Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 11
11FÖSTUDAGUR 10. október 2003
Sýniken
nsla í
haustskr
eytingum
lau. og s
un. kl. 1
3-17
í Blóma
vali Sigt
úni
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
24
81
10
/2
00
3
50% afsláttarhelgi
Begóníur
Pottakrýsi
Haustvendir 50% afsl.
Garðhúsgögn
50% afsláttur
1.999
990
Stór
Minni
kr. verð áður 3.999 kr.
kr. verð áður 1.999 kr.
Blómstrandi plöntur 50% afsl.
Rýmingarsala
á pottaplöntum
50% afsláttur
VIÐSKIPTI Beiðni um hluthafafund í
Sjóvá-Almennum hefur verið
dregin til baka. Fjárfestingarfé-
lögin Afl og Atorka afturkölluðu
beiðni um hluthafafund. Þau hafa
selt bréf sín í Sjóvá-Almennum í
skiptum fyrir bréf í Íslandsbanka.
Fulltrúar Afls og Atorku, þeir
Margeir Pétursson og Þorsteinn
Vilhelmsson, sendu frá sér yfir-
lýsingu í kjölfar yfirtöku Íslands-
banka á Sjóvá-Almennum. Þeir
töldu bréf félagsins síst ofmetin
og vísuðu til greiningar sem unn-
in var fyrir þá af erlendum ráð-
gjafa. Á hluthafafundinum voru
boðaðar samþykktir um máls-
höfðanir á hendur Íslandsbanka
og/eða stjórnarmönnum í Sjóvá-
Almennra vegna sölu félagsins á
eigin bréfum til Íslandsbanka.
Þau viðskipti voru látin ganga til
baka.
Margeir Pétursson vildi ekki
tjá sig um stefnubreytingu Afls
og Atorku. Samkvæmt heimildum
var það einkum tvennt sem réð
ákvörðun fjárfestingarfélagsins.
Íslandsbanki sendi frá sér af-
komuviðvörun um betri afkomu.
Því þóttu bréf í bankanum fýsi-
legri í skiptum fyrir bréf í Sjóvá-
Almennum. Einnig var það talið
skaða bæði félögin, og með því
fjárfestingu Afls og Atorku, að
standa í deilum sem gætu tekið
langan tíma að leiða til lykta. Þess
utan þykir lítið spennandi að sitja
fastur með stóra fjárfestingu í fé-
lagi og ráða litlu um ákvarðanir
sem teknar eru í stjórn þess.
Seðlabankinn
Jónas fer í
bankaráð
SEÐLABANKI Alþingi kaus í gær
Jónas Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóra Austfars á Seyðis-
firði og fyrrverandi varaþing-
mann Framsóknarflokksins, í
bankaráð Seðlabankans.
Jónas kemur í stað Jóns Sig-
urðssonar sem hóf störf sem
Seðlabankastjóri 1. október. ■
Síldarviðræður:
Enginn
grundvöllur
SJÁVARÚTVEGSMÁL Árni Mathiesen
sjávarútvegsráðherra segir að
ekki hafi verið grundvöllur til
frekari viðræðna um stjórnun
veiða úr norsk-íslenska síldar-
stofninum en fundi Íslands, Fær-
eyja, Noregs, Rússlands og Evr-
ópusambandsins lauk án sam-
komulags á miðvikudag.
Árni segir að Norðmenn hafi
komið fram með sömu kröfu og
síðast þegar slitnaði upp úr við-
ræðunum. Hann segir að næstu
skref séu að menn ræði óformlega
og reyni að ná lendingu í málin.
Nýr fundur hefur ekki verið boð-
aður. ■
MJÚK LENDING
Concorde-þota British Airways lenti á Log-
an-flugvellinum í Boston eftir að hafa flog-
ið á mettíma yfir Atlantshafið.
Concorde-þota:
Á mettíma
BOSTON, AP Hljóðfrá Concorde-þota
flugfélagsins British Airways fór
á mettíma frá London til Boston í
lokaheimsókn sinni vestur um
haf.
Flugið tók þrjár klukkustundir,
fimm mínútur og 34 sekúndur, að
sögn talsmanns flugfélagsins.
Venjuleg farþegaþota er um það
bil tveimur klukkustundum leng-
ur að fljúga yfir Atlantshafið.
Concorde-þotur ferðast á tvöföld-
um hljóðhraða, um það bil 2.090
kílómetra á klukkustund.
Þotan fer frá Boston til Was-
hington og þaðan til Toronto í
Kanada. ■
Hluthafafundur blásin af:
Málshöfðanir afturkallaðar
MARGEIR PÉTURSSON
Margeir og Þorsteinn Vilhelmsson boðuðu
átök í Sjóvá-Almennum. Þeir hafa lagt nið-
ur vopnin og meta það greinilega svo að
fjárfestingu þeirra sé betur borgið með
yfirtökutilboði Íslandsbanka.