Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 24
FÓTBOLTI Þróttur kom í veg fyrir að
Fylki næði tveggja stiga forystu í
Landsbankadeild karla með 5-1
sigri á Árbæjarvelli. Þróttarar
fengu óskabyrjun þegar Gestur
Pálsson skoraði strax á fjórðu
mínútu og Sören Hermannsen
bætti öðru marki við tíu mínútum
síðar. Staðan í leikhléi 0-2.
Sævar Þór Gíslason minnkaði
muninn á 60. mínútu með marki
úr vítaspyrnu. Þróttarar létu
markið ekki slá sig út af laginu og
bættu Sören og Gestur hvor sínu
markinu við. Páll Einarsson fyrir-
liði innsiglaði síðan sigurinn tæp-
um tíu mínútum fyrir leikslok.
KR heldur þar með toppsætinu
í deildinni, en Þróttarar stökkva
úr sjöunda sæti í það þriðja. ■
24 19. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR
NÝTA SÉR TÆKNINA
Vélmennið Ami hélt á kyndlinum fyrir Há-
skólaleikanna í Suður-Kóreu. Háskólaleik-
arnir verða haldnir í 22. sinn í borginni
Daegu og standa yfir í tíu daga.
Háskólaleikar
Góður möguleiki
á sæti í lokakeppni
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu mætir Færeyingum í
Þórshöfn á morgun í undankeppni
Evrópumótsins. Henrik Larsen,
landsliðsþjálfari Færeyja, segir
leikinn mikilvægan báðum liðum
og vonast til að ná hagstæðum úr-
slitum.
„Við vorum nálægt því að ná
jafntefli gegn Íslandi á útivelli og
stóðum í Þjóðverjum svo það get-
ur allt gerst,“ sagði Larsen þegar
Fréttablaðið náði tali af honum í
gær.
Ísland vann fyrri leik þjóðanna
á Laugardalsvelli með tveimur
mörkum gegn einu. Ísland er í
öðru sæti 5. riðils undankeppninn-
ar með níu stig, tveimur stigum á
eftir Þjóðverjum. Færeyingar eru
á botninum með eitt stig, eftir
jafntefli við Skota í fyrsta leik.
„Ég er ekki ánægður með
stöðu okkar í riðlinum og hefðum
við verið aðeins heppnari í leikj-
um okkar værum við með fleiri
stig,“ segir Larsen en Færeyingar
töpuðu naumlega fyrir Þjóðverj-
um, 2-1, á útivelli. „Þetta er hluti
af leiknum og ég vona að heppnin
snúist okkur brátt í hag.“
Færeyingar geta ekki stillt
upp sínu sterkasta liði þar sem
Frode Benjamín og Jåkúp á Borg
eru í leikbanni.
„Þetta verður erfiður leikur.
Allir leikmenn íslenska liðsins
spila með erlendum félagsliðum
en við getum náðu hagstæðum úr-
slitum ef við leikum eins og við
gerðum í seinni hálfleik á Laugar-
dalsvelli,“ segir Larsen. „Íslenska
liðið á eftir að leggja allt í sölurn-
ar þar sem það er í góðri stöðu í
riðlinum.“
Íslenska liðið á eftir þrjá leiki í
riðlakeppninni, gegn Færeying-
um á morgun og tvo gegn Þjóð-
verjum, silfurliði frá heimsmeist-
aramótinu í fyrra. Henrik Larsen
telur íslenska liðið eiga mikla
möguleika á að komast í loka-
keppni Evrópumótsins.
„Þjóðverjar eru ekki með jafn
sterkt lið og áður svo Ísland á
góða möguleika á að komast
áfram. Í íslenska liðinu eru góðir
einstaklingar, eins og Eiður
Smári Guðjohnsen, sem geta
klárað leikina upp á sitt eins-
dæmi.“
kristjan@frettabladid.is
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen,
leikmaður Chelsea, og Pétur
Hafliði Marteinsson, hjá Stoke
City, náðu ekki að mæta á æfingu
með íslenska landsliðinu í Fær-
eyjum í gærdag þar sem þeir
misstu af flugi um morguninn.
Eiður Smári og Pétur voru vænt-
anlegir til Færeyja í gærkvöldi.
Lárus Orri Sigurðsson, leik-
maður W.B.A., er á batavegi en
hann hefur átt við meiðsli að
stríða í brjósti. „Hann er betri í
dag en í gær,“ sagði Logi Ólafs-
son, landsliðsþjálfari, þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í
gær. Lárus Orri tók þátt í æfing-
unni í gær en það skýrist ekki
fyrr en í dag hvort hann verður
leikfær. Landsliðsþjálfararnir
völdu nítján manna hóp, en ljóst
er að einn á eftir að detta út fyrir
leikinn gegn Færeyjum á morg-
un. Pétur var kallaður inn í hóp-
inn eftir að meiðsli Lárusar Orra
voru ljós. ■
Eiður Smári og Pétur Hafliði:
Misstu af flugi
til Færeyja
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN
Missti af flugi til Færeyja í gær og gat
ekki tekið þátt í æfingu.
Ísland mætir Færeyjum í undankeppni Evrópumótsins á morgun.
Henrik Larsen, landsliðsþjálfari Færeyinga, býst við hörkuleik.
Segir Ísland eiga góða möguleika á að komast í lokakeppnina.
STAÐAN Í 5. RIÐLI:
Leikir U J T Stig
Þýskaland 5 3 2 0 11
Ísland 5 3 0 2 9
Skotland 5 2 2 1 8
Litháen 6 2 1 3 7
Færeyjar 5 0 1 4 1
HENRIK LARSEN
Landsliðsþjálfari Færeyja býst við hörkuleik í dag og telur Ísland eiga góða möguleika
á að komast í lokakeppni Evrópumótsins.
BALLACK MEIDDUR Miðvallarleik-
maðurinn Michael Ballack getur
ekki tekið þátt í vináttuleik Þýska-
lands og Ítalíu á morgun vegna
meiðsla. Ballack er meiddur á
kálfa og gat ekki leikið á móti Ís-
lendingaliðinu Bochum á laugar-
daginn var.
STOKE FÆR LIÐSAUKA Stoke City
hefur krækt í varnarmaninn Paul
Williams. Williams, sem lék áður
með Southampton og Coventry í
ensku úrvalsdeildinni, kom til
Stoke án greiðslu. Þetta er mikill
fengur fyrir Stoke sem situr á
toppi ensku 1. deildarinnar.
■ Fótbolti
■ Leiðrétting
Rangt var farið með nafn Björg-vins Páls Gústafssonar, mark-
varðar íslenska U-18 ára landsliðs-
ins í handknattleik, í blaðinu í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
KARLAR
L U J T Mörk Stig
KR 14 8 3 3 21 : 17 27
Fylkir 14 8 2 4 22 : 15 26
Þróttur 14 7 0 7 24 : 21 21
FH 14 6 3 5 24 : 22 21
ÍA 14 5 5 4 21 : 19 20
ÍBV 14 6 1 7 20 : 21 19
Grindavík 14 6 1 7 18 : 23 19
KA 14 5 2 7 24 : 22 17
Valur 14 5 1 8 18 : 23 16
Fram 14 4 2 8 19 : 28 14
Úrslit leikja í gær
Fylkir 1:5 Þróttur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÚR LEIK ÞRÓTTAR OG FYLKIS
Þróttarar tóku Fylkismenn í kennslustund á Árbæjarvelli í gær.
Landsbankadeild karla:
Stórsigur
Þróttar