Fréttablaðið - 10.10.2003, Side 10
10 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
Helgi Hjörvar segir Impregilo í lykilaðstöðu:
Láta reyna á öll grá svæði
ATVINNUMÁL „Impregilo er í algjörri
lykilaðstöðu vegna þess að það er
eina fyrirtækið sem treysti sér til
að reisa Kárahnjúkavirkjun á því
verði sem Íslendingar ráða við,“
segir Helgi Hjörvar, þingmaður
Samfylkingar og stjórnarmaður í
Landsvirkjun.
„Þeir vita ósköp vel að verk-
samningnum verður aldrei rift og
þess vegna láta þeir reyna á öll grá
svæði í löggjöf og eftirliti á Ís-
landi.“
Helgi bendir á að í aðdraganda
kosninga auglýsti Impregilo eftir ís-
lensku verkafólki. „Þeir fengu yfir
eitt þúsund umsóknir. Af þeim voru
90 ráðnir. Impregilo hefur metið
það svo að íslenskir kjarasamningar
væru svo lélegir að það borgaði sig
að flytja inn vinnuafl og það hafa
þeir komist upp með hingað til.“
Þorbjörn Guðmundsson, tals-
maður Samráðsnefndar iðn- og
verkalýðsfélaganna, segir þessa
nálgun Helga mjög athyglisverða.
„Þarna opnar Helgi fyrir nýja vídd
á þessar umræður og hittir naglann
á höfuðið. Margt við framkomu
Impregilo gagnvart Íslendingum og
íslenskum lögum og reglum má út-
skýra með þessum hætti, að þeir
telji sig vita hversu langt er hægt að
ganga og þeir hiki ekki við að fara
eins langt og mögulega er hægt án
þess beinlínis að brjóta lögin.“ ■
SPILLING Samkvæmt skýrslu sam-
takanna Transparency
International er minnst spilling
talin í Finn-
landi en
næst minnst
á Íslandi.
K ö n n u n i n
m æ l i r
traust fólks,
bæði íbúa
landanna og
útlendinga,
á stjórn-
kerfi og við-
skiptahátt-
um.
Í s l a n d
fær einkunnina 9,6 en sex lönd
er með ágætiseinkunn, milli 9,0
og 10, þar af eru fjögur Norður-
landanna; öll nema Noregur,
sem er í áttunda til tíunda sæti
og fær einkunnina 8,8.
Sé tekið mið af hefðbundinni
einkunnadreifingu í skóla virð-
ist sem þjóðir heims fái fremur
lakan vitnisburð hvað varðar
spillingarmál. Af 133 ríkjum fá
einungis þrjátíu og sjö ríki yfir
fimm í einkunn.
Spilltustu löndin samkvæmt
rannsókninni eru meðal þeirra
fátækustu í heiminum. Bangla-
desh er neðst á blaði, með ein-
kunnina 1,3 en þar fyrir ofan
eru Nígería, Haítí, Paragvæ og
Myamnar.
Spilltasta ríkið í Vestur Evr-
ópu er talið vera Grikkland, sem
fær einkunnina 4,3 en þar á eft-
ir er Ítalía sem fær 5,3. Banda-
ríkin fá einkunnina 7,5, Japan 7
og Frakkland 6,9. ■
ALÞINGI Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra lýsti því yfir á Alþingi í
gær að engum ætti að koma á
óvart að undirbúningur að sölu
Landssímans væri hafinn. Hann
sagði jafnframt eðlilegt að hluta-
bréf ríkisins í Símanum væri flutt
frá samgönguráðherra til fjár-
málaráðherra en að því hefur ver-
ið unnið í stjórnkerfinu.
Ögmundur Jónasson, þingmað-
ur Vinstrihreyfingarinnar-Græns
framboðs, tók til máls við upphaf
þingfundar í gær og gerði að um-
fjöllunarefni frétt Fréttablaðsins
frá því á miðvikudaginn þar sem
fram kom að áhugi fjárfesta á að
kaupa Símann hefði þrýst á Einka-
væðingarnefnd að hefjast handa
við undirbúning að selja fyrirtæk-
ið.
Ögmundur spurði hvort það
væri rétt að flytja ætti hlutabréf-
ið til fjármálaráðherra. Geir sagði
svo vera, málið hefði verið undir-
búið í ráðuneytunum og það þætti
ekki eðlilegt að sami ráðherra
færi með hlutabréfið í Símanum
og bæri ábyrgð á leikreglum á
fjarskiptamarkaði.
Geir segir að stefnan um að
selja hlut ríkisins í Landssíman-
um komi skýrt fram í stjórnar-
sáttmálanum og að því markmiði
yrði fylgt fast eftir. Hann sagði
ómögulegt að fullyrða hver kaup-
andinn yrði en hann yrði væntan-
lega valinn eftir auglýsingu.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, sagð-
ist vera sammála því að selja ætti
samkeppnisrekstur Símans en
halda grunnetinu í ríkiseigu.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, varaði við því að
einkavæða Símann og spurði
hverjir myndu kaupa hann. „Er
það Samson sem er í vændum,“
spurði hann, „eða Og Vodafone?“
Steingrímur sagðist vilja opin-
bera rannsókn á því hvernig stað-
ið var að söluferli Símans fyrir
tveimur árum og sölu Lands-
bankans og Búnaðarbankans og
Ögmundur tók undir með honum.
Jón Bjarnason, þingmaður
VG, saknaði framsóknarmanna í
umræðunum og spurði hvort
þeir væru orðnir ofurseldir
markaðsöflunum í Sjálfstæðis-
flokknum.
kgb@frettabladid.is
Héraðsdómur:
Tveggja ára
fangelsi
DÓMSMÁL Maður hefur verið dæmd-
ur í tveggja ára fangelsi fyrir að
nauðga tveimur stúlkum á heimili
sínu í janúar á þessu ári. Stúlkurnar
gátu ekki spornað við nauðguninni
sökum ölvunar og svefndrunga.
Stúlkurnar báru fullt traust til
mannsins sem á þeim tíma var yfir-
maður þeirra. Þær höfðu endað
heima hjá manninum eftir skemmt-
un og sofnað á heimili hans, önnur í
sófa og hin í svefnherbergi. Önnur
stúlkan vaknaði við að maðurinn
hafði við hana samræði. Hann hafði
þá áður haft samræði við hina stúlk-
una án þess að hún yrði þess vör
sökum ölvunar og svefns. ■
AFMÆLISTILBOÐ !
20-40 %
AFSLÁTTUR
L A U G A V E G I 3 9
S : 5 5 1 9 0 4 4
10
ÁRA
Skipulagsnefnd:
Fagna áhuga
KÓPAVOGUR Bæjaryfirvöld í Kópa-
vogi ætla að halda kynningarfund
fyrir almenning um væntanlega
háhýsabyggð í Lund. Nágrannar
Lundar hafa safnað undirskrift-
um til að krefjast fundarins.
Gunnsteinn Sigurðsson, bæjar-
fulltrúi og formaður skipulags-
nefndar Kópavogs, segir það hafa
legið fyrir í allt sumar að haldinn
yrði kynningarfundur um Lundar-
svæðið með haustinu. Nú liggi
fyrir að fundurinn verði eftir
viku, eða fimmtudagskvöldið 16.
október.
Að sögn Gunnsteins verður
skipulagsnefndin á fundinum auk
bæjarstjóra og annarra embættis-
manna bæjarins. Einnig fulltrúar
þeirra sem standa munu fyrir
framkvæmdunum í Lundi. ■
HELGI HJÖRVAR
Löggjafinn verður að tryggja betur réttindi
verkafólks á Íslandi.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Vildi að þingheimi yrði tilkynnt um áform að selja Símann.
MINNST
SPILLING
1. Finnland 9,7
2. Ísland 9,6
3.-4. Danmörk 9,5
3.-4. N. Sjál. 9,5
5. Singapore 9,4
MEST SPILLING
133. Bangladesh1,3
132. Nígería 1,4
131. Haítí 1,5
129. Paragvæ 1,6
130. Myanmar 1,6
Könnuðu spillingu víða um heim:
Næst minnst
á Íslandi
Sala Símans
á dagskrá
Ráðherra staðfestir að söluferli Símans sé farið
af stað. Óeðlilegt að sama ráðuneyti fari með
hlutabréf og hafi eftirlit með fjarskiptamarkaði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
LUNDUR
Kynningarfundur verður haldinn eftir viku
til að skýra fyrirhugaða háhýsabyggð.
Svonaerum við
DAGBLÖÐ OG VIKUBLÖÐ
Á ÍSLANDI
Ártal Dagblöð Vikublöð
1900 0 6
1920 3 9
1940 4 10
1960 5 10
1980 6 9
2000 3 22
2002 3 22
Heimild: Hagstofa Íslands