er að ræða ein-
býlishús, raðhús og hæðaskipt
sambýlishús. Umsóknarfrestur
er til 9. september.
RÍKIÐ STYRKI LEIGUÍBÚÐIR Bæj-
arráð Austur-Héraðs segist
munu óska eftir sérstakri íviln-
un félagsmálaráðuneytisins og
Íbúðalánasjóðs til handa verk-
tökum sem vilja reisa leigu-
íbúðir á Egilsstöðum. Mikil eft-
irspurn hafi skapast á svæðinu
vegna stóriðjuframkvæmda
ríkisins.
JÓHANNES PÁLL PÁFI II
Páfagarður viðurkennir að Vatikanið hafi á
sínum tíma sent fyrirmæli til presta um að
leynd skuli hvíla yfir kynferðisbrotum
presta, ef á annað borð komist upp um
þá.
„Þeir vissu
að við vorum
fréttamenn,
þetta var alls
ekkert slys.
MAZEN DANA
Kvikmyndatökumaður Reuters lýsti ótta sínum við að verða skotinn, skömmu áður en
Bandarískur hermaður skaut hann til bana.
■ Sveitarstjórnir
Skutu tökumann
Reuters til bana
Bandarískir hermenn í Írak viðurkenna að hafa skotið palestínskan
myndatökumann til bana. Maðurinn hafði skömmu áður lýst yfir ótta
við að verða skotinn. Nítján fjölmiðlamenn hafa nú fallið í valinn. BRJÓSTASTÆKKUN
Sherry Pierre hermaður í Bandaríkjaher fær
trúlega að halda sílíkonpokunum sem settir
voru í brjóst hennar á kostnað hersins.
Fangelsi fyrir kaup á
kostnað hersins:
Borgaði bíl
og brjósta-
stækkun
NEW ORLEANS, AP Sherry Pierre, yf-
irmaður í bandaríska hernum í
New Orleans, var nýverið dæmd í
fjórtán mánaða fangelsi fyrr
þjófnað. Pierre fór, að mati yfir-
manna sinna, fullfrjálslega með
krítarkort hersins. Meðal þess
sem hún keypti út á kortið var
bíll, mótorhjól og að auki brjósta-
stækkun. Samtals keypti Pierre
vörur og þjónustu fyrir sjálfa sig
út á kortið fyrir rúmar tíu milljón-
ir íslenskra króna á árunum 2000
og 2001. Pierre játaði sekt sína.
Auk fangelsisvistar þarf hún að
greiða tæplega 2,5 milljónir í sekt
og verður lækkuð í tign. ■