Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 2
2 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
“Já, hann er félagi.“
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson er formaður
Rithöfundasambandsins. Hannes Hólmsteinn
hefur óskað liðsinnis sambandsins vegna deilna
um Laxness-bók.
Spurningdagsins
Aðalsteinn, er Hannes félagi?
■ Alþingi
Varaði nýja stjórn við
að búta sundur félagið
Ný stjórn tók við í Eimskipafélaginu í gær. Fráfarandi formaður beindi skeytum sínum að nýjum
eigendum og tortryggði þá. Fulltrúi Landsbankans svaraði fullum hálsi og vísaði á bug að niður-
brot á starfsemi félagsins væri markmið nýrra eigenda.
HLUTAFÉLÖG „Þeim sem leystu upp
Hf. Eimskipafélag Íslands, elsta,
virtasta og farsælasta almenn-
ingshlutafélag landsins yrði ekki
búinn heiðurssess í sögu við-
skiptalífs hér á landi.“ Þessi orð
fylgdu farsældaróskum fráfar-
andi stjórnarformanns Eimskipa-
félagsins til eftirmanna sinna í
stjórn félagsins. Hluthafafundur
Eimskipafélagsins var haldinn í
kjölfar mikilla sviptinga í ís-
lensku viðskiptalífi. Ræða fráfar-
andi stjórnaformanns félagsins
sýndi glöggt að breytingar á eign-
arhaldi félagsins voru ekki í þökk
allra hluthafa félagsins.
Stemningin á fundinum var
svolítið eins og slegið hefði verið
saman erfidrykkju og upplestri
erfðaskrár. Fjölmargir hluthafar
tóku þátt í fundinum yfir veiting-
um í súlnasal Hótel Sögu.
Jón Steinar Gunnlaugsson,
fyrir hönd Landsbankans, brást
við ummælum Benedikts. „Það er
fjarri öllu lagi eins og mátti skil-
ja á ræðu háttvirts stjórnarfor-
manns; að hlutabréf í Eimskipa-
félaginu væru að kaupa menn
sem væru illa þokkaðir í íslensku
viðskiptalífi eða hefðu einhverj-
ar fyrirætlanir um niðurbrot á
starfsemi Eimskipafélagsins.
Þetta er náttúrlega fjarri öllu
sanni.“ Hann sagði nýja hluthafa
í félaginu myndu vinna að hag
þess eins og þeir best geta. Þá
svaraði Jón Steinar einnig gagn-
rýni sem kom á verð hlutabréfa í
uppstokkun í eignarhaldinu.
Benedikt sagðist hafa greint full-
trúum Íslandsbanka og Lands-
banka að viðskiptagengi Flug-
leiða í viðskiptunum, sem var
5,35, væri lægra en tilboð sem
hefði borist nokkrum dögum
áður upp á gengið 6. Þessi við-
skipti voru gagnrýnd af Vilhjálmi
Bjarnasyni. Jón Steinar spurði
hvort aðrar leiðir hefðu verið
færar en að hafa viðskiptin á
skráðu gengi í öllum félögunum á
ákveðnum tímapunkti jafnvel
þótt greint hafi verið frá tilboði í
félagið. „Tilboð sem stjórnarfor-
maðurinn segist hafa skýrt
mönnum frá jafnvel þegar svo
langt var komið að menn voru
búnir að bindast samningum
hvor við annan.“
Gagnrýnistillögur Vilhjálms
voru felldar með yfirgnæfandi
meirihluta. Vilhjálmur dró reynd-
ar aðra þeirra, um að stjórn hlut-
aðist til um opinbera rannsókn á
viðskiptunum, til baka þegar
fundarstjóri hafði túlkað lög með
þeim hætti að allir hluthafar
mættu greiða atkvæði um hana.
Vilhjálmur taldi að þeir sem áttu
þátt í umræddum viðskiptum
ættu ekki að hafa atkvæðisrétt
um afgreiðslu hennar.
Við slit fundar þakkaði Bene-
dikt Jóhannesson fulltrúa Land-
bankans fyrir að upplýsa það að
ekki stæði til að rífa í sundur
Eimskipafélagið þegar hann
sleit fundi. „Mæltu manna
heilastur.“
Ný stjórn var sjálfkjörin á
fundinum. Hún skipti með sér
verkum. Magnús Gunnarsson er
formaður, Sindri Sindrason vara-
formaður. Aðrir stjórnarmenn
eru: Baldur Guðnason, Gunnlaug-
ur Sævar Gunnlaugsson, Pálmi
Haraldsson, Þór Kristjánsson og
Þórður Magnússon.
haflidi@frettabladid.is
TÓKÍÓ, AP Foreldrar 9 ára japansks
drengs hafa stefnt kennara
drengsins og skólayfirvöldum
fyrir ofsóknir.
Kennari drengsins lagði hann í
einelti og húðskammaði drenginn
meðal annars fyrir uppruna hans.
Svo langt gekk að kennarinn ráð-
lagði drengnum að fremja sjálfs-
morð því langa-langafi hans hefði
verið Ameríkani. Óhreint fólk
ætti ekki rétt á því að lifa.
Þá sagði kennarinn bækur og
skriffæri drengsins óhrein af
sömu ástæðum. Auk þess væru
Ameríkanar heimskir og ættu
ekkert erindi í skóla.
Kennarinn hefur viðurkennt að
hafa áreitt drenginn, uppnefnt
hann og togað í eyru hans, klipið
hann í nef og kinnar og tekið hann
kverkataki.
Skólayfirvöld hafa vikið kenn-
aranum úr starfi meðan málið er
fyrir dómstólum. Foreldrar
drengsins krefjast fyrir hans
hönd rúmlega níu milljóna króna í
skaðabætur. ■
Japanskur barnaskólakennari ofsótti 9 ára dreng:
Hvatti drenginn til sjálfsmorðs
Hæstiréttur dæmir í deilu sjómanna og útvegsmanna:
Þvert á önnur lög
DÓMSMÁL „Þetta er þvert á lög um
stéttarfélög og vinnudeilur og því
mikil breyting,“ sagði Sævar
Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambands Íslands, en sambandið
tapaði máli í Hæstarétti í gær sem
það höfðaði vegna ákvæðis í gerð-
ardómi sem settur var vegna
kjaradeilu sjómanna og útvegs-
manna.
Sævar segir þá hafa viljað fá
allan gerðardóminn ómerktan en
ekki síst ákvæði þar sem gert er
ráð fyrir að samningsumboð
vegna tæknibreytinga og hugsan-
legrar fækkunar í áhöfn verði
ekki hjá stéttarfélögunum heldur
einstaka áhöfnum. Þar sem hér-
aðsdómur og hæstaréttardómur
liggur nú fyrir um að sjómannafé-
lögin hafi ekki umboð til samn-
inga segir Sævar það vera mikla
breytingu frá því sem hefur
tíðkast. Hann er ekki viss um
hvaða áhrif þetta muni hafa. „Ég
er ósáttur, en deili ekki við dómar-
ana.“ ■
KYNJASKIPTING VEGNA KÁFS
Stjórnendur neðanjarðarlestanna í Osaka
hafa ákveðið að kynjaskipta vögnum lest-
anna vegna tíðra kvartana kvenna um káf.
Kvartað undan káfi:
Vagnar
kynjaskiptir
TÓKÍÓ, AP Stjórnendur neðanjarð-
arlestarkerfisins í Osakaborg í
Japan hafa ákveðið að kynja-
skipta lestarvögnum í borginni.
Svo rammt kveður að káfi og allra
handanna áreiti í garð kvenna í yf-
irfullum lestarvögnum, að stjórn-
endur Midosuji lestarfyrirtækis-
ins eru að drukkna í kvörtunum.
Þeir sjá þá lausn eina að bjóða
konum upp á karlalausa lestar-
vagna.
Frá því í nóvember í fyrra hef-
ur einn vagn af tíu vagna lest ver-
ið lokaður körlum en það hefur
ekki dugað til. Káfið í hinum
vögnunum 9 þykir óhóflegt og því
verða sérstakar kvennalestir frá
því snemma á morgnana þar til
lestirnar hætta að ganga um mið-
nætti. ■
Neyðaróp úr
Vesturbyggð:
Þorskkvóti
gerir
gæfumuninn
ATVINNUMÁL Atvinnumálanefnd
Vesturbyggðar skorar á ríkis-
stjórnina og Alþingi að leggja sín
lóð á vogarskálar vegna þeirrar
ófremdarstöðu sem uppi er í at-
vinnumálum Bíldælinga. Óskar
nefndin eftir því að brugðist verði
hratt og ákveðið við enda þoli mál-
ið enga bið. Ígildi 500 tonna þorsk-
kvóta geti gert gæfumuninn fyrir
íbúana og tryggt aðkomu fjár-
festa að uppbyggingu atvinnulífs-
ins á staðnum.
„Við ræddum vandann og mál-
ið er í góðum farvegi,“ sagði Ein-
ar Oddur Kristjánsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, en áfram
verður unnið að úrlausnum. ■
SKOÐI EINKAVÆÐINGARNEFND
Allir þingmenn Frjálslyndra og
Vinstri-grænna eru flutnings-
menn að beiðni um að forsætis-
ráðherra skili skýrslu um starf-
semi einkavæðingarnefndar. Í
beiðninni er lögð áhersla á mikil-
vægt hlutverk nefndarinnar og
vísað til mikilla mistaka sem hún
hafi gert við tilraunir til einka-
væðingar Símans á sínum tíma.
Hitti ítalskan kollega:
Ræddu um
Impregilo
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra, átti í gær fund
með Franco Frattini, utanríkis-
ráðherra Ítalíu. Var fundurinn
haldinn í tilefni þess að nú fer
Ítalía með formennsku í Evrópu-
sambandinu.
Á fundinum var rætt um þátt-
töku Impregilo í framkvæmdum á
Íslandi. Sagði ítalski ráðherrann
að forsvarsmenn verktakafyrir-
tækisins hefðu metnað til þess að
standa við skuldbindingar sínar á
Íslandi. Frá þessu var greint í
fréttatilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu.
Á fundi ráðherranna var einnig
rætt um loftferðasamning milli
Íslands og ESB, tvísköttunarmál,
tollamál og samskipti Íslands og
ESB. ■
Fröken klukka:
Fær rödd 12
ára stúlku
LONDON, AP Alicia Roland, 12 ára
gömul stúlka frá Renfrew-skíri á
vesturströnd Skotlands mun brátt
segja Bretum hvað tímanum líður.
Roland varð hlutskörpust í sam-
keppni sem efnt var til um gjör-
vallt Bretland. Hún verður fjórða
manneskjan í 67 ára sögu Fröken
klukku sem ljær henni rödd sína og
jafnframt fyrsta barnið sem öðlast
þennan heiður. Þá hefur Fröken
klukka ekki áður haft skoskan
hreim.
Roland mun á næstunni lesa
inn klukkustundir, mínútur og
sekúndur en alls tekur lesturinn
eina viku. ■
JAPÖNSK SKÓLASTOFA
Kennari á miðjum aldri sætir nú lögsókn vegna ofsókna á hendur níu ára nemanda sín-
um. Kennarinn ráðlagði drengnum meðal annars að fyrirfara sér vegna óhreins uppruna.
SÆVAR GUNNARSSON
Ósáttur með dóm Hæstaréttar
en deilir ekki við dómarana.
NÝIR HERRAR
Bankastjórar Landsbankans og bankaráðsmenn fylgdust með á hluthafafundi Eimskipafélagsins. Fráfarandi stjórnarformaður félagsins
brýndi menn um að reka félagið með langtímahagsmuni í huga fremur en með skyndigróða að leiðarljósi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T