Fréttablaðið - 10.10.2003, Side 40
40 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
Mál á sófa
265 x 190,
hægt að fá
á báða vegu.
Lögreglan hefur ákveðið að vísaákærum á hendur leikaranum
Ben Affleck frá.
Fyrrum ástkona
leikarans segir
hann hafa hótað
sér lífláti rétt
áður en fyrirhug-
að brúðkaup hans
og Jennifer Lopez
átti að fara fram.
Lögreglan segist ekki finna nein-
ar sannanir fyrir þessum ásökun-
um og ætlar ekki að aðhafast
meira í málinu. Affleck gat víst
gefið lögreglunni trúverðuga
fjarvistarsönnun.
Íslandsvinurinn Dave Grohl,höfuðpaur Foo Fighters, hefur
verið að vinna að nýrri plötu. Þó
ekki Foo Fighters plötu, heldur
heví-metal plötu sem hann ætlar
að gefa út undir nafninu Probot.
Fyrir verkefnið
réð hann til sín
annan söngvara
þar sem hann
vildi fá annað
bragð af nýjustu
sveitinni. Dave
spilaði á öll hljóð-
færin sjálfur en
um söng á plötunni sjá flestir af
uppáhalds söngvurum hans. Þar
á meðal eru Max Cavalera úr
Soulfly og Lemmy úr Mötor-
head.
Nú berjast Britney Spears ogSheryl Crowe báðar við það
að fá nálgunarbann á karlmenn
sem elta þær á röndum. Britney
hefur þegar tekist ætlunarverk
sitt en á miðvikudag var jap-
anska viðskiptamanninum Masa-
hiko Shizawa skipað að halda sig
frá poppstjörnunni. Maðurinn,
sem er 41 árs gamall, segist ekki
vera sjúkur aðdáandi heldur sé
hann einfaldlega yfir sig ástfang-
inn af henni. Maðurinn sem
Sheryl Crowe vill halda
frá sér, réðst inn í bún-
ingsherbergi hennar
og rústaði öllu.
Hann segist vera
sálufélagi
Crowe og trúir
því að þau
muni giftast.
Sá ætti því að
verða svolít-
ið fúll
þegar
hún fær
nálgunar-
bann á
hann.
Fréttiraf fólki
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagur-inn er í dag og af því tilefni
stendur Geðrækt fyrir geðræktar-
þingi í Iðnó undir yfirskriftinni:
Meiri hlátur, minni grátur. „Það
verður fjölbreytt dagskrá í Iðnó en
dagurinn í ár er tileinkaður vernd-
un og eflingu á geðheilsu barna og
unglinga,“ segir Dóra Guðrún Guð-
mundsdóttir, verkefnastjóri Geð-
ræktar.
Meðal þeirra sem koma fram er
Lína Langsokkur: „Hún mætir á
svæðið með laganna vörðum og
segir frá hegðunarerfiðleikum sín-
um en hún mun einnig fræða gesti
um hvernig hún ræktar geðið með
jákvæðu lífsviðhorfi“.
Geðrækt var upphaflega hugsuð
sem verkefni til þriggja ára og átti
starfssamningur verkefnisins að
renna út í dag: „Hápunktur dagsins
eru þau gleðitíðindi að Landlæknis-
embættið, Heilsugæslan og geð-
svið Landspítalans hafa ákveðið að
framlengja samstarfssamning um
Geðrækt enda eru augu fólks að
opnast fyrir mikilvægi þess að
vinna að forvörnum og almenn-
ingsfræðslu um geðraskanir og
geðheilbrigði.“
Í Iðnó verða fleiri en Lína
Langsokkur sem stíga fram af hug-
rekki: „Ung kona kemur og segir
frá því hvernig henni hefur tekist
að taka á kvíðaröskun og ungur
maður segir frá því hvernig hann
hefur með breyttum lífsstíl náð að
skapa sér gott líf þrátt fyrir að hafa
greinst með geðhvörf. Okkur
finnst mikilvægt að fjalla um geðið
á jákvæðum nótum og Valgerður
Snæland ætlar að hrista upp í
mannskapnum með því að bjóða
upp á hláturjóga. Geðræktarstjarn-
an verður svo afhent Elínu Ebbu
Ásmundsdóttur iðjuþjálfa fyrir að
hafa skipt sköpum með framlagi
sínu til geðræktarmála á Íslandi.“
Geðræktarþingið hefst í Iðnó
klukkan 13 en sýning á listmun-
um nemenda Dalbrautarskóla við
barna- og unglingageðdeild verða
til sýnis á meðan þinginu stendur.
■
Geðrækt
IÐNÓ
■ Vegna alþjóðlega geðheilbrigðisdags-
ins, sem er í dag, verður fjölbreytt dag-
skrá í Iðnó.
Meiri hlátur minni grátur
LÍNA LANGSOKKUR
Mætir á geðræktarþing í Iðnó í dag í tilefni af alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum
Rokkarinn Bruce Springsteenvarð fyrir heldur undarlegri
lífsreynslu í síðustu viku þegar
lögreglan í New York ákvað að
sýna honum vald sitt. Springsteen
heldur þessa dagana tónleika-
þrennu í Shea Stadium í borginni
og voru fyrstu tónleikarnir á
þriðjudagskvöld.
Yfirmenn lögreglunnar
virðast ekki hafa verið alls kostar
sáttir við ákvörðun Springsteens
um að flytja lagið „American Skin
(41 shots)“ þetta kvöld en lagið
fjallar um dráp lögreglu á inn-
flytjanda frá Afríku sem lögregl-
an skaut 41 skoti árið 1999. 19 kúl-
ur hæfðu hann og drápu sam-
stundis.
Þetta varð til þess að yfirmenn
lögreglunnar ákváðu að aftur-
kalla lögreglufylgdina eftir aðra
tónleikana, sem voru á föstudags-
kvöldið. Hefð hefur verið fyrir
því að lögregluþjónar fylgi popp-
stjörnum frá risaleikvöngum og
auðvelda þeim þar með að komast
klakklaust af svæðinu en þúsund-
ir aðdáenda safnast oft saman í
von um að sjá goðið sitt.
Springsteen lék ekki lagið á
föstudags- eða laugardagstónleik-
unum og fékk því fylgdina aftur á
laugardeginum.
„Við gerðum herra Spingsteen
þann kurteisislega greiða að fylg-
ja honum að höfninni eftir tón-
leikana tvisvar,“ sögðu talsmenn
lögreglunnar og þverneituðu að
tjá sig um ástæður þess að
Springsteen var ekki fylgt heim á
föstudeginum. ■
Gerði
lögregluna fúla
BRUCE SPRINGSTEEN
Lögreglan í New York er alls
kostar sátt við textainnihald
rokkarans Bruce Springsteen.