Fréttablaðið - 19.08.2003, Síða 30
TÓNLIST Ásmundur Jónsson, út-
gáfustjóri Smekkleysu, ætti að
vera orðinn kunnugur tónlist vin-
konu sinnar, Bjarkar Guðmunds-
dóttur. Á dögunum aðstoðaði hann
hana við að velja úr safni tónleika-
upptekna frá fjórum tónleikaferð-
um hennar um heiminn. Afrakst-
urinn var gefinn út í safnboxi, þar
sem er að finna fjóra geisladiska,
DVD disk og bók með myndum og
ítarlegu viðtali, þar sem Ási spyr
og Björk svarar.
„Ég fór t.d. í gegnum einhverja
sjötíu tónleika á Homogenic-tón-
leikaferðalaginu,“ segir Ási sem
hefur fundið fyrir miklum áhuga
af útgáfu af þessu tagi frá aðdá-
endum Bjarkar. „Það sést best á
öllum þeim fjölda sjóræningjaút-
gáfum sem eru flæðandi á mark-
aðinum. Hér gengur fólk að ein-
hverju sem hljómar vel, vitandi
að þetta eru hápunktar á viðkom-
andi tímabilum.“
Árið 1997 setti Björk það sem
vinnureglu að hljóðrita alla tón-
leika sína. „Það var þess vegna til
miklu minna efni frá fyrstu
tveimur tónleikaferðunum.“ Upp-
tökurnar af Debut tónleikaferð-
inni eru mest megnis samansettar
af MTV unplugged tónleikum
Bjarkar. „Eftir á að hyggja standa
þeir tónleikar algjörlega upp úr
hvað varðar tónleikahald frá þess-
um tíma. Björk kom þar með sér-
staka hlið á Debut-lögunum sem
var að hluta til nær hinum upphaf-
legu hugmyndum af lögunum á
Debut.“
Í laginu „I Go Humble“ af
Homogenic má svo heyra Björk
skjóta inn tilvitnunum í Michael
Jackson lagið „Wanna Be Start-
ing Something“ af plötunni
„Thriller“.
Nú vinnur hún að sinni
fimmtu eiginlegu breiðskífu
sem ætti að verða tilbúin í lok
ársins. Eins og staðan er í dag er
þó ekki reiknað með útgáfu fyrr
en næsta vor.
biggi@frettabladid.is
Hrósið 30 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR
Ég keypti mér bara svona bókí gegnum Netið af því að ég
vildi gera teiknimynd,“ segir
Sigurður Orri Þórhannesson,
kvikmyndagerðarmaður og
tölvunörður, um það hvernig
hann, rétt orðin 22ja ára, fór að
því að vinna norræna keppni á
kvikmyndahátíð í Noregi.
„Ég er algjört tölvunörd og
hef mjög gaman af því að hanga
einn inni í sama herberginu.
Þessi mynd er samt þriggja ára
og í raun sendi ég hana bara inn
í einhverju djóki. En nú held ég
að ég sé orðinn miklu betri í
þessu og langar til að gera nýja
mynd í vetur,“ segir Sigurður
Orri, en hann vinnur með pabba
sínum við forritun en ætlar í
Listaháskólann í haust og læra
grafíska hönnun. ■
Kvikmynd
SIGURÐUR ORRI
ÞÓRHANNESSON
■ vann til verðlauna á norrænu kvik-
myndahátíðinni í Tromsö um helgina og
kemur ekki heim fyrr en á morgun. Hann
vinnur hjá pabba sínum og ætlar í Lista-
háskólann.
... fær Sif Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdarstjóri Menningarnætur,
fyrir vel unnið starf.
Verðlaun veitt fyrir
íslenska mynd
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Ísafjarðarbær.
Geoff Hoon ráðherra.
Þjóðverja.
VERÐLAUNATEIKNIMYND
Tölvugerða teiknimyndin hans Sigurðar
Orra Þórhannessonar vann til verðlauna í
Tromsö um helgina.
Vilja næst fá
stærra svið
og risaskjái
TÓNLEIKAR Talið er að um sjötíu
þúsund manns hafi séð tónleika
Rásar 2 og Reykjavíkurborgar á
Hafnarbakkanum á Menning-
arnótt.
„Við erum alveg í þrjú þúsund
fetum, algjörlega í skýjunum,“
segir Ólafur Páll Gunnarsson hjá
Rás 2, en hann átti hugmyndina
að fjölskylduvænum tónleika rétt
fyrir flugeldasýningu. „Þetta
heppnaðist frábærlega í alla
staði. Við höfum verið að fá mik-
ið af tölvupósti og símtölum frá
alls kyns fólki sem var hrifið af
þessu.“
Óli Palli segir mikinn vilja hjá
Rás 2 að gera tónleikana að árleg-
um viðburði. Þá væri hægt að
stækka þá í smíðum. „Í öllu sem
maður gerir vill maður gera bet-
ur en síðast. Það má alltaf gera
aðeins betur. Það væri gaman ef
hægt væri að hafa stærra svið og
risasjónvarpsskjái svo fleiri geti
séð. Vonandi heyrðu flestir það
sem var að gerast á sviðinu en
það voru ekki svo margir sem
sáu það.“
Óli segir að ekkert hafi verið
rætt um áframhaldandi samstarf
stjórna Menningarnætur og Rás-
ar 2. Hann ítrekar þó að sam-
starfsviljinn sé mikill innan Rás-
arinnar. ■
Kvikmynd Dags Kára Péturs-sonar, Nói Albínói, hefur vak-
ið töluverða athygli á kvikmynda-
hátíðum í helstu borgum Ástralíu.
Aðstandendur hátíðarinnar í Mel-
bourne fara fögrum orðum um
myndina en gagnrýnandi hátíðar-
innar í Sydney segir Nóa Albínóa
velheppnaða og „snjóhvíta“ frum-
raun. Einnig er óhætt að fullyrða
að Nói hefur unnið hug og hjörtu
áhorfanda en þeir fimm hundruð
frumsýningargestir sem fylltu að-
alsal hátíðarinnar gáfu myndinni
háa einkunn. Gagnrýnandi The
Courier Mail, útbreiddasta dag-
blaðs borgarinnar, var einnig hrif-
inn og setti myndina efst á lista
yfir áhugaverðar myndir á hátíð-
inni, sem hafði um tvö hundruð
kvikmyndir á efnisskránni.
Fréttiraf fólki
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal það tekið fram að hrefna
er ekki kvenmaður heldur hvalategund.
Safnbox frá Björk:
Hápunktar
á tónleikum
BJÖRK
Gerði það að vinnureglu árið 1997 að hljóðrita alla tónleika sína.