Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 4
4 1. september 2003 MÁNUDAGUR Er búið að ýta Eiði Smára Guð- johnsen til hliðar í liði Chelsea? Spurning dagsins í dag: Væri betra að setja sölubann í stað veiðibanns á rjúpu? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 32,5% 67,5% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Gefa á fimmtíu daga frest til að rífa viðbyggingu í Heiðargerði: Húseigandi borgi 50 þúsund á dag SKIPULAGSMÁL Gefa á eiganda húss í Heiðargerði frest í fimmtíu daga til að rífa ólöglega ofanábyggingu. Sekta á húseigandann um 50 þús- und krónur fyrir hvern dag sem líður fram yfir frestinn ef viðbyg- gin er ekki fjarlægð. Hæstiréttur dæmdi, eftir mikinn málarekstur á fyrri stig- um, að ofanábyggingin í Heiðar- gerði skyldi hverfa. Viðbyggingin var reist án þess að afla bygging- arleyfis frá borgaryfirvöldum. Sá hluti sem á að hverfa er í ósam- ræmi við deiliskipulag hverfisins. Borgaryfirvöld vilja að húsið verði fært í slíkt horf að það verði í sam- ræmi við byggingarleyfi sem gefið var út í júní árið 2000. Dagsektirnar voru samþykktar í skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur á miðvikudag með at- kvæðum fulltrúa R-listans. Sjálf- stæðismenn sátu hjá. Málinu var vísað til borgarráðs sem mun taka endanlega afstöðu til þess hvort borgin beiti dagsektum til að knýja húseigandann til að hlíta dómi Hæstaréttar. ■ Í vanda með valið Ótrúlega margir mættu til undankeppni í Idol-stjörnuleit Stöðvar 2. Aðstandendur keppninnar eru mjög ánægðir og segja það koma á óvart hve sjálfsörugg og hæfileikarík ungmennin eru. KEPPNI Tæpur helmingur þeirra um það bil 140 ungmenna sem skráðu sig til keppni í Idol keppni Stöðvar 2 mættu til leiks. Keppnin fór fram á Hótel Lofleiðum og var mikið um að vera þar alla helgina. Pálmi Guðmundsson, markaðs- stjóri hjá Stöð 2, sagði keppnina hafa gengið ótrúlega vel. „Þetta unga fólk hefur staðið sig gífur- lega vel og í raun ótrúlegt hve dugleg þau eru að standa á sviði undir svona pressu,“ segir hann. Hann neitaði ekki að vissulega hafi verið grátur og gnístran tanna inn á milli en enginn kæm- ist upp með að renna á rassinn og þeir sem hafi ætlað að hætta við á síðustu stundu hafi verið ýtt áfram. „Það kemur mér samt á óvart hvað þessi kynslóð er opin og með gott sjálfstraustið,“ sagði Pálmi. Hann sagði mjög erfitt að velja úr því í hópnum séu svo margir hæfileikaríkir krakkar. Í byrjun voru 140 ungmenni valin úr og síðari daginn var skorið niður um helming. Eftir standa því 70 keppendur sem munu taka þátt í keppni í Austur- bæ síðar í mánuðinum auk þeirra sem valin verða á Akureyri um næstu helgi. Pálmi sagði að í keppninni í Austurbæ verði valdir 32 sem munu koma fram í fjórum þáttum en fyrsti þátturinn verður sendur út í 19. september. „Ég er kominn í 70 manna hóp- inn,“ söng ung stúlka sem kom fram og ljómaði af ánægju. Fjög- ur önnur biðu eftir að verða kölluð í prufu en voru harla ánægð að hafa komist í 140 manna hópinn. Þau sögðust vera mjög spennt og Anna Margrét Káradóttir frá Grindavík sagðist vera meira en lítið stressuð á meðan hún biði eft- ir að verða kölluð á svið. „Þetta er ótrúleg spenna en afskaplega gaman. Svo er bara að sjá hvernig mér tekst upp,“ sagði hún. Einar Már Björnsson bar sig vel og sagðist ekki finna fyrir neinni spennu, þetta væri fyrst og fremst gaman. Í salnum og á göngum var hvarvetna ungt fólk sem beið rólegt, hló og spjallaði á meðan beðið var, Pálmi sagði stemninguna hafa verið útrúlega góða. „Krakkarnir voru komnir hingað fyrir klukkan fyrir níu í morgun og hafa skemmt sér vel á meðan þau hafa beðið. Þau tóku lagið saman og það hljómaði söng- ur um allt hótel.“ bergljot@frettabladid.is RAUÐU ÖRVARNAR Listflugsveit breska flughersins, Rauðu örv- arnar, sýndi listir sína á árlegri flugsýningu í Radom í Póllandi í gær. Fáir fara í föt bestu flugmanna breska flughersins en þeir mynduðu mynstur í öllum regnbog- ans litum á himnum. Rétt ár er síðan list- flugsveitin flaug lágflug yfir Reykjavík á leið sinni frá Skotlandi vestur um haf. STEFNUBREYTING Kim Yong Il, aðstoðarutanríkisráðherra Norður-Kóreu lýsti miklum vilja til áfram- haldandi viðræðna þegar þriggja daga fundi um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu lauk í Pekíng á föstudag. Sólarhring síðar segist hann ekki sjá tilgang í frekari við- ræðum og hótar að efla kjarnorkuvarnir landsins. Efla kjarnorkuvarnir: Segja frekari viðræður til- gangslausar PEKING, AP Norður-Kóreumenn sögðust í gær ekki sjá neinn til- gang með frekari viðræðum um kjarnorkuáætlun landsins. „Það er engin þörf á frekari viðræðum. Þetta hefur verið inn- antómt hjal,“ sagði fulltrúi Norð- ur-Kóreustjórnar í gær, aðeins degi eftir að þriggja daga viðræð- um sex ríkja um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu lauk í Pekíng. Norður-Kóreumenn gáfu á föstu- dag í skyn að þeir vildu ræða um frekari lausn málsins en nú er allt breytt. „Við sannfærumst sífellt betur um að við eigum ekki annars úr- kosta en að styrkja kjarnorku- varnir okkar til þess meðal annars að vernda fullveldi okkar,“ sagði talsmaður utanríkisráðuneytis Norður-Kóreu. JEFFREY LEE PARSON játaði við yfirheyrslur að hafa búið til upp- haflega Blaster-vírusinn og síðar Blaster.B- vírusinn. Vírusdrengur ákærður: Sýkti hálfa milljón tölva MINNESOTA, AP Átján ára unglingur í Minnesota í Bandaríkjunum, Jef- frey Lee Parson var í gær ákærð- ur fyrir að forrita og dreifa skæð- um tölvuormi sem valdið hefur usla víða um heim að undanförnu. Þetta er fyrsta ákæran sem birt er vegna ítrekaðra árása tölvu- orma í sumar. Talið er að vírusar liðinna vikna hafi sýkt hálfa mill- jón tölva, hið minnsta. Parson var handtekinn á föstu- dag, en bandaríska alríkislögregl- an, FBI, neitar að gefa upp hvort fleiri handtökur séu væntanlegar. Parson sætir svokallaðri rafrænni gæslu á heimili sínu - það er þan- nig að á hann hefur verið settur búnaður sem gefur til kynna hvar hann er hverju sinni. Parson er óheimilt að yfirgefa heimili sitt nema til að sækja skóla eða leita læknis. Þá er Parson óheimilt að nota Netið meðan mál hans er í rannsókn. Parson játaði við yfir- heyrslur að hafa hannað upphaf- legan „Blaster-vírus“. Síðar bjó hann til Blaster.B-vírus.“ Ótal af- brigði fylgdu svo í kjölfarið og ollu tjóni sem áætlað hefur verið tæpar 900 milljónir króna. Parson á að koma fyrir dómara á ný 17. september. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi og gæti þurft að greiða rúmar tuttugu milljónir króna í sekt. ■ Umdeildi gripaflutningabíllinn í Sundahöfn: Með vottorð fyrir sótthreinsun STJÓRNSÝSLA Innflytjandi notaðs gripaflutningabíls sem fluttur var inn frá Þýskalandi og stendur í Sundahöfn segir það rangt að bíll- inn hafi ekki verið hreinsaður ytra. „Bíllinn var sótthreinsaður frá A til Ö á þýskri hreinsunarstöð og fyrir því höfum við vottorð,“ seg- ir Rafn Guðjónsson, eigandi Bíla- sölunnar Hrauns. Rafn viðurkennir þó að inn- flutningurinn hafa brotið í bága við fyrirmæli yfirdýralæknis hér um að fulltrúi embættisins skoð- aði bílinn áður en hann færi í skip. Landbúnaðarráðuneytið hafi hins vegar dregið úr hófi að svara svo að bílinn hafi verið við það að ganga honum úr greipum: „Við tókum sénsinn, það er rétt. En við gátum einfaldlega ekki beðið lengur eftir fyrirmæl- um ráðuneytisins Ég sé heldur ekki að yfirvöldum hér sé stætt á því að hafna þýska vottorðinu. Slíkt getur ekki staðist gagnvart EES-samningnum,“ segir Rafn. Eins og fram kom í Fréttablað- inu á sunnudag skoðuðu bæði hér- aðsdýralæknir og yfirdýralæknir bílinn fyrir helgi í Sundahöfn. Rafn segist eiga von á ákvörðun landbúnaðarráðuneytisins í dag um það hvort leyfi fáist fyrir inn- flutningi bílsins. ■ Vinnsla tryggð: KEA kaupir Norðlenska KJÖTMARKAÐUR Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga hefur ákveðið að ganga til samninga við Kaldbak um kaup á Norðlenska matborð- inu. Norðlenska rekur sláturhús, bæði á Akureyri og á Húsavík, og hefur átt í rekstrarerfiðleikum að undanförnu. Tilgangurinn með kaupunum er að tryggja rekstur Norðlenska, endurfjármagna fyrirtækið og tryggja hagsmuni framleiðenda. Andri Teitsson, framkvæmda- stjóri KEA, segir ætlunina að vinna með bændum og öðrum hagsmunaaðilum um að finna leið- ir til að þeir geti komið að rekstri félagsins. Þar til niðurstaða næst í þeirri vinnu mun KEA tryggja starfsemi fyrirtækisins. ■ DÍÖNU MINNST Fjöldi Breta lagði í gær leið sína að Kens- ingtonhöll og lagði blóm við garðshliðið til að minnast Díönu prinsessu. Fólksfjöldi við Kens- ingtonhöll í gær: Sex ár frá dauða Díönu LONDON, AP Sex ár voru í gær liðin frá því Díana prinsessa af Wales lést í bílslysi í París ásamt Dodi Al Fayed. Fjöldi fólks lagði leið sína að hliði Kensingtonhallar í gær, þar sem Díana bjó síðustu æviár- in, og lagði blóm við garðshliðið til minningar um hana. Áhugi á Díönu er enn gríðarlegur í Bret- landi. Á dögunum var skýrt frá því að dánardómstjóri í Surrey, þar sem Dodi Al Fayed bjó, hafi ákveðið að hefja réttarrannsókn á dauða Al Fayeds, sex árum eftir andlát hans. Ekki fylgdi sögunni hvort sambærileg réttarrannsókn yrði hafin á dauða Díönu. ■ ÓLÖGMÆTA HÚSIÐ Í HEIÐARGERÐI Borgarráð mun taka endanlega afstöðu til þess hvort borgin neyti réttar síns til að knýja húseigandann í Heiðargerði til að hlíta dómi Hæstaréttar um niðurrif við- byggingar. RAFN GUÐJÓNSSON Eigandi Bílasölunnar Hrauns í Hafnarfirði segist lengi hafa leitað að hentugum gripaflutningabíl fyrir viðskiptavin í Borgar- firði. Þegar bíllinn fannst hafi biðin eftir fyrirmælum landbúnaðarráðuneytis og yfir- dýralæknis um það hvernig standa átti að innflutningum reynst of löng. MIKIÐ FRAMBOÐ Á HÆFILEIKAFÓLKI Valið í Idol-keppninni verið mjög erfitt að mati forsvarsmanna því innan um leyndust fleiri hæfileikaríkir söngvarar en menn áttu von á. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B JA RG EY FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B JA RG EY FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B JA RG EY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.