Fréttablaðið - 10.10.2003, Qupperneq 4
4 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
Hvenær selst Landssíminn?
Spurning dagsins í dag:
Hvernig fer landsleikurinn
við Þjóðverja?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
37,1%
6,9%
Á næsta ári
28%Á kjörtímabilinu
28%Síðar
Í ár
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Lögreglufréttir
RAMALLAH, AP Ahmed Quriea, ný-
skipaður forsætisráðherra neyð-
arstjórnar Palestínumanna,
bauðst í gær til að segja af sér að
sögn náins vinar Yassers Arafats,
forseta Palestínu.
Arafat tók embættiseiða af
nýju neyðarstjórninni í fyrradag
en margir þingmenn lýst yfir
andstöðu við val á mönnum í
stjórnina og við stefnu hennar.
Qureia hafði hins vegar búist við
blessun palestínska þingsins og
hugðist birta stefnuskrá nýs
ráðuneytis síns í kjölfarið. Þingið
frestaði hins vegar í gær um óá-
kveðinn tíma að samþykkja nýja
ríkisstjórn Qureias.
Það var kornið sem fyllti mæl-
inn, Qureia þusti á fund Arafats
og tilkynnti forsetanum að hann
hefði ekki lengur áhuga á emb-
ættinu.
Ekki var ljóst í gærkvöld
hvort Arafat hefði samþykkt af-
sögn Qureias. Talsmaður Arafats
sagði alvarlegan ágreining uppi
en neitaði því að Qureia hefði
sagt af sér. ■
Réðu fljótt niður-
lögum eldsins
ELDSVOÐI „Þegar við komum fyrir
hornið á gamla hraðfrystihúsinu á
horni Mýrargötu og Granda blasti
ansi þykkur og
mikill reykur við
okkur,“ segir Óli
Ragnar Gunnars-
son, vettvangs-
stjóri Slökkviliðs
höfðuborgarsvæð-
isins, en allt tiltækt
slökkvilið var kall-
að út að Daníelsslipp við Mýrar-
götu klukkan átta í gærmorgun.
Óli Ragnar segir að útlitið hafi
ekki verið gott þegar þeir komu á
staðinn. Bátarnir niðri í slippnum
hafi verið undir svörtum reyk.
„Miðað við það sem blasti við mér
þegar ég kom ákvað ég að taka
enga áhættu og kalla út allt til-
tækt lið, líka þá sem voru heima á
bakvakt. Fljótlega fékk ég stað-
festingu að enginn væri í húsinu
þar sem allir voru úti að vinna.“
Óli segir að tveir reykkafarar
hafi strax verið sendir inn og náðu
þeir að komast fyrir eldinn í enda
hússins. Þegar fleiri slökkviliðs-
menn komu með meiri búnað voru
líka sendir reykkafarar inn í
skrifstofuhlutann. „Við náðum að
slá á þetta ótrúlega fljótt og vel
gekk að ráða niðurlögum eldsins
með þessum mannskap.“
Daníelsslippur er tvískipt hús,
verkstæðisbyggingin er úr timbri
en skrifstofubyggingin úr steini.
Mesti eldurinn var í timburhlut-
anum en þar er mikill eldsmatur,
milliloft, gólf og veggir eru úr
timbri og einangrun sag að mestu
leyti. Óli segir timburhlutann
vera mjög illa farinn, en heldur að
þeim hafi tekist að verja skrif-
stofuhlutann að mestu leyti. Hann
segir að eftir á að hyggja og vit-
andi að enginn hafi verið inni í
húsinu hafi kannski ekki verið
mikil hætta á ferðum. Hins vegar
urðu verðmæti eldinum að bráð.
Eldsupptök voru ókunn í gær
en málið er í rannsókn lögreglu.
hrs@frettabladid.is
HART MÆTIR HÖRÐU
Óeirðasveitir og lögreglumenn á vakt reyn-
du að brjóta á bak aftur mótmælaaðgerðir
starfsbræðra sinna.
Mótmælaaðgerðir:
Táragas
gegn
lögreglunni
AÞENA, AP Fimm manns slösuðust
þegar grískar óeirðasveitir skutu
táragasi og piparúða á hundruð
lögreglumanna í kröfugöngu í
miðborg Aþenu. Lögreglumenn-
irnir krefjast þess að stjórnvöld
efni loforð sitt um að greiða þeim
áhættuþóknun.
Átökin brutust út snemma
morguns þegar einkennisklæddir
lögreglumenn og slökkviliðsmenn
meinuðu mönnum inngöngu í grís-
ka fjármálaráðuneytið. Fjórir lög-
reglumenn og grískur þingmaður
voru fluttir á sjúkrahús. „Þetta er
til háborinnar skammar. Þetta var
tilefnislaus árás,“ sagði Dimitri
Kyriazidis, formaður stéttarfé-
lags lögreglumanna, sem íhugar
málsókn á hendur lögregluyfir-
völdum og óeirðasveitunum. ■
Reykjanesbær:
Vilja reisa
listamiðstöð
SVEITARSTJÓRNIR Reykjanesbær
hyggur á rekstur listamiðstöðvar
sem einnig er ætlað að hýsa Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar.
Bæjarstjórnin hefur skipað
undirbúningshóp sem á að kanna
möguleika á að því að í bænum
rísi tónlistarmiðstöð sem veitt
geti þjónustu út fyrir svæðið.
Rætt er um tónverkamiðstöð, að-
stöðu fyrir poppminjasafn og tón-
leika- og ráðstefnusal. Skoða á
hagnýtt gildi tengingar nýs tón-
listarskóla, poppminjasafns og
reksturs Stapans. Markmiðið er
að skapa rekstrarlega hagkvæma
einingu fyrir þessa þætti ásamt
tónleika- og ráðstefnumiðstöð. ■
MÓTMÆLT
Félagar í Landssambandi veiðifélaga
mættu í þingpalla til að mótmæla frum-
varpinu.
Ráðherra um umdeilt
frumvarp:
Laxinn ekki
í hættu
ALÞINGI Íslenski laxastofninn er
ekki í hættu þrátt fyrir að leyft
verði að flytja inn lifandi lax. Þetta
sagði Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra á Alþingi í gær.
Þar mælti hann fyrir frumvarpi
sem heimilar innflutning á eldisdýr-
um og afurðum þeirra. Með frum-
varpinu verða bráðabirgðalög frá
því í sumar staðfest en þau voru
sett í þeim tilgangi að lögleiða Evr-
óputilskipun um málið. Tilskipunin
er frá árinu 1994, en Íslendingar og
Norðmenn höfðu undanþágu frá
henni þar til í sumar.
Félagar í Landssambandi veiði-
félaga mættu í þingpalla til að mót-
mæla frumvarpinu. Óðinn Sigþórs-
son, formaður félagins, telur að inn-
leiðing tilskipunarinnar muni hafa í
för með sér úrkynjun íslenska laxa-
stofnsins til lengri tíma. ■
MEÐFERÐ Starfsmenn Byrgisins
fóru um á sex bílum í gær í leit að
langþreyttum útigangsmönnum.
Níu pláss voru laus í Byrginu í
gær, en á klukkustund höfðu jafn-
margir menn ákveðið að yfirgefa
götuna og dveljast á meðferðar-
heimilinu í Grímsnesi. „Við náð-
um í níu, en nokkra gátum við
ekki tekið, bæði vegna andlegs og
líkamslegs ástands þeirra. Tvo
þeirra fórum við með á Landspít-
alann,“ segir Guðmundur Jóns-
son, forstöðumaður Byrgisins.
Útigangsmennirnir fundust í
Austurstræti, í yfirgefnu frysti-
húsi við Mýrargötu og á Hlemmi.
Tilgangur ferðarinnar var, að
sögn Guðmundar, að nýta plássin
níu fyrir þá sem eru heimilislaus-
ir og þarfnast þeirra hvað mest.
Hann segist vona að Alþingi taki
eftir störfum Byrgisins. „Við
viljum vekja athygli á starfsem-
inni, ekki síst vegna þess að ver-
ið er að leggja fram aukafjárlög á
Alþingi. Við leggjum áherslu á að
fortíðarvandi Byrgisins sé borg-
aður upp svo við förum ekki
gjaldþrot.“
Guðmundur segir Byrgið skul-
da 21 milljón og ætla Byrgismenn
að fjölmenna á þingpalla í næstu
viku. ■
ÁREKSTUR Í STYKKISHÓLMI
Árekstur tveggja bíla varð á
gatnamótum Austurgötu og
Húsagötu í Stykkishólmi í gær.
Engin meiðsl urðu á fólki. Annar
bíllinn skemmdist nokkuð.
LENTI ÚT AF Bíll lenti utan vegar
við afleggjarann að Fróðárheiði.
Ökumaðurinn var einn í bílnum
og slapp hann ómeiddur. Bifreið-
in er nokkuð skemmd.
Friðargæsla Afganistan:
Vantar
mannskap
COLORADO, AP Robertson lávarður,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, hvatti í
gær aðildarlönd sambandsins til
að senda herlið og hjálpargögn
til Afganistan þar sem NATO
ætlaði að auka frekar friðar-
gæslu í landinu.
Nú eru um 5.500 friðargæslu-
liðar í Afganistan auk herafla
Bandaríkjamanna, en tveir mán-
uðir eru síðan NATO tók við frið-
argæslunni. Robertson lávarður
segir þörf á nokkur þúsund her-
mönnum til viðbótar. Þjóðverjar,
Ítalir, Norðmenn og Portúgalir
hafa lýst sig reiðubúna til að taka
þátt í friðargæslu í Afganistan. ■
Qureia forsætisráðherra Palestínu:
Bauðst til að
segja af sér
AÐ LOKINNI EMBÆTTISTÖKU
Yasser Arafat faðmar hér Ahmed Qurei eft-
ir að sá síðarnefndi hafði svarið embættis-
eið sem forsætisráðherra Palestínu síðast-
liðinn þriðjudag. Tveimur dögum síðar
býðst Qureia til að segja af sér.
Fundur Samráðsnefndar
með Impregilo:
Vilji til að
ná sátt
FUNDAHÖLD „Von okkar er að binda
fyrir lausa enda og koma á sátt á
þessum fundi,“ sagði Þorbjörn
Guðmundsson, talsmaður Sam-
ráðsnefndar iðn- og verkalýðsfé-
laganna. Nýr fundur stóð þá yfir
með forsvarsmönnum Impregilo
og þremur ítölskum lögfræðing-
um þeirra vegna deilu Impregilo
og verkalýðshreyfingarinnar.
„Við viljum klára málin í þetta
sinn en það er greinilegt að Ítal-
arnir eru ekki vanir uppákomum
eins og þessum fundi.“
Fundurinn stóð enn yfir þegar
Fréttablaðið fór í prentun. ■
Níu pláss í Byrginu voru fyllt:
Bílalest leitaði útigangsfólks
BYRGISMENN Í MIÐBÆNUM
Starfsmenn Byrgisins sóttu níu útigangs-
menn í miðborgina í gær vegna þess að
pláss losnuðu.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað að Daníelsslipp við Mýrargötu um
klukkan átta í gærmorgun vegna elds í timburhluta hússins. Slökkvistarf
gekk mjög vel og var því öllu lokið um hádegi.
■
Fljótlega fékk
ég staðfestingu
að enginn væri
í húsinu þar
sem allir voru
úti að vinna
DANÍELSSLIPPUR
Sex reykkafarar tóku þátt
í slökkvistarfinu sem gekk
bæði fljótt og vel.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
BANKARÆNINGI DÆMUR Ungur
maður var í gær dæmdur til
tveggja og hálfs árs fangelsis-
vistar fyrir tvö bankarán sem
hann framdi fyrr á árinu. Hann
bar því við að ránin hefði hann
framið til að greiða skuldir sínar
og komast hjá handrukkunum.
Sjónvarpið greindi frá.
NIÐURSKURÐUR Á VELLINUM
Fyrirhugaður er mikill niður-
skurður í fjárveitingum Banda-
ríkjaþings til flotastöðvarinnar á
Keflavíkurflugvelli að því er kom
fram í fréttum Stöðvar 2 í gær-
kvöldi. Niðurskurðurinn er sagð-
ur vera um 18% af heildarfjár-
veitingum.
■ Innlent
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T