Fréttablaðið - 19.08.2003, Page 27

Fréttablaðið - 19.08.2003, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst 2003 ■ SKRÝTNA FRÉTTIN ■ FYRIRLESTUR 27 Suðurlandsbraut 14 • 108 Reykjavík • Sími 57 57 600 • Fax 57 57 605 • www.fossberg.is • fossberg@fossberg.is si gu r@ vo rt ex .is si gu r@ vo rt ex .is 3/8 toppasett BE 96025501 Útsöluverð kr 9.995 með vsk Geirungsög ME 601670000 Útsöluverð 63.995 með vsk Rafhlöðuborvél BST 18 volt Rafhlöðu handljós ME 602400500 Útsöluverð 37.495 með vsk Rafhlöðuborvél BST 12 volt ME 602274510 Útsöluverð 15.995 með vsk Flísasög 400 wött 23500033 Útsöluverð 27.995 með vsk Ágúst-útsala BERTOOL METABO METABO METABO LUTZ Öryggisskór ýmsar gerðir afsláttur 30-70% VIRUTEX-rafmagnsverkfæri síðustu eintökin á miklum afslætti Heflar - fræsarar - hjólsagir TREND-fræsarar CRAIG DAVID Á föstudaginn var haldin hin árlega tónlist- arverðlaunahátíð Comet 2003 í Köln, Þýskalandi. Hér sést breski popparinn Craig David taka við verðlaunum sem hann vann fyrir „besta alþjóðlega mynd- bandið“. Nítíu og eins árs gamall Texas-búi hefur verið ásakaður um að ræna þrjá banka á síðustu fimm árum. JL Hunter „Red“ Rountree á að hafa rænt þrjá banka First Amer- ican Bank keðjunnar með því að rétta fram umslag til gjaldkerans þar sem á stóð ritað „RÁN“. Í þriðja skiptið sem hann gerði þetta, á fimmtudaginn síðasta, náði vitni bílnúmerinu hjá gamal- menninu og tilkynnti lögreglu. Rountree var því handtekinn á leiðinni heim til sín. Gamli maðurinn situr nú í fang- elsi sakaður um bankarán. Hann getur orðið frjáls ferða sinna tíma- bundið gegn tæpum tólf milljónum króna. Rountree stal tæpum 160 þúsund krónum úr bankanum. „Ég man ekki eftir því að hafa handtekið jafngamlan mann,“ sagði lögreglumaðurinn sem hand- tók hann. „Ég hef aldrei heyrt um það að jafngamall maður brjóti lögin, hvað þá að hann ræni banka.“ ■ FYRIRLESTUR Austurríski heimspek- ingurinn Hans Köchler telur neit- unarvald fimm ríkja í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vera alvar- legan veikleika á alþjóðasam- starfi Sameinuðu þjóðanna. Dr. Hans Köchler, sem er bæði prófessor í heimspeki og deildar- forseti heimspekideildar Inns- brück háskóla í Austurríki, er staddur hér á landi og ætlar að flytja nú í hádeginu fyrirlestur um samspil valds og alþjóðarétt- ar. Fyrirlesturinn verður fluttur í stofu 101 í Odda og nefnist hann: „The Dialectic of Power and Law: The United Nations and the New World Order“. Mótsögnin, sem skipan Sam- einuðu þjóðanna hvílir á að hans mati, felst í því að þeim er ætlað að vera vettvangur fyrir samstarf ríkja á jafnréttisgrundvelli, en um leið er starf þeirra takmarkað af neitunarvaldi fimm ríkja. Köchler telur þennan veikleika hæglega geta riðið Sameinuðu þjóðunum að fullu. Svo gæti farið að stofna þurfi ný alþjóðleg sam- tök með yfirþjóðlegt vald sem tækju við af Sameinuðu þjóðunum en væru laus við þennan ann- marka. ■ BANKARÁN „Réttu mér alla peningana eða ég fæ hjartaáfall á staðnum!“ 91 árs gamall bankaræningi Eru Sameinuðu þjóðirnar úreltar? DR. HANS KÖCHLER Flytur fyrirlestur um samspil valds og alþjóðaréttar nú í hádeginu í Odda, húsi hugvísinda- og viðskiptafræði- deilda Háskóla Íslands.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.