Fréttablaðið - 10.10.2003, Page 26
Solla á Grænum kosti er flestumkunn. Hún hefur verið óþrjót-
andi að kynna heilsusamlegt
mataræði fyrir Íslendingum um
árabil. Nú er hún búin að setja sam-
an bók sem heitir Grænn kostur
Hagkaupa og hún verður seld eins
og nafnið gefur til kynna í Hag-
kaupsverslunum. „Bókin er skrifuð
fyrir íslenskar aðstæður og miðuð
við hráefni sem fæst hér í búðum.
Fólk er alltaf að koma til mín og
segja að það vanti bækur með upp-
skriftum sem eru aðgengilegar og
passa við íslenskan markað. Ég
hafði verið með bók í smíðum þeg-
ar þeir í Hagkaup höfðu samband
við mig og buðu mér að semja bók
fyrir sig. Eftir smá umhugsun
fannst mér það frábær hugmynd.“
Sólveig kannast við það að fólki
finnist tilhugsunin um það að elda
sykur, hveiti og gerlaust fæði mjög
mikil fyrirhöfn. „En ég hef verið í
því að einfalda uppskriftir í 25 ár,
ég nota mikið matvinnsluvélar og
miða uppskriftirnar við það sem
fæst hér,“ segir Sólveig og tekur
fram að vöruúrval hafi breyst gíf-
urlega mikið síðan hún fór að fást
við heilsusamlega eldamennsku, og
verðið líka:
„Ég man eftir því þegar ég var
hér heima í jólafríi og einn blóm-
kálshaus kostaði það sama og rúlla
af hangikjöti. Núna er þetta allt
annað líf. Á haustin er hægt að hafa
blómkál í öll mál ef maður vill.“
Sólveig er lærður textílhönnuð-
ur en matargerðin hefur smám
saman tekið öll völd í hennar lífi.
„Sköpunarþörfin er alveg jafn mik-
il og áður en hún hefur færst yfir í
matargerðina.“
Bókin skiptist í sextán kafla og
hún „spannar alla flóruna“ eins og
Sólveig segir. Hún heldur um þess-
ar mundir stutt námskeið í verslun
Hagkaupa í Smáralind og segir Sól-
veig það stórskemmtilegt að kenna
eldamennsku þar sem vörurnar
fást. „Ég hef sér renni uppi ljós
fyrir nemendum mínum þegar ég
sýni þeim hvaða baunir eru í hvaða
pökkum, þá fara þeir að tengja svo
skemmtilega.“
KARTÖFLUBUFF
750 g soðnar kartöflur
125 g rifinn sojaostur
4 stk. vorlaukar
1 búnt ferskt kóríander
3 stk. græn chilialdin
smá sjávarsalt og nýmalaður pipar
RASP
125 g sesamfræ
125 g heslihnetur
AÐFERÐ
Afhýðið soðnar kartöflur og
skerið vorlaukinn smátt. Skerið
chili í tvennt, fræhreinsið og sax-
ið smátt. Fínsaxið ferskt kóríand-
er. Blandið kartöflum, sojaosti,
vorlauk, kóríander, chili og smá
salti og pipar saman í skál, hnoðið
vel saman og mótið 12 buff. Setjið
sesamfræ og heslihnetur í bland-
ara og malið frekar fínt. Veltið
buffunum upp úr hneturaspinu og
setjið í kæli. Það er betra að eiga
við þessi buff ef þau hafa verið
sett smástund í kæli áður en þau
eru steikt. Hitið olíu á pönnu og
steikið buffin í um 2,5 mínútur á
hvorri hlið, eða þar til þau eru
orðin gullin á lit.
Haldið buffunum heitum í ofn-
inum þar til þið berið þau á borð
með sósu.
GRÆN CHILIALDINSÓSA
1 stk. avókadó
2 stk. græn chilialdin
1/2 búnt ferskt kóríander
2 stk. vorlaukar
1/2 dl appelsínusafi
1 msk. ólífuolía
1 stk. lime, rifinn börkur og safi
smá sjávarsalt og nýmalaður pipar
1 stk. hvítlauksrif
Afhýðið avókadó, fjarlægið
steininn og skerið í bita. Skerið
chili í tvennt, fræhreinsið og sker-
ið í bita. Skerið vorlaukana í bita,
rífið börkinn af lime og kreistið úr
því safann. Setjið allt hráefnið í
matvinnsluvél, maukið og bragðið
til með salti og pipar.
Þessi sósa er frábær með alls
konar mat. ■
matur o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
Solla á Grænum kosti:
Sköpunarþörfin fær útrás í matargerðinni
Íslensku kvikmynda- og sjón-varpsverðlaunin, betur þekkt
sem Edduverðlaunin, verða af-
hent við hátíðlega athöfn á Hót-
el Nordica í kvöld. Kvikmyndin
Nói albinói verður þar mjög
áberandi enda tilnefnd til fjölda
verðlauna en annar albinói kem-
ur einnig við sögu, nefnilega
drykkur hátíðarinnar; Rauður
albinói en spariklæddir hátíðar-
gestir munu dreypa á honum
fyrir verðlaunaafhendinguna.
Rétt eins og í kvikmynda-
gerðinni í dag speglast í honum
alþjóðleg áhrif og samvinna að-
ila frá mörgum heimshornum.
Drykkurinn samanstendur af
fersku vodka frá Finnlandi,
muldum jökulís frá Íslandi og
jarðarberjafreyðivíni frá Chile.
Nafnið á drykknum er tilvísun í
að Finlandia hefur nú breytt um
stíl í trönuberjavodka (Finlandia
Cranberry) og er það nú glært á
lit (eða litlaust eins og albinói)
en rauði liturinn kemur frá
Fresita-freyðivíninu.
Fyrir þá sem ekki komast á
hátíðina en vilja hafa það hátíð-
legt þá er hér uppskriftin að
Rauðum albinóa:
RAUÐUR ALBINÓI
Setjið vel af muldum klaka í glas
Bætið í 3 cl af Finlandia-vodka
Toppið með Fresita-freyðivíni
Rauður albinói á
Edduverðlaununum!
Kokteillinn
Sviðasultugerð:
Afskaplega
auðveld
Svið þykja mörgum herra-mannsmatur og ef plássið í
frystinum er lítið er mjög auðvelt
að búa til sviðasultu og frysta.
„Það gæti ekki verið minna mál,“
segir Margrét D. Sigfúsdóttir,
skólastjóri Hússtjórnarskólans.
„Frosin svið eru sett í pott með
vatni og salti og smakkað á soðinu
þegar suðan kemur upp til að
ganga úr skugga um að það sé
nógu salt. Sviðin eru soðin í a.m.k.
tvo og hálfan tíma. Gott er að taka
þau upp og athuga hvort kjötið
losnar af beinunum þannig að þau
séu nógu vel soðin. Síðan eru þau
sett í ofnskúffu, farið í gúmmí-
hanska og allt kjötið hreinsað af
beinunum. Kjötið er sett í köku-
mót með smávegis af soði úr pott-
inum. Þetta er sett inn í ísskáp og
er tilbúið daginn eftir. Þá er sult-
an skorin í bita og sett í frysti.“ ■
BANANAR Bananar eiga uppruna
sinn að rekja til Indlands og eru
einkum ræktaðir í hitabeltinu, V-Ind-
íum, Afríku og S-Ameríku. Það eru
einkum sú gerð sem kallast ávaxta-
bananar sem við þekkjum. Þeir eru
borðaðir hráir eða matreiddir, t.d. í
eftirrétti. Bananar urðu ekki algeng-
ir í Evrópu fyrr en á 18. öld. Þeir eru
mjög orkuríkir og ríkir af A, C og K
vítamínum og því góð fæða fyrir
krakka sem eru að vaxa.
SÓLVEIG EIRÍKSDÓTTIR
Kunni ekki að sjóða vatn þegar hún byrjaði í heilsufæðinu fyrir 25 árum - en var fljót að læra og kennir öðrum að elda í dag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M