Fréttablaðið - 10.10.2003, Page 31
Fréttiraf fólki
31FÖSTUDAGUR 10. október 2003
Mínus sjokk-
erar, aftur
Rokkhljómsveitin Mínus gerðiheittrúaða kristna menn reiða
með því að hengja Jesú Krist á ís-
lenska fánann með síðasta hljóm-
sveitarbol sínum. Nú beina þeir
spjótum sínum að Davíð Oddssyni
forsætisráðherra. Á nýjasta
hljómsveitarbol þeirra er búið að
splæsa saman svínshöfði við and-
litsdrætti Davíðs. Yfirskrift bols-
ins er: „My Name is Cocaine“.
Hvað sveitin meinar með þessu
verður hver að eiga fyrir sig.
Leikkonan Uma Thurman hefurgreint frá þeim erfiðleikum
sem hún þurfti að glíma við við
tökur á Kill Bill, væntanlegum
tvíburamynd-
um leikstjór-
ans Quentin
Tarantino.
Hún tók
nefnilega að
sér hlutverkið
þegar hún var
enn ófrísk og
tökur hófust
stuttu eftir að
hún átti. Hún
segir tímann
hafa verið
sérstaklega erfiðan, bæði þar
sem hormónaflæðið í líkamanum
var ekki búið að jafna sig auk
þess sem barnið hélt fyrir henni
vöku á nóttunni. Hún mætti því
oft algjörlega ósofin á tökustað-
inn á morgnana.
Courtney Love hefur ákveðið aðfara í meðferð vegna fíknar
sinnar. Hún
er grunuð
um að hafa
tekið inn
ofsaskammt
heróíns í síð-
ustu viku eft-
ir að hún var
lögð meðvit-
undarlaus
inn á spítala.
Félagar Love
segja þetta
fyrsta skref
hennar í átt-
ina að koma
fótunum
undir sig að nýju vera löngu
tímabært.
Umboðsmaður ljónatemjaransRoy Horn, sem varð fyrir
tígrisárás á föstudag, segir
ástæðu árásarinnar hafa verið þá
að einhver áhorfandi truflaði
dýrið. Hann segir Horn hafa
brugðist hárétt við þegar hann
reyndi að róa kisa. Atvikið átti
sér stað í Las Vegas þar sem
Horn hefur ásamt félaga sínum
Siefried Fischbacher haldið uppi
ljónasýningunni. Henni var lokað
um óákveðinn tíma á laugardag
vegna árásarinnar.
Sjónvarpsstjarnan AshtonKutcher fór með kærustu sína,
Demi Moore, í heimabæ sinn
Homestead í Iowa á dögunum til
þess að hitta mömmu. Þegar
þangað kom biðu paparazzi ljós-
myndararnir á veröndinni heima
hjá þeim og þurfti mamma gamla
hreinlega að hóta að hringja á
lögregluna til
þess að
losna við
þá. Vegna
þess hver-
su fast ljós-
myndararnir
fylgdu á
hæla parsins
ákváðu þau
að halda sig
að mestu
innandyra.
Bæjarbúar
urðu
vonsviknir.
DAVÍÐ SVÍNSHAUS
Mínusmenn sýna Davíð
Oddssyni litla virðingu á
nýjum hljómsveitarbol.
Sting hefur ekki gefið út góðaplötu í 10 ár. Síðan þá hefur hann
ráfað um í myrkrinu, farið á safn-
plötufyllerí og virðist hafa náð að
kæfa sköpunargáfu sína í Tantra-
fræðum og öðru nýaldarrugli.
Galdur fyrstu sólóplatna Sting
fólst að miklu leyti í því hversu aug-
ljóslega spilagleðin skein í gegn.
Ekki skemmdi fyrir að lagasmíðar
voru oft framúrskarandi. Þetta
vantar á nýju plötuna, Sacred Love.
Nú daðrar Sting við forritaða
takta, og heldur að hann sé í takt við
nýja tíma, en þetta fer honum illa.
Það er alveg augljóst að þeir sem
forrita hafa ekkert vit á því sem
þeir eru að gera, eða ekkert gaman
af því... kannski bæði?
Sting virðist hafa misst takið á
poppsmíðum. Hér er ekki eitt ein-
asta lag sem kemst nálægt fyrri
gæðum. Eitt leiðinlega lagið tekur
við af öðru, batnar þó aðeins í end-
ann.
Sjaldan hefur verið jafn mikil
pressa verið á skip-takkanum í tæk-
inu mínu. Það var hrein pynting að
þurfa renna þessari plötu ítrekað í
gegn, hún fer beint á haugana!
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
STING
Sacred Love
Úff...