Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 13
allt að 60 % afsáttu r Lyngháls 4 • Sími: 567 3300 Opið virka daga 9-18 og laugardaga 10-14 w w w . h e s t a r o g m e n n . i s Líttu við og kynntu þér frábær tilboð á fjölmörgum vörutegundum ✔ Fatnaður ✔ Hjálmar ✔ Reiðtygi ✔ Skór ✔ Reiðstígvél ✔ Hófhlífar ✔ Myndbönd ✔ Hnakkar á sértilboði og margt, margt fleirra 13MÁNUDAGUR 1. september 2003 Dvaldi í Írak Kristján Þorkelsson, pípulagn-ingarmeistari, lenti í heldur óskemmtilegri reynslu þegar hann dvaldist í Írak. „Ég var á leiðinni til Babýlon frá Bagdad er ég keyrði fram á bifreið Rauða krossins sem hafði verið á leið til Bagdad en orðið fyrir árás. Við höfum líklegast komið á vettvang um fimm mínútum eftir að árásin var gerð og aðkoman var vægast sagt hörmuleg. Maður óskar þess auðvitað að þurfa aldrei að koma að neinu þessu líku á ævinni.“ Kristján segir þó að við aðstæður sem þessar sé nauðsynlegt að frjósa ekki, heldur sinna því sem þarf að sinna og hlúa að þeim sem særast. Einn sendifulltrúi Rauða krossins féll í árásinni og bílstjóri bifreiðarinnar særðist alvarlega á báðum höndum. Kristján hélt til Írak til að huga að vatnsveitum og vatns- kerfum, auk þess sem hann vann við að laga spítala, en hann hefur unnið á spítölum allt frá árinu. 1976. „Ég var í landinu í þrjá mán- uði og var aðallega í því að finna spítala sem möguleiki var á að endurbyggja.“ Að sögn Kristjáns var alls ekki slæmt að vera í Írak, þó hitinn hafi auðvitað verið ansi mikill. Hann tekur þó undir það að mikið þurfi að leggja í uppbygg- ingu á næstunni og spítalarnir og vatnsveitukerfin hafi verið í mjög slæmu ásigkomulagi og þá sér- staklega fyrir utan Bagdad. Krist- ján var í Írak á vegum Íslands- deildar Rauða krossins en hann hefur tvisvar sinnum áður haldið út á vegum deildarinnar. Kristján segir að ástandið í landinu hafi sífellt verið að batna þann tíma sem hann var úti þó að ferlið gangi ekkert sérlega vel. „Örygg- ið er lítið og það hefur áhrif á hraða framfara. Ég fann þó aldrei fyrir óöryggi þar sem fólkið var yfirleitt mjög jákvætt þar sem ég vann.“ ■ Tímamót KRISTJÁN ÞORKELSSON ■ kom á vettvang eftir árás á bifreið Rauða krossins. Hann segir að aðkoman hafi vægast sagt verið hræðileg. STARFSMENN RAUÐAKROSSINS Mikill skortur er á drykkjarvatni í Írak. Hér eru starfsmenn Rauðakrossins að störfum. KRISTJÁN ÞORKELSSON Hann vann í Írak við að huga að vatnsveit- um og vatnskerfum. Hann segir ástandið vera að batna þó það gerist hægt. ??? Hver? „Góður og gegn sjálfstæðismaður, íhaldsmaður og Vesturbæingur..“ ??? Hvar? „Á rauðu ljósi á Breiðholtsbrautinni..“ ??? Hvaðan? „Ættaður úr Reykjavík, Borgarfirði, Akur- eyri og úr Hreppunum..“ ??? Hvað? „Sinna starfi mínu sem gæslumaður almannafjár.“ ??? Hvernig? „Sendi fyrirspurnir vítt og breitt um borgarkerfið. “ ??? Hvers vegna? „Það er skylda borgarfulltrúa að fylgjast með eyðslu borgaryfirvalda og veita þeim aðhald..“ ??? Hvenær? „Svörin eru misjafnlega lengi á leiðinni.“ KJARTAN MAGNÚSSON Borgarfulltrúi sem vill fá skýr svör um greiðslur til Stefáns Ólafssonar prófessors vegna sérfræðiaðstoðar í borgarkerfinu. ■ Persónan 13.30 Lárus G. Lúðvígsson Skólavörðu- stíg 16a, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni. 15.00 Anton Líndal Friðriksson Vestur- götu 7, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju. ■ Andlát ■ Jarðarfarir Magnús Ragnar Þórarinsson Eyjabakka 5, lést fimmtudaginn 28. ágúst. Stefanía Guðrún Pétursdóttir lést mið- vikudaginn 27. ágúst. Hallfríður Sigurðardóttir, Halla, frá Helga- felli í Svarfaðardal, lést laugardaginn 23. ágúst. Flóra Baldvinsdóttir Ási í Hvergerði, lést mánudaginn 25. ágúst. Jarðarför Kristbjörg Einarsdóttir, Grund, áður til heimilis að Bárugötu 35, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag kl. 15.00. Aðstandendur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.