Fréttablaðið - 10.10.2003, Qupperneq 47
47FÖSTUDAGUR 10. október 2003
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Tryggvi Þór Herbertsson
Cruz Bustamante
Brynjólfur Bjarnason
Skallar þurfa raka
Það er ekki nóg að raka skallann.Skallann þarf líka raka. Villi
Þór, rakarameistari á Krókhálsin-
um í Reykjavík, segir að menn
sem séu farnir að fá skalla geti
yngst um fimm til tíu ár með því
einu að láta raka af sér allt hárið:
„Annars eru tvær tískur í gangi
í þessum efnum. Annaðhvort er að
raka höfuðið með 2 1/2 mm vél eða
þá að fara alveg niður í rót með
sköfu og vera þá eins og Bubbi
Morthens. Ég tel að hið fyrr-
nefnda sé vinsælla í dag,“ segir
Villi Þór sem hvetur menn til að
hugsa vel um skallann þó hárið sé
farið: „Það verður að bera á skall-
ann eins og annað sem rakað er.
Helst mæli ég með venjulegu
rakakremi eða þá rakspíra. En
best er líklega að nota balm,“ seg-
ir Villi Þór.
Frumkvöðull skallatískunnar í
heiminum á síðari tímum er vafa-
lítið grísk-bandaríski kvikmynda-
leikarinn Telly Savalas. Telly
krúnurakaði sig gjörsamlega og
þótti djarft en þessi öfgafulla hár-
snyrting færði honum á móti fjöl-
mörg hlutverk í kvikmyndum og
frægastur er hann líklega fyrir
leik sinn í sjónvarpsmyndaröðinni
Kojak. Telly Savalas lést fyrir
nokkrum árum úr krabbameini en
hann var stórreykingamaður en
reyndi að tempra reykingar sínar
með því að vera með sleikibrjóst-
sykur í munni í stað sígarettunnar.
„Ef menn vilja halda krúnurök-
uðu höfði vel við ætti að duga að
raka kollinn á 4-5 daga fresti. Þeir
sem alltaf vilja vera glansandi
verða hins vegar að skafa daglega.
Það er ágætt að gera í sturtunni,“
segir Villi Þór á Krókhálsinum. ■
SUND
Kvölds og morgna.
Sundið
styttist
VETUR Möguleikar Reykvíkinga til
að fá sér sundsprett að kvöldlagi
um helgar minnka í vetur vegna
breytinga á opnunartíma sund-
lauganna í Árbæ og í Grafarvogi.
Til þessa hefur verið opið í laug-
unum til klukkan 22 um helgar en
nú loka laugarnar klukkan 20.30.
Eftir sem áður verða þær opnar
lauga lengst á virkum dögum eða
allt fram til klukkan 22.30.
Aðrar sundlaugar í Reykjavík
breyta ekki opnunartíma sínum
yfir vetrarmánuðina og eru með
opið til klukkan 22.30 á virkum
dögum og til klukkan 20 um helg-
ar. Vesturbæjarlaug er þó með
opið til klukkan 22 á virkum dög-
um. ■
Lárétt: 1 tónlistartegund, 7 snyrta, 8 land
í fréttum, 9 ómerkilegt ball, 11 sólguð, 12
ráðvönd, 15 vafi, 16 bjó til klæði, 17 slot-
ar.
Lóðrétt: 1 gróður, 2 sérhljóðar, 3 hreinar,
4 eðla sig, 5 tiginn, 6 bág, 10 seigi, 13
uppistaða, 14 vafi, 15 fæði.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að betra er að
vera yfirgefinn en undirgefinn.
Lausn. Lárétt: 1gospel,7rakaða,8írak,
9skrall,11ra,12ærleg,15ef, 16óf, 17
linnir.
Lóðrétt: 1gras, 2oa,3skírar, 4para,5
eðal,6lakleg,10kræfi,13lón,14efi,15
el.
1
7
2 3 4 5
8
15 16
17
13 1412
6
9 10
11
VILLI ÞÓR
Menn geta yngst um 5-10 ár með því að
krúnuraka sig.
Tíska
VILLI ÞÓR
■ hársnyrtimeistari segir að krúnurak-
aðir kollar þurfi umönnun eins og ann-
að. Hann mælir með rakakremi eða
spíra á skallann.
TELLY SAVALAS
Frumkvöðull í skallatískunni.