Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 35
15MÁNUDAGUR 1. september 2003
DANSAÐU HANDFRJÁLS
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
21
88
6
0
8/
20
02
Handfrjáls búnaður Samlituð vindskeið Hágæða hljómtæki Lúxus innrétting
COROLLA - MOBILE Vertu í góðu sambandi. Komdu strax. Prófaðu nýjan Corolla Mobile með handfrjálsum búnaði, Sedan,
Hatchback eða Wagon. Corolla Mobile er hlaðinn nýjungum, innréttingin er ríkuleg og tónlistin dunar í hágæða hljómtækjum með 6 hátölurum. Corolla
Mobile er glæsilegur bíll að utan sem innan. Við bjóðum þér upp.... í reynsluakstur. www.toyota.is
Nýr lúxusbíll frá Skoda, SkodaSuperb, var frumsýndur hjá
Heklu nú um helgina.
Í Skoda Superb eru fimmtán
tölvustýrð kerfi og stýris- og
hemlabúnaður af fullkomnustu
gerð. Í bílnum er tvöfalt bremsu-
kerfi með læsivörn og diskum á
öllum hjólum. Bíllinn er með
sjálfvirkri stöðugleikastýringu
sem fylgist með stöðu bifreiðar-
innar í akstri og grípur sjálfkrafa
inn í stjórnun hennar við ákveðn-
ar aðstæður.
„Þetta er kærkomin viðbót við
Skoda-flóruna,“ segir Jón Trausti
Ólafsson, kynningarfulltrúi
Heklu. „Bíllinn hefur vakið mikla
athygli, sérstaklega fyrir það
hversu rúmgóður hann eru að
aftan.“
Skoda Superb komst í fréttir
hérlendis fyrir skömmu þegar
Árni Magnússon, félagsmála-
ráðherra, festi kaup á slíkum
bíl. Á árum áður óku þjóðhöfð-
ingjar um víða veröld á Skoda
Superb, því Skoda framleiddi
lúxusbifreið með þessu nafni á
fyrra blómaskeiði sínu, á árun-
um 1934 til 1949. Bílarnir voru
meðal annars notaðir af forsæt-
isráðherra Tékkóslóvakíu og
Japanskeisara, enda þóttu bíl-
arnir með þeim glæsilegustu
sem völ var á. ■
Nýr Renault Megane:
Glerblæjubíll fyrir íslenskar aðstæður
Hinn nýi Renault Megane hef-ur vakið töluverða athygli
fyrir öðru vísi og að margra mati
ögrandi útlit. Þessi bíll, sem kom á
markaðinn hér á landi í ársbyrjun,
er þó aðeins sá fyrsti, í sjö bíla
seríu, sem á þetta nýja útlit sam-
eiginlegt.
Af þessari sjö bíla seríu eru
tveir komnir á markað, stuttbak-
urinn Renault Megane í þriggja
og fimm dyra útgáfu. Þar sem
nokkur munur er á búnaði þeirra,
er um tvær aðskildar útgáfur að
ræða.
Að sögn Helgu Guðrúnar Jón-
asdóttur, kynningarstjóra B&L,
bætast þrír nýir bílar við seríuna
á næstunni. „Núna í september
kemur Megane Saloon, fjögurra
dyra fólksbíll og langbakurinn
Megane Sport Tourer. Upp úr
miðjum október vonumst við
síðan til að geta sett á markað
nýja útgáfu af Megane Scénic
sem á undanförnum árum hefur
verið sá mest seldi í flokki fjöl-
nota bíla,“ segir Helga Guðrún.
„Allt eru þetta sannir Renault
bílar í þeim skilningi að hvað
hönnun, búnað og öryggi varðar
eru þeir meðal þeirra fremstu.“
Á fyrri hluta næsta árs mun
svo aftur draga til tíðinda, en þá
kemur á markaðinn sjö manna út-
gáfa af Megane Scénic ásamt hin-
um stórskemmtilega blæjubíl,
Coupé-Cabriolet. Sá bíll er með
glerblæju í stað hefbundinnar
taublæju. „Glerblæjan dregur all-
verulega úr vindhljóðum, auk
þess sem hljóð- og hitaeinangrun-
in verður mun betri. Margt bend-
ir því til að Renault hafi þróað
blæjubíl sem hentar íslenskum
aðstæðum,“ bendir Helga Guðrún
á. „Það skemmtilega við bílinn er
að þótt um gerðarlega glerblæju
sé að ræða, leggst hún saman í þar
til gert hólf, alveg eins og hefð-
bundin blæja, á jafnlöngum tíma
eða á um 15 til 20 sekúndum.“ ■
BÍLL MEÐ EYRU
Þessi skrýtni smábíll sást í Þýskalandi á
dögunum. Kannski það komi sér vel að
eiga bíl sem heyrir vel?
BANDARÍKJAMENN Í BELTUM Bíl-
beltanotkun er að aukast í Banda-
ríkjunum samkvæmt nýlegri
könnun. Notkunin er nú kominn
upp í 79%, sem er fjórum pró-
sentustigum hærra en á síðasta
ári.
ÖRUGGIR BÍLAR Renault Espace
IV náði besta árangri sem nokkur
bíll hefur náð á árekstarprófi
Euro NCAP. Bíllinn fékk fimm
stjörnur á prófinu. Fimm aðrar
bílategundir fengu einnig fimm-
stjörnur, BMW X5, Peugeot 807,
Saab 9-5, Toyota Avensis og Volvo
XC90.
AP
/M
YN
D
■ Utan úr heimi
NÝI BÍLLINN
Í Skoda Superb eru fimmtán tölvustýrð kerfi.
Skoda Superb á markaðinn:
Lúxusbíll þjóðhöfðingja
COUPÉ-CABRIOLET
Hinn stórskemmtilegi Coupé-Capriolet er með glerblæju í stað hefðbundinnar taublæju.