Fréttablaðið - 19.08.2003, Qupperneq 9
9ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst 2003
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Tvíréttað í hádeginu
á aðeins 1.900 krónur
einnig þrírétta
matseðill
Formaður sjávarútvegsnefndar um hugmyndir sjávarútvegsráðherra:
Óásættanlegt að skipt verði á sléttu
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Það er óásætt-
anlegt að skipta á sléttu á
byggðarkvóta og línuívilnun
sem átti að verða til að styrkja
byggðir en ekki veikja,“ segir
Einar Kristinn Guðfinnsson, al-
þingismaður og formaður sjáv-
arútvegsnefndar Alþingis, um
þær hugmyndir Árna
Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra að afnema byggðakvóta
gegn því að taka upp línuíviln-
un. Árni hefur lýst áhuga sínum
á því að núllstilla, með því að
mæta línuívilnun og afnema
byggðakvótann.
Í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar er því lýst að
kannaðir verði kostir þess að
auka byggðarkvóta og taka upp
línuívilnun. Sjávarútvegsráð-
herra hefur nú lýst því að hann
leiti leiða til að afnema byggða-
kvótann og líklega verði línu-
ívilnun ekki tekin upp í haust
eins og Davíð Oddsson gaf lof-
orð um á fundi á Ísafirði. Þar
sagði forsætisráðherra ekki sjá
að neitt væri því til fyrirstöðu
að taka upp línuívilnun strax í
haust. Hann hefur nú skipt um
skoðun.
Einar Kristinn segir að vissu-
lega sé úthlutun byggðarkvót-
ans erfið og oft hafi sprottið um
úthlutunina deilur. Hann segir
línuívilnunina vera bestu að-
ferðina til að tengja veiðiréttinn
byggðum landsins.
„Ég er ekki sárstakur áhuga-
maður um að verja byggðakvót-
ann. Úthlutun hans er mikið
vandræðabarn. Það að taka upp
línuívilnun getur verið aðferð
til að feta sig út úr byggðar-
kvótanum. Það verður þó að
gerast þannig að þeir sem nú
hafa byggðarkvóta verði ekki
fyrir skakkaföllum og hlýtur
því að vera lengri tíma mark-
mið,“ segir Einar Kristinn. ■
EINAR K. GUÐFINNSSON
Deilir ekki þeirri skoðun ráðherra sjávarút-
vegsmála að núllstilla eigi með því að af-
nema byggðakvóta.
BEITIR NK
Stór floti er austur af landinu í leit að kol-
munna og vonast menn til að veiðin glæð-
ist á næstu dögum.
Kolmunni:
Dræm veiði
KOLMUNNI Bakslag hefur komið í
veiðar á kolmunna, en veiðin hef-
ur verið dræm síðan um miðja síð-
ustu viku. Að sögn Gunnþórs
Ingvasonar, aðstoðarmanns for-
stjóra Síldarvinnslunnar á Nes-
kaupstað, er eitt og eitt hol að
hitta í ágætis veiði, en enginn
kraftur sé í veiðunum.
Að sögn Gunnþórs er stór floti
austur af landinu að reyna að
finna kolmunnann, en skipin hafa
mikið haldið sig í Hvalbakshalli.
Gunnþór á þó von á að veiðin
glæðist. „Það gengur hægt í
augnablikinu, en þetta kemur
allt,“ segir hann. ■
NÝSKÖPUNARSJÓÐUR
Kannanir sýna að konur er tregari en karlar
til að taka áhættu með sjálfstæðan at-
vinnurekstur.
Brautargengi:
Konur
virkjaðar
MENNTUN Brautargengi, námskeið
sem haldið er af Impru, nýsköp-
unarmiðstöð á Iðntæknistofnun,
verður í haust haldið í 10. sinn, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Impru. Markmiðið með
Brautargengi er að virkja konur
sem hafa góða viðskiptahugmynd
og að vinna með hana nánar.
Að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu hafa kannanir Impru
sýnt að 50%-60% kvenna sem lok-
ið hafa Brautargengisnámi eru
með fyrirtæki í rekstri, en kann-
anir hafa sýnt að konur eru treg-
ari til að taka áhættu með sjálf-
stæðan atvinnurekstur. ■