Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 8
8 10. október 2003 FÖSTUDAGUR Ætli Björn viti af þessu? Frá sjónarhóli þjóðréttarins er því ljóst að ekkert er því til fyr- irstöðu að breyta kaupskipum íslenska ríkisins í herskip. At- hugandi væri hvort að beita mætti rýmkandi lögskýringu eða lögjöfnun og láta hugtakið kaupskip eining ná til fiskveiði- skipa...Íslenska ríkið yrði því að fjárfesta í kaupskipum eða taka þau eignarnámi. Bjarni Már Magnússon fjallar um varnarmál. Stúdentablaðið 8. október 2003. Nú! En ekki hvað? Það er þó athyglisvert að for- ráðamenn Landsbankans tala eins og bankinn ætli sjálfur að ráða öllu í Eimskipafélaginu. Benedikt Jóhannesson, fyrrum stjórnarformaður Eimskips, í ræðu á aðalfundi félagsins. 9. október 2003. Orðrétt STJÓRNMÁL Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingar- innar, bjóða þeim 1.152 einstak- lingum sem ekki fengu að skrá sig í Heimdall að ganga til liðs við hreyfinguna. Andrés Jónsson, formaður Ungra jafnaðarmanna, segir unga jafnaðarmenn eiga erfitt með að horfa upp á það ranglæti sem þetta fólk hafi verið beitt. „Það er sárt að vita af slíkum fjölda ungs fólks án heimahafnar í pólitík,“ segir Andrés. „Við höfum því ákveðið að bjóða því að ganga til liðs við Unga jafnaðarmenn, enda teljum við líklegt að Samfylkingin eigi betur við það en Sjálfstæðis- flokkurinn,“ segir Andrés. „Ekki bara vegna þess að Samfylkingin er opinn og lýðræðislegur flokk- ur heldur líka vegna þess að okk- ur virðist sem að þetta fólk eigi flest meiri samleið með Samfylk- ingunni en Sjálfstæðisflokknum hvað varðar hugsjónir þeirra og skoðanir.“ ■ Flóttamaður varð landstjóri Kanada LANDSSTJÓRI Þegar Adrienne Cl- arkson var útnefnd 26. landstjóri Kanada fyrir fjórum árum varð hún önnur konan til að taka við því starfi. Hún er fædd í Hong Kong við upphaf síðari heimsstyrjaldar. Árið 1942 kom hún sem flóttamaður til Kanada með fjölskyldu sinni, þá þriggja ára. Fjölskyldan hafði misst allt sitt í stríðinu og var ein ferðataska allt sem hún hafði með sér til að hefja nýtt líf. Adrienne segir það sama eiga við um marga Kanada- menn, fólk kom á nýjar slóðir og skapaði saman nýtt land. Adrienne byrjaði snemma að vinna við fjölmiðla og gerði það í mörg ár. Hún var sú fyrsta í kanadísku sjónvarpi sem ekki var hvít á hörund. Hún segir vinnu sína í sjónvarpi hafi nýst sér vel í starfi landsstjóra, ekki síst hvað framkomu varðar. Í hvoru starfinu sem er skiptir ekki máli hvort fólk sé þreytt eða fúlt; það verði alltaf að koma vel fyrir. Það er mikilvægt að koma sér beint að efninu og hægt er að segja ótrúlega mikið á 30 sekúndum, sem er langur tími fyrir framan myndavél. Adrienne segir fyrsta kven- kyns landstjórann hafa mætt mikilli gagnrýni en það sé gott að vera önnur í röðinni. Hún seg- ir almennt mikið jafnrétti í Kanada þó lengi megi gera betur og lýsir ánægju með það frum- kvæði sem Norðurlöndin hafa sýnt í þeim jafnréttismálum. Ísland er eitt af þremur lönd- um sem landstjórinn og fylgdar- lið hennar heimsækja þetta haustið auk Finnlands og Rúss- lands. Tilgangur heimsóknanna er að samhæfa reynslu þjóða sem búa á norðlægum slóðum. Í Kanada hefur hún verið gagn- rýnd fyrir þann kostnað sem fylgir heimsóknunum, samtals um 100 milljónum króna. Í ferð- inni til Íslands og Finnlands eru 33 í fylgdarliði hennar en 26 fóru með til Rússlands í síðasta mán- uði. Adrienne segir landstjóra hafa ferðast í áratugi og það hafi ávalt haft kostnað í för með sér. Hún segir ferðirnar farnar að ráði ríkisstjórnar Kanada og í fylgdarliðinu sé valinn maður í hverju rúmi. Fyrir Kanada sé mikilvægt að sem flestir lands- menn séu meðvitaðir um að stór hluti landsins sé á norðurhveli jarðar. Adrienne segir Ísland eiga kannski ekki margt sameigin- legt með norður Kanada en norðrið sé þó sameiginlegt. Loftslagið er svipað þó hitastig sé hærra á Íslandi vegna golf- staumsins. Hún segir mikilvægt að læra og nýta þá reynslu sem Íslendingar hafa af fiskveiðum, hvort sem það varði stjórnun, tækjakost eða hvernig eigi að takast á við gagnrýni vegna veiða úr sjó. Hún mun hitta forseta Íslands Ólaf Ragnar Grímsson á Bessa- stöðum klukkan fjögur í dag. hrs@frettabladid.is Friðarverðlaun Nóbels: Veðja á páfa og Havel OSLÓ, AP Jóhannes Páll páfi II og Vaclav Havel, fyrrum forseti Tékklands, þykja líklegastir til að hljóta friðarverðlaun Nóbels í ár. Tilkynnt verður í dag hver hlýtur verðlaunin. Fleiri veðja á Vaclav Havel en hann hlaut með- al annars Gandhi-friðarverðlaun- in í ár. Páfi, sem hefur verið leið- togi rómversk-kaþólsku kirkj- unnar í aldarfjórðung fylgir fast á hæla Havels. Líkurnar eru þó páfa í hag hjá veðbönkum eða 2 á móti 1 að páfi hljóti verðlaunin en aðeins 8 á móti 1 að Havel verði fyrir valinu. Alls voru 165 einstaklingar til- nefndir í ár en fimm manna dóm- nefnd kunngjörir val sitt í dag. ■ Eldborgarhátíð: Þyngdi dóm DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt 23 ára karlmann á Eski- firði til tveggja ára fangel- sisvistar fyrir að hafa nauðgað 16 ára stúlku á útihátíð sem haldin var við Eldborg um verslunarmannahelgina 2001. Hæstiréttur þyngdi dóm sem kveðinn hafði verið upp í héraðsdómi um níu mánuði en staðfesti niðurstöðu um 700.000 króna skaðabætur sem mannin- um var gert að greiða fórnar- lambinu. Maðurinn, sem nauðgaði stúlkunni að næturlagi í tjaldi hennar, neitað sök. Hann sagð- ist hafa neytt amfetamíns, e- taflna og áfengis umrædda nótt. Hann var 21 árs þegar hann framdi glæpinn. ■ ANDRÉS JÓNSSON Formaður Ungra jafnaðarmanna segist eiga erfitt með að horfa upp á það ranglæti sem Heimdallur hafi beitt stórum hópi fólks. Bjóða ungum sjálfstæðismönnum í flokkinn: Sárt að sjá ungt fólk án heimahafnar Adrienne Clarkson, landstjóri Kanada, kemur í dag í fimm daga opinbera heimsókn til Íslands. Hún telur mikilvægt að kynnast reynslu Íslendinga af fiskveiðum. ADRIENNE CLARKSON, LANDSTJÓRI KANADA. Adrienne segir reynslu sína í sjónvarpi nýtast vel í starfi landstjóra. ■ mikilvægt að læra og nýta þá reynslu sem Ís- lendingar hafa af fiskveiðum Mannanafnanefnd: Ráða nafni sínu sjálfir NÖFN Þeir sem flytja hingað til lands og fá íslenskan ríkisborgara- rétt geta fengið erlent nafn aðlagað að íslensku nafni en eru ekki skyldugir til þess segir Andri Árna- son, formaður Mannanafnanefndar. „Í núgildandi lögum um manna- nöfn er á því byggt að erlendir aðil- ar sem fá íslenskan ríkisborgara- rétt megi halda fullu nafni sínu óbreyttu. Það er því ekki rétt að þeir útlendingar sem hingað koma, þurfi að þola nafnabreytingar,“ seg- ir Andri um frétt sem birtist á mið- vikudag. Vilji einhver aðlaga nafn sitt íslenskri hefð verður sá að hafa frumkvæði að því. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.