Fréttablaðið - 10.10.2003, Page 28
SKRÝTNA FRÉTTIN Áströlsk vændis-
hús hafa ákveðið að auka þjónustu
sína vegna heimsmeistaramótsins
í rugby sem er að hefjast. Ástæð-
an mun vera sú að breskir við-
skiptajöfrar eru þekktir fyrir að
biðja um sérþjónustu í S&M-kyn-
lífi. Vændishúsin hafa því mörg
ráðið til sín sérfræðinga á því
sviði, og hvergi verður sparað í
kostnaði.
Vændishúsin hafa því aukið
birgðir sínar af svipum, sokka-
böndum og leðurgrímum svo um
munar en búist er við því að nokk-
ur þúsund ferðamenn komi til
landsins til þess að fylgjast með
keppninni.
„Við vitum að upparnir frá
England vilja láta flengja sig,“
sagði Robbie Swan, talsmaður
The Eros Association, samtaka
kynlífsiðnaðarins í landinu, í við-
tali við BBC. Hann sagði ástæðu
þess að vændishúsin væru að
auka birgðir sínar núna vera að
reynslan sýndi að þegar breskri
yfirstéttarmenn hrúgast inn í
landið, eykst eftirspurnin fyrir
slíku.
Vændishús, sem mega ekki
auglýsa opinberlega, hafa einnig
fundið upp á mörgum nýstarleg-
um leiðum til þess að lokka ferða-
menn til sín. Hópur vændiskven-
na tók t.d. á móti argentínska rug-
by-liðinu með spjöldum sem á
stóð: „Care for a ruck?“ Eitt
vændishúsanna tók upp á því að
mála húsið að framan með fánalit-
um Ítalíu og Nýja Sjálands. ■
28 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
HILTON-SYSTUR
Systurnar Paris og Nicky Hilton sjást hér á
Cinespace-veitingarhúsinu í Los Angeles.
Myndin var tekin á miðvikudag þegar
stúlkurnar fögnuðu því að hafa landað
sjónvarpsþætti á MTV. Hann heitir Made
og fer á dagskrá fljótlega. Þær systur hefur
aldrei skort neitt peningalega séð þar sem
þær eru erfingjar Hilton-hótelkeðjunnar.
Nicky, sú yngri til hægri, fagnaði einnig
tvítugsafmæli sínu í leiðinni.
NETMÁL Veffyrirtækið Napster
sneri aftur á Netið í gær, tveimur
árum eftir að dómsstólar lokuðu
fyrir starfssemi þeirra vegna
ólöglegrar dreifingu á hugverkum
listamanna. Vefsvæðið verður
fyrst einungis opið tímabundið til
29. október á meðan prufur standa
yfir á nýja búnaðinum.
Notendur verða nú að borga
fyrir það að nálgast tónlist í gegn-
um búnað fyrirtækisins. Þannig fá
listamenn, og plötufyrirtæki, sinn
skerf af kökunni.
Napster var keyptur í fyrra af
netfyrirtækinu Roxio fyrir um 5
milljónir dollara (nú 380 milljón
kr.) sem hyggst nota það til gróða-
reksturs, ólíkt því sem gamla Nap-
ster gerði. Stofnandi Napster,
Shawn Fanning, var svo ráðinn til
nýja fyrirtækisins sem sérlegur
ráðgjafi. Fyrirtækið vonast til
þess að Napster-nafnið verði til
þess að laða netnotendur að þjón-
ustunni, en samkeppnin um vef-
sölu tónlistar harðnar með hverj-
um deginum.
„Samkeppnin er að verða hörð
því menn eru að átta sig á því að
hér eru stór viðskiptatækifæri,“
segir Chris Gorog, forstjóri Roxio.
„Þetta gerir okkur kleift að koma
sterkir inn á markaðinn.“
Roxio hefur tryggt sér samning
við Microsoft um að Napster-for-
ritið fylgi í framtíðinni með
Windows-stýrikerfum þess. Við-
skiptasérfræðingar hafa spáð því
að netskipti á tónlist verði um 12%
markaðarins í kringum árið 2008.
Í gegnum nýja Napster fá not-
endur aðgang, gegn vægu mánað-
argjaldi, að gagnabanka sem inni-
heldur um 500 þúsund lög. Allt
með samþykki plötuútgefanda.
Einnig fá notendur aðgang að
netútvarpsstöðvum auk þess sem
þeir fá gefins lög til kynningar
annað slagið. ■
NAPSTER
Napster er ekki lengur ókeypis fyrir alla, Metallica eru líklegast mjög sáttir við sitt.
TEKIST Á
Yfirmenn vændishúsa í
Ástralíu segja breska uppa
hrifna af leðrinu.
S&M fyrir uppana
Skrýtnafréttin
VÆNDI
■ Nú þegar heimsmeistaramótið í
rugby er haldið í Ástralíu hafa
hóruhús ákveðið að bjóða ríkum
ferðamönnum upp á aukna þjónustu.
Napster snýr aftur
RIVERDANCE Í KÍNA
Hér sjást írskir dansarar sýna Riverdance-
sporin á blaðamannafundi sem haldinn
var í Bejing á miðvikudag. Sýningin er að
opna í fyrsta skipti í Kína og verður sú
stærsta sem erlendir aðilar hafa staðið að í
landinu. Þetta þykir sýna merki um viss
tímamót því kínversk stjórnvöld hafa ekki
verið mjög opin fyrir erlendum skemmti-
kröftum.