Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.08.2003, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 19.08.2003, Qupperneq 17
Tímabær frétt birtist á forsíðuFréttablaðsins á dögunum um rannsókn ríkislögreglu á starfsemi trúfélags. Það er von mín að þessari löngu tímabæru rannsókn verði fylgt áfram af fullum krafti. Auðvitað er fólki ekki sjál- frátt þegar það lætur hafa af sér stórar fjár- hæðir undir þrýstingi „elsk- andi“ manna sem taka við miklum fjár- munum fyrir hönd þess sem öllu ræður. Þetta andlega ofbeldi innan trúfélaga á sér víða stað. Heimsfriðar- samband fjöl- skyldna, sem áður gekk undir nafninu Uni- fication Church ,var stofnað af séra Moon 1960 og komst hann fyrst í heimsfréttirnar af ein- hverju ráði fyrir skattsvik á átt- unda áratugnum. Starfsemi þessarar kirkju hefi ég kynnst persónulega og langar mig til að upplýsa fólk um peningaplokkið þar á bæ. Heilaþvottur og fjáröflun Meðlimir eru sendir til margra mánaða, og stundum ára, í fjáröfl- unarherferðir um allan heim. Þeir ganga í hús og selja vöru undir því yfirskyni að þeir séu fátækir námsmenn. Allur ágóði, að frá- dregnu uppihaldi, rennur til höf- uðstöðva kirkjunnar. Í Evrópu eru þær í Frankfurt. Þaðan er fjár- magni komið fyrir á bankareikn- inga og millifært eða sent til Suð- ur-Ameríku og Kóreu. Meðlimum ber að greiða tíu prósent af tekj- um sínum en talað hefur verið um þrjátíu prósent. Alls konar gjöld eru í gangi. Nú síðast svonefnt himnaríkisgjald, fyrir inngöngu í himnaríki, sem innheimt er á námsskeiði í Kóreu. Upphæðin er rúmir 1000 Bandaríkjadalir. Þá ber að greiða fyrir sérstakt nafnskír- teini, eða vegabréf hinnar nýju þjóðar Moons, sem hann kallar hina nýju Ísrael. Fjörtíu daga dvöl í sæluríki hans í Suður-Ameríku kostar um 2000 Bandaríkjadali. Sérstakar samkomur eru haldnar til að frelsa forfeður, en hverjir sjö ættliðir kosta um 300 dali. Þá er ógetið um þær afmælisgjafir til Moons og eiginkonu hans sem meðlimir þurfa að fjármagna. Ekki er óalgengt að keyptir séu dýrir skartgripir úr gulli og strey- ma þeir að frá öllum löndum. Andlegt ofbeldi Þá ber að spyrja hvernig og hvers vegna fólk lætur hafa sig út í slíkan þrældóm. Kannski er meginástæðan sú að tekið er á móti nýjum meðlimum með ólýs- anlegri ást og mannkærleika. Fólk er ginnt með matarboðum og súkkulaði og byrjað er á að forrita hugsun þess upp á nýtt. Öll gagnrýni er sögð af hinu illa og sýna verður skilyrðislausa hlýðni við leiðtoga. Moon er ein- ráður og orð hans eru lög og geð- þóttaákvarðanir óumdeilanlegar. Enda taka meðlimir hans hann fyrir heilagan Messías -Krist endurkominn. Heilaþvegnir meðlimir segja sig ekki knúna til eins né neins. Þeir séu í söfnuðinum af frjálsum vilja. Ég er þó á annarri skoðun. Þeir eru undir miklum andlegum þrýstingi, andlegu ofbeldi sem felst m.a. í því að ef þeir ekki greiða uppsett gjöld, er þeim hót- að refsingu guðs og eilífri útskúf- un. Eins og starfsemi þessarar kirkju blasir við mér, er hún ein stór peningavél sem hefur með- limi sína að féþúfu í gengdar- lausu peningaplokki sem á sér einsdæmi í allri kirkjusögunni. Tíundagreiðslur eru val Ég er ekki viss um að ofannefnd frétt Fréttablaðsins hafi átt við þessa kirkju, þar sem hún er ekki fjölmenn hér á landi. En ef ríkis- lögreglustjóri telur ástæðu til að rannsaka tíundagreiðslur annarra trúfélaga, þá hefur hann enn meiri ástæðu til að fara í saumana á Moonkirkjunni. Það má árétta í framhaldi af þessu að tíundagreiðslur voru hluti af lögmáli Móse. En þær eru engin skylda lengur, ekki frekar en dýra- fórnir sem voru stundaðar af Ísraelsmönnum. Kristnir menn búa ekki lengur við þessi lögmál. Óprúttnir kirkjuleiðtogar hafa not- fært sér þekkingarleysi meðlima til að hafa af þeim fé og auðgast á þeim, gagnstætt öllum kristnum gildum og jafnvel boðum Jesú Krists, sem þeir telja sig vera tals- menn fyrir. Því er ánægja til þess að vita að ríkislögreglustjóri ætli sér að rannsaka hina andlegu ofbeldis- menn í þjóðfélaginu, sem af mik- illi ósvífni kenna sig við Krist. Ég þakka Fréttablaðinu fyrir upp- sláttinn. ■ 17ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst 2003 „Óprúttnir kirkjuleiðtog- ar hafa not- fært sér þekk- ingarleysi meðlima sinna til að hafa af þeim fé og auðgast á þeim gagn- stætt öllum kristnum gild- um og jafnvel boðum Jesú Krists sem þeir telja sig vera tals- menn fyrir. DANSAÐU HANDFRJÁLS ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 21 88 6 0 8/ 20 02 Handfrjáls búnaður Samlituð vindskeið Hágæða hljómtæki Lúxus innrétting COROLLA - MOBILE Vertu líka í nánu sambandi. Komdu strax. Prófaðu nýjan Corolla Mobile með handfrjálsum búnaði, Sedan, Hatchback eða Wagon. Corolla Mobile er hlaðinn nýjungum, innréttingin er ríkuleg og tónlistin dunar í hágæða hljómtækjum með 6 hátölurum. Corolla Mobile er glæsilegur bíll að utan sem innan. Við bjóðum þér upp.... í reynsluakstur. www.toyota.is FJÖLDAGIFTING Á VEGUM SÉRA MOON „Eins og starfsemi þessarar kirkju blasir við mér,“ skrifar Einar Ingvi Magnússon, „er hún ein stór peningavél sem hefur meðlimi sína að féþúfu í gengdarlausu peningaplokki sem á sér einsdæmi í allri kirkjusögunni.“ Umræða EINAR INGVI MAGNÚSSON ■ skrifar um rannsókn ríkis- lögreglu á starf- semi trúfélaga Féþúfur trúarleiðtoga

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.