Fréttablaðið - 28.09.2003, Side 24
Hjálpartækjasalinn:
Klám er
krydd í
tilveruna
Sóttvarnalæknirinn:
Niður af
bylgjutoppi
Ég hef verið að glugga í þaugögn sem Durex lætur fjöl-
miðlum í té og finnst þau allt of
fátækleg til að hægt sé að leggja
mat á þessar upplýsingar af ein-
hverju viti“, segir Jóna Ingibjörg
Jónsdóttir, hjúkrunar- og kyn-
fræðingur. „Til dæmis er sagt að
þetta sé „youth-focused survey“,
það er að segjast að hún beinist að
ungu fólki og að niðurstöðurnar
hafi verið flokkaðar út frá aldri og
kyni. Enga sundurliðun út frá
breytunum aldri og kyni er hins
vegar að finna þannig að ekki
kemur fram hverjir svöruðu, bara
fjöldi á heimsvísu. Ekki virðist
heldur hafa verið gerð nein til-
raun til að meta hvort þeir sem
svara, í hverju landi fyrir sig,
leggi sama skilning í hugtök sem
notuð eru í spurningunum til
dæmis hugtökin skyndikynni,
kynmök og það að vera ánægður
með sitt kynlíf. Það má fyrst og
fremst hafa gaman af könnun af
þessu tagi, skemmtanagildið er
ótvírætt og kannski vekur það at-
hygli á vörunni sem Durex fram-
leiðir. Ef hægt er að nota netið á
jákvæðan hátt til dæmis með því
að minna á gildi smokksins er
það sjálfsagt.“ ■
Haraldur Briem, sóttvarna-læknir segir að klamydíutil-
felli séu öllu fleiri á Íslandi en
hinum Norðurlöndunum. „Þetta
þarf þó ekkert endilega að vera
vísbending um að Íslendingar séu
óvarkárari og við höfum viljað
fara varlega í að draga þá ályktun
að Íslendingar séu eitthvað sér-
staklega lauslátir.“
Haraldur segir að skýringarn-
ar á þessi geti verið margar og
nefnir sem dæmi að Íslendingar
gætu verið duglegri en aðrir að
fara í próf og það geti haft áhrif á
tíðnisveifluna.
Haraldur segir að klamydíu-
faraldurinn sé algengastur hjá
fólki á aldrinum 15 til 25 ára og
hafi náð hámarki í kringum 2001
en sé frekar í rénun. „Þannig að
við virðumst vera að fara niður af
einhverjum bylgjutoppi. Það vek-
ur svo aftur athygli að lekandi er
nánast óþekktur hérna þannig að
það er ákveðið ósamræmi í
þessu.“ ■
24 28. september 2003 SUNNUDAGUR
Kynlífsþjóðin Ísland
SKYNDIKYNNI
Nýleg vefkönnun bendir til að Íslendingar
séu heimsmeistarar í skyndikynnum. Sam-
kvæmt yfirgripsmikilli kynlífskönnun sem
gerð var fyrir tíu árum hér á landi eru Ís-
lendingar ekki alveg svo lauslátir.
Smokkaframleiðandinn Durexbirti á dögunum niðurstöður
Internetkönnunar á kynlífshegðun
fólks út um allan heim. Könnunin
er vitaskuld ekki vísindaleg og
niðurstöðurnar hafa því fyrst og
fremst ákveðið skemmtigildi um
leið og þær gefa tilefni til ýmissa
misvel ígrundaðra vangaveltna.
Netkönnunin bendir til þess að
45% jarðarbúa hafa haft
skyndikynni og að Norðurlandabú-
ar séu lausgirtastir í þessu sam-
bandi. Íslendingar tróna á toppn-
um en 71% þjóðarinnar á að hafa
prufað skyndikynni samkvæmt
þessu. Norðmenn fylgja fast á
hæla Íslendinga með 70% . Um
80% Íslendinga sögðust vera
ánægð með kynlíf sitt, sem er vel
yfir meðaltali, og þá sagðist þó
nokkur fjöldi hinna íslensku
þáttakenda nota klám í kynlífi
sínu, eða 57%. Trónum við þar á
toppnum með Norðmönnum,
Tékkum og Bandaríkjamönnum.
Íslenskur raunveruleiki
Árið 1992 gerði Jóna Ingibjörg
Jónsdóttir könnun á kynhegðun
Íslendinga fyrir Landlæknisemb-
ættið og Landsnefnd um Alnæm-
isvarnir en jafn yfirgripsmikil
könnun á kynlífi Íslendinga hefur
ekki verið gerð síðan. Durex
könnunin er engan vegin sam-
bærileg við könnun Jónu og eins
og hún bendir sjálf á þá eru engar
raunhæfar forsendur fyrir sam-
anburði á þeim fyrir hendi.
Það er engu að síður fróðlegt að
rifja niðurstöðurnar hennar upp,
vegna þeirrar umræðu sem Durex
könnunin hefur skapað. Sam-
kvæmt könnun Jónu virðast Ís-
lendingar ekki alveg jafn lauslátir
og vefkönnun benti til, en í hennar
könnun kom meðal annars fram að
Íslendingar hafa að jafnaði kyn-
mök við níu einstaklinga á ævinni.
„Þeir yngstu hafa eðlilega haft
færri rekkjunauta yfir ævina en
aðrir. Karlar hafa að meðaltali
helmingi fleiri rekkjunauta en
konur yfir ævina, 12 á móti 6,“
segir í niðurstöðunum.
Skyndikynni aldursbundin
Könnunin leiddi einnig í ljós
að hlutfallslega fleiri karlar en
konur höfðu haft skyndikynni á
Íslandi. Skyndikynni voru al-
gengust meðal fólks á aldrinum
16-25 ára og einhleypra og frá-
skilinna. Hlutfall þeirra sem
höfðu haft skyndikynni lækkaði
eftir því sem fólk varð eldra og
því var sú ályktun dregin að
skyndikynni væru fyrst og
fremst aldursbundin hegðun.
„Skyndikynni undanfarna þrjá og
tólf mánuði eru algengust meðal
ungs fólks í tveimur yngstu ald-
urshópunum,“ segir í niðurstöð-
unum. „Í 16-19 ára aldurshópnum
hafa 22,1% haft skyndikynni und-
anfarna þrjá mánuði en 42,3%
undanfarna tólf mánuði.“ Þessar
tölur eru því nokkuð fjarri því að
styðja þá mynd sem Durex könn-
unin varpar upp af kynlífshegðun
Íslendinga.
Fjöldi rekkjunauta eftir
starfsgreinum
Þá var einnig kannað hvort
starfsvettvangur gæti tengst kyn-
lífshegðun fólks. Var þá meðal ann-
ars miðað við hvernig samskiptum
fólks við aðra væri háttað í vinn-
unni. Þannig var til dæmis fólk sem
vinnur við skemmtanir, listir og
fjölmiðla sett saman í hóp sökum
þess að þessum störfum fylgir
gjarnan kvöld- og helgarvinna og
samskipti við marga.
Fjöldi rekkjunauta árið 1991
var hæstur hjá þeim sem starfa
við listir, skemmtun og fjölmiðla
eða 2,8 og næst hæstur hjá þeim
sem starfa við sérfræði- og
stjórnunarstörf eða 2,1.
thorarinn@frettabladid.is
Íslendingar eru heimsmeistarar í skyndikynnum samkvæmt netkönnun Durex smokkaframleiðandans. Könnunin þykir
þó vart marktæk og samkvæmt yfirgripsmikilli könnun á kynlífshegðun Íslendinga sem gerð var fyrir áratug eru Íslend-
ingar ekki alveg svo lausgirtir og vefkönnunin bendir til. Þó kann að vera að margt hafi breyst á tíu árum.
HALLUR DAN:
„Menn reyna oft að nota barþjóninn til að
tæla kvenfólkið.“
Barþjónninn:
Kræfari
konur
Það er allur gangur á þessu ogþað er með ólíkindum hvað
maður getur rekist á fólk vera að
gera, bæði inn á klósettum og ann-
ars staðar en við skulum bara
hafa þetta smekklegt og segja að
fólk leiti sér að blíðu á mörgum
stöðum“, segir Hallur Dan sem er
barþjónn og hefur því góða yfir-
sýn yfir kynlíf í næturlífi landans.
Hallur segir að tölurnar úr
Durex könnuninni komi sér síður
en svo á óvart og hann telur þær
vel geta staðist. „Þetta hefur
breyst mikið, jafnvel bara á síð-
ustu fimm árum. Konurnar eru
orðnar miklu kræfari en þær voru
og þetta er sjálfsagt orðið miklu
auðveldara fyrir karlmennina í
dag. En konurnar ráða ferðinni.“
Hallur segist lítið sem ekkert
verða var við það að kynnin sem
stofnað er til við barinn verði að
langvarandi samböndum. „Ég get
nú ekki sagt það og fólk er nú ekki
beinlínis að koma aftur saman
hönd í hönd. Maður sér margan
manninn, þvert á móti, með einni
manneskju á föstudegi og svo er
hann kominn með einhverja
aðra upp á arminn á
laugardegi.“ ■
Kynfræðingurinn:
Fínt að minna á
smokkinn
JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR:
„Þetta er ekki vísindalega gerð könnun, heldur gerð af smokkafyrirtæki sem vart telst hlut-
laus aðili.“
HARALDUR BRIEM:
Segir mikla útbreiðslu klamydíu ekki endi-
lega gefa vísbendingu um sérstakt lauslæti
Íslendinga.
STEFÁN KARL LÚÐVÍKSSON:
Segir viðskiptavinahóp sinn stóran og
breiðan.
Kynlífshjálpartæki eru orðineðlilegri þáttur í lífi fólks“,
segir Stefán Karl Lúðvíksson í
kynlífshjálpartækjaversluninni
Amor. „Verslununum hefur fjölg-
að og það er samkeppni í þessu
eins og öðru. Hér verslar fólk al-
veg frá 18 ára og upp undir sjö-
tugt og hér endurspeglast mann-
lífsflóran. Þannig eru til dæmis
lögreglumenn í þessum hópi.“
Samkvæmt lagabókstafnum er
sala og dreifing á klámi bönnuð en
Stefán segir klám svo teygjanlegt
hugtak að menn lendi oft á gráu
svæði. „Klám er eitthvað sem of-
býður blygðunarkennd fólks -
þannig að það er mjög misjafnt
hvað fólk telur vera klám. Það sem
einhverri 80 ára gamalli konu kann
að finnast klám þarf ekkert endi-
lega að vera það í mínum augum
og ég tel mig ekki vera að selja
neitt ólöglegt. Þetta er bara krydd
í tilveruna og við höfum engan
áhuga á því að selja einhvern við-
bjóð eins og dýraklám. Þannig að
það sem við viljum bjóða upp á er
í raun ekkert grófara en það sem
sést í klámblöðunum í bókabúðun-
um.“ ■