Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 30
Mel Gibson á í vandræðummeð að finna dreifingaraðila
fyrir mynd sína The Passion sem
fjallar um síðustu
ævidaga Jesú
Krists. Myndin
hefur verið harð-
lega gagnrýnd af
samtökum gyðinga
í Bandaríkjunum
og svo virðist vera
að vegna þessa þori stóru fyrir-
tækin ekki að bendla sig við
myndina. Hingað til hafa litlu
fyrirtækin aðeins lýst yfir áhuga
sínum á því að dreifa myndinni,
en Gibson hafði vonast eftir
samningi við risafyrirtækin.
Nú halda einhverjir því fram aðupptökustjórinn Phil Spector
íhugi að flýja land áður en réttar-
höld hans hefjast.
Spector er ákærð-
ur fyrir að hafa
orðið leikkonunni
Lönu Clarksson að
bana á heimili sínu
í febrúar. Spector
á einkaþotu og ótt-
ast saksóknarar
málsins að hann flýi landið fyrir
31. október þegar réttarhöldin
eiga að hefjast. Að stórstjörnur
flýi réttarhöld og hugsanlega
fangelsisvist í Bandaríkjunum er
ekki óþekkt því eins og margir
muna eftir flúði óskarsverðlauna-
leikstjórinn Roman Polanski
landið áður en réttarhöld hans
hófust. Hann var ákærður fyrir
að hafa sofið hjá 13 ára stúlku.
TÓNLIST Sala á nýrri breiðskífu
Bubba Morthens, hlaut ótrúlega
byrjun á útgáfudegi sínum á
mánudag, þegar 6.200 eintök voru
seld, án skilaréttar.
„Síðast gerðist þetta þegar ég
gaf út Frelsi til sölu,“ segir Bubbi.
„Hvað á maður að segja? Ég átti
enga von á þessu og er eiginlega
alveg orðlaus. Þetta kemur mér
verulega á óvart.“
Segist halda að þetta sé hugsan-
lega afleiðing af því hversu vinsæl
síðasta plata hans, Sól að morgni,
var en hún seldist í tæpum 14 þús-
und eintaka.
„Í boxinu er þetta þannig að
maður er aldrei betri en síðasti
bardagi manns. Það getur verið að
þetta sé það sama með plötumark-
aðinn. Ef ég má vera raunsær þá
eigum við alveg eftir að sjá hvað
verður. Það getur vel verið að
þessar seldu plötur séu búnar að
metta markaðinn í ákveðinn tíma.
Ég þori ekkert að tjá mig um
framhaldið. So far, so good.“
Í fljótu bragði virðist vera að
almenningur kunni að meta það
þegar Bubbi opnar dyrnar að sálu
sinni og blæðir út. Því persónu-
legri sem hann er, því fleiri plötur
virðist hann selja. „Það virðist
vera. Fólk nær að tengja sig betur.
Það er fínt því ég er að verða 47
ára gamall. Ég get ekki verið
pönkari og dópari að syngja Ís-
bjarnarblús til endaloka. Þetta er
svipað og ég færi í fýlu út í náttúr-
una vegna þess að það væri ekki
alltaf vor. Ég hef samt gert þetta
allan minn feril. Konu-platan var
auðvitað allsherjaruppgjör og
sjálfsvorkunnarplata. Það er vor
þegar maður er ungur, hásumar til
fimmtugs og svo kemur haust og
vetur. Maður bregst við þessum
árstíðum í lífi manns með mis-
munandi áherslu. Það gæti vel
verið, ef guð lofar, að ég verði
syngjandi um óréttlæti á elliheim-
ilum eftir 15 ár,“ segir Bubbi og
hlær hátt. Stoppar stutt og heldur
svo áfram; „Ég held að Mark Twa-
in hafi sagt að ef maður er ekki
uppreisnarmaður, pönkari, anar-
kisti eða kommúnisti þegar maður
er ungur, þá er eitthvað að. En ef
þú ert ennþá svoleiðis þegar þú ert
miðaldra, þá er líka eitthvað að.“
Og Bubbi hlær áfram, ham-
ingjusamur og mjúkur að lokum.
biggi@frettabladid.is
30 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
STRÆ
TÓ!
STRÆ
TÓ!
I feel trapped by mutual affection /
and I don’t know how to use freedom
/ I spend hours looking sideways / to
the time when I was sixteen. Cause
I’m in a trance. I’m frightened. Amp-
hetamine frightened.
Íslandsvinurinn og fýlupokinn Mark E. Smith, for-
sprakki The Fall, hefur á löngum ferli aldrei náð að
toppa ofsóknaræðið í fyrsta lagi sveitarinnar,
„Frightened“ af plötunni Live at the Witch Trials.
Popptextinn
THE FALL
BUBBI
Heldur ró sinni þrátt fyrir að hafa slegið í gull strax á fyrsta degi. Þorir ekkert að tjá sig um framhaldið.
6.200 eintök
seldust á fyrsta degi
Fréttiraf fólki
Það er víst
mánudagur...
En það þýðir
ekki að það verði
ekki ágætt í
vinnunni!
Samtímis... Við tökum
strætó í dag!