Fréttablaðið - 10.10.2003, Side 12

Fréttablaðið - 10.10.2003, Side 12
12 10. október 2003 FÖSTUDAGUR Á LEIÐ Í NBA? Jón Arnór Stefánsson hefur staðið sig vel í æfingabúðum Dallas Mavericks á undir- búningstímabilinu fyrir NBA-deildina. Jón Arnór skoraði tvö stig í æfingaleik á móti Orlando Magic. Hann fær væntanlega að spreyta sig gegn New Orleans Hornets að- faranótt sunnudags. Sextán leikmenn eru eftir í æfingabúðum Mavericks en aðeins fimmtán komast að. UMHVERFISMÁL Kanadísk stjórn- völd gangast nú fyrir hreinsun á menguðum jarðvegi við yfirgefna radarstöð Bandaríkjamanna á Resolution-eyju. Radarstöðin sem er í óbyggð- um á eyjunnar við suðurodda Baffinslands þykir um flest minna á radarstöðina á Heiðar- fjalli. Stöðin á Heiðarfjalli var starfrækt árin 1955 til 1970. Stöð- in á Resolution-eyju var rekin af Bandaríkjaher árin 1953 til 1972. Kanadastjórn tók stöðina yfir en lokaði henni árið 1974. Flytja á um 5 þúsund rúmme- tra af PCB-menguðum jarðvegi frá Resolution til eyðingar í Quebec. Áætlaður kostnaður við þennan lið svarar til um 530 millj- ónum króna samkvæmt því sem kemur fram í skýrslu Douglas Kroekers. Hann stjórnar hreins- uninni af hálfu fyrirtækisins sem tók verkið að sér. Eins og kunnugt er hafa bæði íslensk og bandarísk stjórnvöld ít- rekað hafnað því að hreinsa úr- ganginn sem skilinn var eftir á Heiðarfjalli. Vísa stjórnvöld hvert á annað. Máli landeigend- anna á hendur bandarískum stjórnvöldum var vísað frá dóm- stólum hérlendis. Málið er nú til skoðunar hjá Mannréttindadóm- stól Evrópu. ■ Fá skjólfatnað í kjölfar verkfalls Verkfall sem rúmlega 70 Portúgalir hófu í gærmorgun, til að knýja á um að staðið væri við loforð Impregilo um hlýjan vinnufatnað og betri aðbúnað, bar árangur síðdegis þegar forsvarsmenn Impregilo létu undan helstu kröfunum. VERKFALL Skyndiverkfalli sem 70 Portúgalir hófu á Kárahnjúka- svæðinu í gærmorgun, lauk síð- degis eftir að forsvarsmenn Impregilo féllust á að útvega þeim skó og skjólfatnað. Fram að þeim tíma höfðu mennirnir ekki fengið nein hlífðarföt síðan þeir hófu störf fyrir einum og hálfum mánuði þrátt fyrir ítrekaðar óskir þess efnis. „Okkur var lofað öllu fögru þegar við hófum hér störf og það hefur ekki verið staðið við neitt af því,“ sagði einn verkfallsmanna sem Fréttablaðið náði tali af. „Við höfum allir starfað áður við svona framkvæmdir en aldrei upplifað neitt þessu líkt. Hér stöndum við nánast fatalausir í frosti og kulda. Við sofum tveir og tveir saman í herbergjum og við deilum með okkur einu klósetti.“ Fimm stiga frost var í fyrrinótt á Kárahnjúkasvæðinu og gera veðurspár ráð fyrir að hiti næstu daga verði við frostmark. Sam- kvæmt íslenskum samningum er kveðið á um að verktaki skuli út- vega nýjum starfsmönnum vinnu- fatnað og skófatnað þegar starf er hafið. „Okkur var lofað hlýjum fatn- aði strax í upphafi. Enginn okkar hefur fengið slíkan fatnað enn sem komið er. Þess utan þurfum við að skipta um föt í nístings- kulda í gámi áður en við göngum til náða.“ Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins gengu forsvarsmenn Impregilo að hluta til að kröfum Portúgalanna síðdegis í gær. Hver og einn fær skófatnað og sokka innan skamms tíma. Sættust þeir á þau málalok í bili og munu þeir taka til starfa aftur í dag. Impregilo hefur keypt mikið magn af vinnugöllum og skóm af íslenskum fyrirtækjum undanfar- ið en greinilegt er að ekki njóta allir góðs af þeim kaupum. albert@frettabladid.is LÍKIN FLUTT Brunnin lík voru flutt á sjúkrahúsið í smá- bænum Situbondo þar sem reynt var að bera kennsl á þau. Umferðarslys: Skólastúlkur fórust JAKARTA, AP Indónesíska lögreglan leitar nú flutningabílstjóra sem talinn er eiga sök á hörðum árek- stri sem kostaði 54 lífið. Flestir hinna látnu voru unglingsstúlkur á leið heim úr skólaferðalagi. Flutningabíll ók aftan á rútuna á þjóðvegi skammt frá bænum Situbondo. Eldur kviknaði í rút- unni áður en farþegunum gafst ráðrúm til að koma sér út. Öku- maður flutningabílsins flúði af vettvangi. Að sögn lögreglu er talið að hemlar bílsins hafi gefið sig þegar hann ók á eftir rútunni niður brekku. Lík farþeganna eru illa brunn- in og því erfitt að bera kennsl á þau. Íbúar í Sleman, heimabæ stúlknanna, eru lamaðir af sorg. ■ HEIÐARFJALL Kanadísk stjórnvöld láta nú fjarlægja 5 þúsund fermetra af PCB-menguðum jarðvegi frá radarstöð á hinni afskekktu Resolution-eyju. Radarstöðin er sambærileg við radarstöðina sem rekin var á Heiðarfjalli hér á landi. Þar sitja landeigendur uppi með alla mengunina. Kanadamenn taka til hendinni á sínu „Heiðarfjalli“: Mengaður jarðvegur fluttur frá radarstöð SAMKOMULAGIÐ KYNNT Fulltrúar Víetnam og Bandaríkjanna, Laura Faux-Gable Thamvu Hien kynntu sam- komulagið um áætlunarflug milli landanna á blaðamannafundi í gær. Samgöngur milli Banda- ríkjanna og Víetnam: Áætlunarflug á næstunni HANOI, AP Stjórnvöld í Víetnam og Bandaríkjunum hafa samið um að hefja beint áætlunarflug milli landanna. Engar beinar samgöng- ur hafa verið milli landanna frá lokum Víetnamstríðsins árið 1975. Bandaríkin studdu stjórnvöld í Suður-Víetnam í stríðinu við grannana í norðri. Rúmlega ein milljón Víetnama býr í Bandaríkjunum og færist æ meira í vöxt að þeir heimsæki föð- urlandið. Samskipti Víetnams og Banda- ríkjanna hafa vaxið eftir að tví- hliða viðskiptasamningur land- anna var undirritaður í desember árið 2001. Samkomulag um áætl- unarflug hefur þó ekki tekist fyrr en nú. Ekki liggur fyrir hvenær fyrsta flugið verður. ■ Síbrotamaður: Dæmdur fyrir hnífaárás DÓMSMÁL Hálffimmtugur maður hefur verið dæmdur í sex mán- aða fangelsi fyrir að skera drykkjufélaga sinn frá auga og niður undir neðri vör. Ástæða árásar mannsins var deila um vínflösku þar sem þeir sátu að sumbli þriðjudagsmorg- un einn í nóvember 1999. Sauma þurfti 20 spor í skurðinn langa og auk þess tvö spor í hvorn tveggja smáskurða við augabrún fórnarlambsins. Árásarmaðurinn hefur hlotið 40 refsidóma á löngum afbrota- ferli. Hann á að greiða 100 þús- und króna skaðabætur. ■ FÆRRI ÁN VINNU Atvinnulaus- um fækkaði í Þýskalandi í sept- ember og er það m.a. þakkað endurbótum á vinnumarkaðs- reglum. Atvinnuleysið minnkaði úr 10,4% í ágúst í 10,1%. Ástandið er mun betra í vestur- hluta landsins og þar fjölgaði störfum mun meira en í austur- hlutanum. Nú eru alls 4,2 millj- ónir Þjóðverja án atvinnu. FJÖLGAR Í DANMÖRKU Atvinnu- leysi í Danmörku jókst lítillega í ágúst og mælist nú 6,1%. Aukn- ingin nemur 0,1 prósentustigi að sögn dönsku hagstofunnar. Alls voru 169.900 Danir atvinnulaus- ir í síðasta mánuði, ríflega 2000 fleiri en mánuðinum á undan. Á sama tíma í fyrra voru 144.400 Danir atvinnulausir. ■ Evrópa FRÁ KÁRAHNJÚKASVÆÐINU Framkvæmdir eru komnar á fullt skrið eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. HÚSNÆÐISMÁL „Könnunin staðfest- ir að meirihluti fólks er hlynnt hugmyndum um 90% lán til hús- næðiskaupa,“ sagði Árni Magnús- son félagsmálaráðherra en ráðu- neytið hefur látið gera viðhorfs- rannsókn á húsnæðismarkaðnum hér á landi. Slík rannsókn hefur ekki verið gerð síðan 1979. „Margir hafa lýst yfir áhyggj- um af þeim þensluáhrifum sem verða ef lánahlutfallið verður hækkað í 90%. Samkvæmt skýrsl- unni segja þrír af hverjum fjórum að það hefði engin áhrif á þá varð- andi húsnæðiskaup hvort 90% lán væru í boði eða ekki. Það bendir til að áhrifin verði mun minni en margir óttast.“ Árni sagði að stefna ríkis- stjórnarinnar væri að auka lána- prósentuna í 90% og niðurstöður starfshóps sem um málið fjallar ættu að liggja fyrir í lok þessa árs. Í könnuninni, sem Gallup stóð fyrir, kemur margt athyglisvert fram. Meðal annars vilja 93% Ís- lendinga búa í sínu eigin hús- næði, heil 92% eru ánægð í nú- verandi húsnæði og 65% að- spurðra telja ólíklegt að þeir skipti um húsnæði á næstu fimm árum. ■ ÁRNI MAGNÚSSON Meirihluti fólks er hlynnt hugmyndum um viðbótarlán til húsnæðiskaupa. Viðbótarlán til húsnæðiskaupa: Minni áhrif en margir óttast FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Formaður VR: Undrandi á lögfræðiáliti LÍFEYRISMÁL Í lögfræðiáliti sem Þórarinn V. Þórarinsson lögmað- ur hefur unnið fyrir Samtök At- vinnulífsins kemur fram sú skoðun að félögum í Verslunar- mannafélagi Reykjavíkur sé ekki skylt að greiða iðgjöld til Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Kemur fram í álitinu að ákvæði um skylduaðild að lífeyr- issjóðum falli niður ef lífeyris- sjóðir eigi ekki fyrir skuldbind- ingum sínum. Þannig sé félags- mönnum í VR heimilt að greiða iðgjöld sín til annarra lífeyris- sjóða að því gefnu að þeir lífeyr- issjóðir standi undir sínum skuldbindingum. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segist vera undrandi á að álit- ið komi frá Samtökum atvinnu- lífsins en óþarfi sé að taka álitinu sem endanlegum sannleik í mál- inu. SA hafi heldur ekki ákveðið hvort þau geri álitið að sínum til- lögum. Hann segir að stjórn VR muni fara yfir málið og kanna með sínum lögfræðingum. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.