Fréttablaðið - 19.08.2003, Qupperneq 18
18 19. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Mikhail Gorbachev missti völd-in á þessum degi fyrir 1tólf
árum. Það er ekki lengra síðan en
þá að harðlínumenn innan Komm-
únistaflokksins komu honum í
stofufangelsi á heimili hans í Cri-
mea. Fréttir af valdaráninu sögðu
Gorbachev hafa tekið sér frí frá
störfum vegna heilsuleysis og rík-
isfjölmiðlarnir í Sovétríkjunum
fyrrverandi fylltust af fordæm-
ingum á stefnu forsetans. En nýju
valdhafarnir, undir forystu
Gennady Yanayev, lýstu yfir neyð-
arástandi og fljótlega eftir það
flyktist fólk út á göturnar til að
mótmæla valdaráninu. Það var þá
sem Boris Yeltsin ruddist fram í
sviðsljós heimsins þegar hann
klifraði upp á skriðdreka og bað
hermenn að ráðast ekki gegn þeim
óbreyttu borgurum sem vildu
mótmæla valdaráninu. En mann-
mergðin var mikil við Kreml þrátt
fyrir blátt bann af hálfu þeirra
sem höfðu valdið. Boris tóks hins-
vegar að tala hermennina til og
þeir réðust ekki gegn almenningi
og síðar varð Yeltsin forseti. ■
19. ágúst 1991
MIKHAIL GORBACHEV
■ upplifði einn af sínum erfiðustu dög-
um á þessum degi fyrir tólf árum. Þá
missti hann völdin og var settur í stofu-
fangelsi af félögum sínum í flokknum.
Boris Yeltsin hoppaði upp á skriðdreka
og fangaði athygli umheimsins.
BILL CLINTON
Maðurinn hennar Hillary á afmæli á þess-
um rokkaradegi. En rokkararnir Billy J.
Kramer úr The Dakotas og Ian Gillan úr
Deep Purple deila deginum með honum
ásamt John Deacon úr Queen.
MIKHAIL GORBACHEV
missti völdin á þessum degi fyrir tólf árum,
en ekki fyrir Yeltsin heldur harðlínukomm-
únistum undir forystu Gennady Yanayev.
Gorbachev í stofufangelsi 1960 Rússar senda tvo hunda í ferðalag
um sporbaug jarðar í gervihnetti.
1964 Bítlarnir fara í fyrstu tónleikaferð
sína um Norður Ameríku. 26
borgir voru á tónleikadagskránni.
1973 Sveitasöngvarinn Kris Kristoffers-
son kvænist Ritu Coolidge í Los
Angeles.
1981 Sjónvarpsþættirnir Charlies Angels
ljúka göngu sinni á sjónvarpsstöð-
inni ABC.
1984 Kylfingurinn Lee Trevino vinnur
66. PGA-mótið með fjögurra
högga mun.
1986 Lagið Papa don’t Preach með
Madonnu kemst á topp banda-
ríska vinsældarlistans.
1991 Fellibylurinn Bob gengur yfir
Bandaríkin. 18 manns farast.
Lítið fyrir umstang
Telma Lucinda Tómasson segistekki vera mikið fyrir að halda
upp á afmælin sín. Í fyrra, þegar
hún fagnaði fertugsafmæli sínu,
ákvað hún að halda veislu með þrig-
gja tíma fyrirvara.
„Þá fór með mínum innsta vina-
hóp í fjöru á Stokkseyri,“ segir
Telma. „Þar kveiktum við bál, borð-
uðum dýrindis humar, drukkum
kampavín og spjölluðum. Engar
ræður,bara skemmtisögur og gam-
an.“
Skiljanlega höfðu gestirnir eng-
an tíma til gjafakaupa en Telmu
hefði ekki getað verið meira sama.
„Mér finnst skemmtilegast að vera
með góðu fólki og það þarf ekkert
að vera eitthvað umstang í kringum
það. Ég á allt, hvað gefurðu fertugri
manneskju?“
Í ár býst Telma við því að afmæl-
isdagurinn verði frekar hversdags-
legur. Móðir hennar, sem er hol-
lensk en býr í París, er stödd á land-
inu og þá er von á góðu. „Hún kann
að búa til góðar kökur og mat, ég
hef hana grunaða um að gefa mér
eitthvað gott í gogginn.“
Heimsókn mömmu bætir kanns-
ki upp fyrir það að eiginmaður
Telmu, kvikmyndagerðamaðurinn
Karl Óskarsson, er í útlöndum og
fagnar áfanganum því ekki með
henni. „Hann ferðast mikið og er oft
staddur erlendis þegar ég á afmæli.
Ég held að það sé nú ekki gert til
þess að komast hjá því að gefa mér
afmælisgjöf,“ segir hún og hlær.
„En ég á von á góðu símtali að utan
og svo hef ég börnin mín heima.“
Gjöfin kemur svo væntanlega
síðar, en eiginmaðurinn er að sögn
afar gjafmildur og notar ekki endi-
lega afmælisdaganna til þess að
gefa. Telma segir lífið hafa verið
sæluríkt eftir að hún hætti á frétta-
deild Stöðvar 2. Hún hefur fengið
tíma til þess að sinna útivist og
hestamennskunni með fjölskyldu
og vinum. Hún fylgist þó ennþá með
og segist vera „enn á klukkunni“.
Sérstaklega þegar stór mál eru í
fréttunum. „Ég átti t.d. mjög erfitt
með mig í kosningunum í vor. Ég
sakna líka fólksins sem ég vann
með. Stöð 2 er gott fyrirtæki og þar
er margt sem ég sakna,“ segir
Telma að lokum.
biggi@frettabladid.is
Silfur Egils hætt
á Skjá einum
Jú, það er búið að segja uppsamningnum við mig,“ segir
Egill Helgason þáttastjórnandi
um þær sögusagnir að hinn vin-
sæli sjónvarpsþáttur Silfur Egils
verði ekki á dagskrá í vetur. „Það
eru komnir nýjir stjórnendur að
stöðinni sem hafa ekki kunnað að
meta það sem ég geri.“
Egill gerði næstum 200 Silfur
Egils þætti á þeim fjórum árum
sem þátturinn var á dagskrá. Árið
2000 fékk hann Edduverðlaun
sem besti sjónvarpsþátturinn á ís-
landi. Það er án efa hægt að full-
yrða að Silfur Egils hafi breytt því
hvernig talað er um pólitík hér á
landi og samkvæmt skoðanakönn-
un Fréttablaðsins í vetur voru Eg-
ill og Gísli Marteinn vinsælustu
sjónvarpsmenn landsins, langt
um vinsælli en þeir sem á eftir
komu.
En forsagan að brottför Egils
er að fyrir kosningarnar í vor
vildu stjórnendur stöðvarinar
gera miklar breytingar á þættin-
um en gáfust upp eftir nokkur
átök:
„Því kemur þessi niðurstaða
ekkert sérstaklega á óvart,“ segir
Egill. „Ég hefði þó verið tilbúinn
að halda áfram með þættina, mér
finnst ekki að ég sé búinn að ljúka
mér af á þessum vettvangi. Ég hef
miklar taugar til Skjás eins og
margra sem þar starfa. En ég veit
að ég er ekki einn um að sakna
þeirra sem áður stjórnuðu fyrir-
tækinu og byggðu það upp. Að
mörgu leyti fannst mér orðið
verulega að mér þrengt á Skján-
um. Það lá ákveðið vantraust í
loftinu og ég var í raun farinn að
vera miklu gætnari en mér er eig-
inlegt að vera. Þeir sem nú hafa
yrirráð yfir Skjánum eru að
sækja fram í fleiri menningarfyr-
irtækjum, það held ég að sé visst
áhyggjuefni.“
Egill spókar sig um Berlín
þessa dagana og hugsar ekki mik-
ið til vetrarins:
„Já, ég er í Berlín núna og upp-
lifi frábæra sumardaga í þessari
mögnuðu borg. Hugsanir um kom-
andi vetur bíða betri tíma en ég
ætla ekki að þagna,“ segir Egill og
þjóðin hlýtur að vona að rödd Eg-
ils hverfi ekki þótt Silfrið verði
ekki á Skjánum í vetur. ■
??? Hver?
„Í grundvallaratriðum er maður ekkert
annað en efni og bruni.“
??? Hvar?
„Ef ég er ekki illa blekktur af einhverjum
Matrix stýrikerfum þá bý ég á plánetunni
Jörð. Ég hef afrekað flest það sem ég
ætlaði að gera, þannig að ég hlýt að
vera á tómri niðurleið héðan í frá.“
??? Hvaðan?
„Ég kem bara úr einhverjum drullupolli
úr forneskju. Kem þó úr Breiðholti, gekk
í Fellaskóla og hélt áfram í Menntaskól-
ann við Sund. Ég ætla að flytja aftur í
Breiðholtið, þegar ég er orðinn gamall
maður, til þess að deyja þar.“
??? Hvað?
„Að finna hamingjuna. Ég er búinn að
ljúka tveimur Háskólaprófum og það er
ekkert miðað við það að finna hamingj-
una. Það er það eina sem maður þarf
að gera í lífinu.“
??? Hvernig?
„Það fer bara eftir efnahvörfum hvers
dags. Annars reyni ég bara að vera hress
eins og Hemmi Gunn.“
??? Hvers vegna?
„Það sem er ekki fyrir tómar tilviljanir og
heppni sem kom mér þangað sem ég
er staddur í dag í lífinu þá þakka ég for-
eldrum mínum allt annað.“
??? Hvenær?
„Í dag, núna! Það er núna sem skiptir
öllu máli, ekki á morgun og ekki í gær.“
TELMA LUCINDA TÓMASSON
„Mér líður alltaf betur og betur eftir því sem árin líða,“ segir Telma.
Afmæli
TELMA LUCINDA TÓMASSON
■ fyrrum fréttakona, spáir því að
dagurinn verði rólegur þrátt fyrir að hún
fagni 41 árs afmæli sínu. Hún grunar þó
móður sína um bakstur og vonast eftir
eplaköku.
Tímamót
EGILL HELGASON
■ stendur á tímamótum þessa dagana.
Það er búið að segja upp samningnum
við hann svo þátturinn Silfur Egils verður
ekki á Skjá einum í vetur. Egill tekur því
rolega í Berlín og spókar sig á kaffihús-
um borgarinnar.
EGILL HELGASON
Hættur á Skjá einum. Þeir sögðu upp samningi við hann og Egill er bara kominn til
Berlínar og spókar sig um bæinn í rólegheitunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Yngvi Guðmundsson, fyrrverandi raf-
magnseftirlitsmaður, Hlíf II, Ísafirði, lést
föstudaginn 15. ágúst.
Ása Jóhannsdóttir, Geitlandi 8, lést
fimmtudaginn 7. ágúst. Útför hennar
hefur farið fram.
Guttormur Sigurbjörnsson, fyrrverandi
forstjóri, lést mánudaginn 11. ágúst.
13.30 Ágúst Guðlaugsson verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju.
13.30 Gunnar I. Sigurðsson frá Hvassa-
hrauni verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju.
15.00 Andrea Benediktsdóttir, Selja-
vegi 19, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni.
15.00 María Guðrún Konráðsdóttir frá
Skagaströnd, Jökulgrunni 4,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju.
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Árni Pétur Guðjónsson leikari, 52 ára.
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður,
51 árs.
Bjarni Þór Óskarsson hæstaréttarlög-
maður, 48 ára.
Þórður Árnason tónlistarmaður, 51 árs.
Tómas Óskar Guðjónsson forstöðu-
maður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins,
44 ára.
■ Afmæli
■ Dagurinn
FREYR EYJÓLFSSON
Dagskrágerðamaður Rásar 2 og
liðsmaður í hljómsveitunum Miðnes
og Geirfuglunum.
■ Persónan
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Tilkynningar
Fréttablaðið býður lesendum sín-
um að senda inn tilkynningar,
hvort heldur er um að ræða dánar-
fregnir, jarðarfarir, afmæli eða
aðra stórviðburði. Fyrirtækjum er
einnig velkomið að nýta sér þessa
þjónustu í sambandi við stöðuveit-
ingar. Tekið er á móti tilkynning-
um á tölvupostfangið tilkynning-
ar@frettabladid.is.
Hafa ber í huga að upplýsingar
verða að vera ítarlegar og helst
tæmandi. ■
19.ágúst