Fréttablaðið - 28.09.2003, Blaðsíða 23
23SUNNUDAGUR 28. september 2003
Maður að mínu skapi
Þegar Abel Gance kvikmyndaðistórvirkið Napoleon á þriðja
áratugnum, dugði ekkert minna
en að gera bíómynd sem varpað
var á þrjú kvikmyndatjöld í einu í
stað eins. Svo stórbrotin, óvenju-
leg og áhrifarík persóna var
Napóleon. Beethoven tileinkaði
níundu sinfoníu sína Napóleon en
strikaði tileinkunina svo út. Og
það sem gerir Napóleon einmitt
svo sérstakan í mínum huga er
hve afstaða samtímans allt frá
dögum Lúðvíks til hans er tví-
ræð,“ segir Árni Snævarr sagn-
fræðingur um þann mann sem
hann hefur í hávegum.
Árni var svo heppinn að eyða
sumarleyfi í fæðingarborg hans,
Ajaccio á Korsíku. Þá skildi hann
loksins hvers vegna Napóleon
fann alltaf anganina af ættjörð
sinni í draumum sínum í útlegð-
inni á Sankti Helenu. Ættjörðin
var ekki Frakkland heldur Kor-
síka. Móðurmál Napóleons var
ekki franska heldur ítölsk mál-
lýska heimamanna. „Frægasti
Frakki allra tíma – rétt eins og
Zinedine Zidane í dag – var ekki
franskur!“ segir Árni. „Og þeir
sem halda hvað mest upp á minn-
ingu hans eru korsískir aðskilnað-
arsinnar sem vilja ekkert af keis-
aradæminu vita sem hann stofn-
aði á fastalandinu. Allir þekkja
sögur af Napóleon. Bréfinu
sem hann skrifaði til Jósefínu
konu sinnar þegar hann var á
leið heim til Parísar af víg-
vellinum. Í því sagði:
„Ekki fara í bað, kem
heim eftir þrjá vikur“.
Eða þegar hann eggjaði
hersveitir sínar til dáða
við píramídana í Eg-
yptalandi: „Hermenn:
ofan af þessum
píramídum, líta fjörutíu aldir nið-
ur á ykkur!“ Svo ótrúlega smár
var hann, en samt svo stór.“
Tvíræð afstaða Frakka
Afstaða Frakka til Napóleons
er einstaklega tvíræð að sögn
Árna. Vissulega heita metrostöðv-
arnar í París eftir orrustum Napó-
leons, „Austerlitz“, vísindamönn-
um í þjónustu hans, „Champoll-
ion“, eða hershöfðingjum hans,
„Kleber“, en samt er furðu lítið
gert í Frakklandi til að halda
minningu hans á lofti. „Napóle-
onsgötur finnast en það eru ekki
Laugavegir, heldur Brekkustígar
franskra borga. Það er furðu lítið
miðað við þau tröll-
auknu áhrif sem
Napóleon hafði á
Evrópu. Hann
ú t b r e i d d i
h u g m y n d i r
frönsku bylt-
ingarinnar með
vopnavaldi til
nágrannaríkja
Frakklands
og festi
þær í sessi þar auk þess að taka
saman merkan lagabálk og berja í
gegn ýmsar umbætur. Þar nægir
að nefna metrakerfið. Sem dæmi
þá dvaldist hann í sex daga á
Möltu á leið sinni til Egyptalands
og á þeim tíma bannaði hann
þrælahald, leysti upp lénskerf-
ið, gaf gyðingum sömu réttindi
og öðrum landsmönnum, stofn-
aði fimmtán grunnskóla fyrir tíu
þúsund íbúa og svo framvegis.
Franska veldið hrundi von bráðar
en heimurinn var ekki samur...“
Frú Mamma
Árni getur lengi þulið upp
afrek Napóleons... en þekk-
ir einnig veikleikana:
„Napóleon var hins veg-
ar einstaklega breyskur
maður. Valdagræðgi
hans, hégómagirnd og
sérgæsku voru fá tak-
mörk sett. Móðir hans
var eina manneskjan
sem stóð uppi í hárinu
á honum. Mamman
sem oft var kölluð
„Madame mere“ – frú
Mamma, fannst krýn-
ing hans sem keisara
fáranleg og neitaði að
vera viðstödd. Napóle-
on lét hins vegar David
falsa hana inn á opin-
bera málverkið af at-
höfninni í Notre Dame.
Frú Mamma vildi bara
vera heima á Korsíku –
jafnvel þótt öll börnin hennar
væru orðin þjóðhöfðingjar í ýms-
um Evrópulöndum fyrir tilstilli
Napóleons. „Einn góðan veðurdag
á ég eftir að fá alla þessa þjóð-
höfðingja aftur í hausinn,“ sagði
sú gamla og hélt áfram að rækta
garðinn sinn í Ajaccio.
Árni segir áhrifa Napóleons
gæta ótrúlega víða – hann hefur
orðið jafnt Stendhal sem Laxness
yrkisefni og í nær tvær aldir eftir
dauða hans mun enginn vitlausra-
spítali hafa staðið undir nafni sem
ekki hefur státað af Napóleon
Bónaparta endurbornum. Sam-
tímamenn hans eru hins vegar
flestum gleymdir.
„Frú mamma fékk auðvitað
þjóðhöfingjabörnin í hausinn í vel
ræktaðan blómagarðinn í Maison
Napoleon í Ajaccio. Heimsveldi
Napóleons stóð á brauðfótum,
þjóðhöfðingjunum var kollvarpað
(Guði sé lof?!) eftir að Napóleon
seildist of langt í heimsvalda-
stefnu sinni og Madame Mere
fékk börnin sín aftur. Nema
keisarann. Hann lést á hjara veld-
ar með anganina af skraut-
blómunum hennar frú Mömmu í
vitunum,“ segir Árni um þennan
fræga mann sem er honum að
skapi.
jakob@frettabladid.is
ÁRNI SNÆVARR
Þrátt fyrir að valdagræðgi, hé-
gómagirnd og sérgæsku væru
einkennandi fyrir Napoleon getur
Árni ekki annað en dáðst að þess-
um manni sem hafði tröllaukin áhrif
á Evrópu og heiminn allan.
Napoleon - sonur
hennar frú Mömmu
NAPOLEON BONAPARTE
Mynd listamannsins Davids af honum á skrifstofu sinni. Mikilmennið Napóleon er ekki í
miklum hávegum haft í Frakklandi í dag.
Hann útbreiddi
hugmyndir frönsku
byltingarinnar með vopna-
valdi til nágrannaríkja Frakk-
lands og festi þær í sessi þar
auk þess að taka saman
merkan lagabálk og berja í
gegn ýmsar umbætur. Þar
nægir að nefna metrakerfið.
,,
HÖFUM OPNAÐ KÖKUHÚS Í KÓPAVOGI
Hefur þú smakkað
parísurnar okkar
tilboð um helgina
Kökuhúsið Auðbrekku 2
Kópavogi, s 554 2708
einnig tilboð
á litlum tertum