Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 27
fast/eignirMÁNUDAGUR 1. september 2003 13 Áeigendum í fjöleignarhúsumhvíla margvíslegar skyldur, bæði fjárhagslegar og aðrar, sem einstakir eigendur hafa gagnvart sameigendum sínum vegna hins nána sambýlis sem búsetu í fjöl- eignarhúsi fylgir. Í fjöleignarhúsalögunum er ákvæði sem gerir húsfélagi kleift að gera íbúðareiganda að flytja brott úr íbúð sinni og selja hana, gerist hann sekur um gróf eða ít- rekuð brot á skyldum sínum gagn- vart húsfélaginu eða einstökum eigendum. „Lögin gera ráð fyrir að húsfélagið fari með þetta vald en hins vegar geta einstakir eig- endur gripið til þeirra, bitni brot aðallega eða eingöngu á þeim og húsfélagið fæst ekki til að gripa til ráðstafana vegna þess,“ segir Hrund Kristinsdóttir lögfræðing- ur hjá Húseigendafélaginu. „Úr- ræðin taka ekki aðeins til eigenda sjálfra heldur verður þeim einnig beitt gegn afnotahöfum, til dæmis sambýlisfólki, fjölskyldumeðlim- um eða leigjendum.“ Aðvörun Hrund segir að áður en unnt sé að krefjast brottflutnings hins brotlega úr húsinu og/eða hann selji eignarhluta sinn, verði að að- vara hann formlega. „Telja verður að stjórn húsfélags geti skorað á hinn brotlega að taka upp betri siði og sent aðvörun án þess að húsfundur hafi tekið um það ákvörðun.“ Ef ákvörðun er tekin á húsfundi um að senda aðvörun nægir samþykki einfalds meiri- hluta miðað við hlutfallstölur á löglega boðuðum húsfundi. Senda þarf hinum brotlega aðvörun að minnsta kosti einu sinni. Hún skal vera skrifleg og send með sannan- legum hætti. Því er öruggast að senda hana í ábyrgðarbréfi eða símskeyti. Í aðvörun skal skora á hinn brotlega að taka upp betri siði og aðvara hann við afleiðingum frek- ari brota. „Mikilvægt er að fram komi með nákvæmum hætti í hverju brotið er fólgið og hvaða afleiðingar gróf og ítrekuð brot geta haft í för með sér. Mikilvægt er að senda aðvörun en réttmæti frekari aðgerða samkvæmt lögun- um er háð því að aðvörun hafi ver- ið gefin og send og að hún hafi ekki borið árangur.“ Krafa um brottflutning Láti hinn brotlegi ekki segjast eftir að hafa fengið aðvörun og áminningu er húsfélagi rétt að banna honum búsetu og dvöl í hús- inu og skipa honum að flytja á brott með fyrirvara sem má ekki vera skemmri en einn mánuður. Undantekning er þó gerð ef eðli brota, viðbrögð við aðvörun eða aðrar knýjandi aðstæður valda því að aðgerðir þola ekki bið, þá má fyrirvarinn vera skemmri. Með sama hætti er húsfélagi rétt að krefjast þess að hinn brot- legi selji eignarhluta sinn svo fljótt sem auðið er og skal veita honum sanngjarnan frest í því skyni, þó ekki lengri en þrír mán- uðir. „Ef hinn brotlegi flyst ekki á brott innan greindra tímamarka má framfylgja kröfum húsfélags- ins með lögsókn, eftir atvikum lögbanni og/eða útburði að undan- gengnum dómi og eftir atvikum án undangengins dóms. Hægt er að selja eignarhluta hins brotlega á nauðungarsölu að undangengn- um dómi verði hann ekki við kröf- um húsfélagsins um að selja hann.“ Ákvörðun um að eiganda verði gert að flytja eða selja eignar- hluta sinn skal taka á löglega boð- uðum húsfundi með samþykki 2/3 hluta eigenda, bæði miðað við fjölda og hlutfallstölur. Helming- ur eigenda miðað við fjölda og eignarhluta verða að vera á fundi. Eðli brota og sönnun á þeim Sönnunarbyrði um form og efni hvílir alfarið á húsfélaginu. Því þarf húsfélag að sanna að rét- tra formreglna hafi verið gætt við alla ákvarðanatöku og fram- kvæmd ákvarðana. Einnig eru gerðar ríkar sönnunarkröfur til húsfélagsins um tilvist brots og grófleika þess. Húseigendafélagið hefur fjöl- mörg mál til meðferðar þar sem húsfélög leita aðstoðar félagsins vegna grófra brota íbúa fjöleign- arhúsum. „Brot eru oft framin af einstaklingum sem eiga við ýmis geðræn vandamál að stríða en neysla áfengis og vímuefna kemur einnig oft við sögu. Þess eru dæmi að íbúar í fjöleignar- húsum þurfi að búa við skelfing- arástand svo sem hótanir, of- beldi, íkveikjur, áfengis- og vímuefnaneyslu og hroðalega umgengni bæði í séreign og sam- eign. Lögregluskýrslur hafa ver- ið mikilvægastar hvað varðar sönnun á tilvist brots og gróf- leika og hafa í raun verið grund- vallaratriði þess að hægt væri að beita þessum úrræðum fjöleign- arhúsalaganna.“ Reglugerð veldur neyðará- standi Í byrjun árs 2001 tók gildi hér á landi reglugerð um meðferð per- sónuupplýsinga hjá lögreglu. „Samkvæmt henni er óheimilt að miðla persónuupplýsingum úr skrám lögreglu án samþykkis hins skráða eða að öðrum tiltekn- um skilyrðum uppfylltum. Í reglugerðinni er mælt fyrir um að einungis megi miðla persónuupp- lýsingum innan lögreglu, ákæru- valds og fangelsismálastofnunar. Einnig er heimilt að miðla upplýs- ingunum til annarra stjórnvalda og erlendra lögregluyfirvalda að uppfylltum ákveðnum skilyrð- um.“ Eftir að reglugerðin tók gildi hefur húsfélögum ítrekað verið synjað um afrit af skýrslum til að nota í málarekstri gegn brotleg- um eigendum og hefur það haft afdrifaríkar afleiðingar. „Eigend- um í fjöleignarhúsum eru allar bjargir bannaðar, geta ekki sann- að brot sín og þar með er komið í veg fyrir beitingu þeirra mikil- vægu úrræða fjöleignarhúsalag- anna sem hér hefur verið fjallað um. Húsfélög eiga ótvírætt lög- varða hagsmuni af því að fá lög- regluskýrslur í hendur ef mál varða íbúa í húsinu og hefur áhrif á aðra íbúa. Þótt lögregla sé almennt aufúsugestur þá raskar það friði íbúa og kemur óorði á hús ef lögreglan er tíður gestur þar. Það er líka röskun á húsfriði og öðrum íbúum sannar- lega viðkomandi ef ítrekað er grunur um refsiverða háttsemi í húsum. Slíkt raskar friði íbúa og veldur þeim öryggisleysi. Það er fráleitt einkamál lögreglu og viðkomandi brotlegs eiganda ef lögregla þarf sí og æ að koma í fjöleignarhús,“ segir Hrund Kristinsdóttir. ■ FJÖLEIGNARHÚS Í lögum um fjöleignarhús er ákvæði sem gerir húsfélagi kleift að gera einstökum íbúðareiganda að flytja brott úr íbúð sinni og selja hana, gerist hann sekur um gróf eða ítrekuð brot á skyldum sínum gagnvart húsfélaginu eða einstökum eigendum. Úrræði gagnvart brotlegum eigendum í fjöleignarhúsum/ Brotlegir eigendur - hvað er til ráða? Þórarinn Jónsson Lögmaður, löggiltur fasteignasali Viðar F. Welding Sölumaður GSM 866 4445 Jón Kristinsson sölumaður GSM 894 5599 www.eignanaust.is Vitastígur 12 – 101 Rvík – Sími 551 8000 – Fax 551 1160 Einbýli - raðhús Ásbúð-með aukaíbúð. Fallegt 198 fm. einbýlishús á tveim- ur hæðum með 45,7 fm innbyggð- um bílskúr og stídíóíbúð. Húsið stendur innst í lokuðum botnlanga. Verð 25,9 millj. Setja inn efst í 4-5 herbergja íbúðir. Grettisgata- 4-5 herbergja. Mjög góð endaíbúð á 1 hæð í góðu stigahúsi. Talsvert end- urnýjuð. 2 auka herbergi í risi í út- leigu. Laus fljótlega. Góð kaup! Núpabakki Endaraðhús með innbyggðum bílskúr 245 fm. 4 svefnherbergi, sólstofa, 2 stofur, útsýni, skólar og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð 20,9 millj. Breiðavík-við sjávar- síðuna Glæsilegt einbýlishús 240fm, tvö- falldur bílskúr, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, 2 stofur, útivistarpara- dís, sjávarsíðan og gólfvöllur. Húsið selst fokhelt. Áhvíl. 9,0 húsbréf. Verð 24,0 millj. Jónsgeisli-Grafarholti Einbýlishús á tveimur hæðum 246fm ásamt 27fm bílskúr. Möguleiki á 3-4ra herb. séríbúð á jarðhæð. Fallegt út- sýni. Húsið skilast fokhelt fullfrágeng- ið að utan. Verð: 19,8 millj. Nýbyggingar Gvendargeisli sérhæðir Glæsilegar 2ja-4ra herbergja sér- hæðir með sérinngangi, gott skipu- lag, frábær staðsetning rétt við golf- völl og fallegt útivistarsvæði. 4-5 herbergja íbúðir Ljósheimar-Laus strax 4ra herbergja 91fm íbúð á 2 hæð. 3 svefnherbergi, stofa með suð-vestur svölum, nýtt gler. Íbúðin er öll nýmál- uð og laus nú þegar. Verð: 12,9 millj. 4ra í rimahverfi óskast. Höfum kaupanda að góðri 4ra her- bergja íbúð á 1 hæð með sérgarði í Rimahverfi eða Foldum. Ef það vantar pláss má taka út sumarbú- staðir og síðan neðstu eignir í at- vinnuhúsnæði. Stóragerði 4ra herbergja 106 fm íbúð á 3. hæð. 2 stofur og 2 svefnherbergi. Tengt fyrir þvottavél á baði. Í kjallara fylgir herbergi. Verð 13,3 millj. Árkvörn-Ártúnsholti Falleg 4ra herbergja 118fm enda-íbúð á 2 hæð með sérinngangi. 3 stór svefnherbergi á sér gangi, stór stofa sem býður uppá möguleika á fjórða svefnherberginu, suður svalir, sér þvottahús, frábær staðsetning, skólar og útivistarsvæði í næsta nágrenni. Verð: 16,9 mil. 3ja herbergja íbúðir Maríubakki Falleg 3ja herbergja 73fm íbúð á 2 hæð. 2 svefnherbergi, rúmgóð stofa, glæsilegt eldhús með sér þvottahúsi innaf. Fallegt útsýni. Verð 10,2 millj. Bergstaðarstræti Falleg 3ja herb. 98fm íbúð á 2hæð, með parketi og útsýni uppá Bald- urstorg. Verð 13,2 millj. 2ja her- Skúlagata-Lyftuhús Glæsileg 2ja herbergja 60fm íbúð á 5 hæð, í lyftuhúsi byggðu 1998. Vand- aðar innréttingar, sérmerkt bílastæði í bílahúsi. Laus strax. Verð 12,9 millj. Sumarbústaðir Glæsilegir nýjir sumarbústaðir, full- búnir eða styttra komnir eftir óskum kaupenda. Atvinnuhúsnæði Lindargata - 40 fm steinhús Iðnaðarhúsnæði á tveimur hæðum alls 40fm, nýklætt bárujárni, verð 4,2 millj. Dugguvogur - vinnustofur Nýinnréttaðar 40-60fm einingar sem hennta sem vinnustofur-skrifstofur, er í dag í skammtímaleigu. Fyrir fjárfesta 504fm iðnaðarhúsnæði með góðum leigusamningi í Grindavík, Áhvíl.10,0 millj. Verð: 20,0 millj. Opið virka daga 9-17 Drápuhlíð-3ja herb. Falleg 3ja herbergja 70 fm. kjallaraíbúð. Tvö rúm- góð svefnherbergi, stór stofa, endurnýjað bað- herbergi. Áhvl. bygg. sj. 3,8 millj. með vöxtum. 21 þús. á mán. Verð 11,3 millj. Norðurbraut-Hafnarfjörður. Gullfalleg 110 fm. sérhæð í tvíbýli ásamt 27 fm. bílskúr. Tvær stofur, 3 svefnherbergi, flísalagt eldhús. Góð staðsetning á kyrrlátum stað. Verð 15,8 millj. Bankastræti – penthouse Glæsileg 149 fm hæð í húsi byggðu 1972. 2 stór svefnherbergi, vinnuherbergi, stór stofa, eldhús í sérflokki, tvennar svalir, glæsilegt útsýni. 2 sér bíla- stæði á baklóð. Eign í sérflokki. Verð: 24,9 millj.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.